Fréttablaðið - 09.11.2009, Qupperneq 46
30 9. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. sæti, 6. kúgun, 8. þessi, 9. þunnur
vökvi, 11. til dæmis, 12. frumefni, 14.
mælieining, 16. persónufornafn, 17.
orlof, 18. ennþá, 20. óhreinindi, 21.
heimili.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. skammstöfun, 4. víbrator,
5. mein, 7. hænsnfugl, 10. blása, 13.
heyskaparamboð, 15. kennslustund,
16. þögn, 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. setu, 6. ok, 8. hin, 9. lap,
11. td, 12. flúor, 14. karat, 16. þú, 17.
frí, 18. enn, 20. im, 21. inni.
LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. eh, 4. titrari, 5.
und, 7. kalkúnn, 10. púa, 13. orf, 15.
tími, 16. þei, 19. nn.
Stuttmyndin Eyja eftir Dögg Móses-
dóttur er ein þeirra mynda sem
verða sýndar á íranskri kvikmynda-
hátíð. Hátíðin, sem ber heitið Par-
vin Etesami Film Festival, er nefnd
eftir írönsku ljóðskáldi og er hún
tileinkuð kvikmyndum í leikstjórn
kvenna. „Aðstandandi hátíðarinn-
ar hafði samband við mig í gegnum
Fésbókina og bað mig um að taka
þátt. Ég sendi inn stuttmynd sem
heitir Eyja og er byggð á sannsögu-
legum atburðum sem áttu sér stað
í heimabæ mínum, Grundarfirði.
Myndin fjallar um ungu stúlku
sem verður vitni að sjóslysi og voru
slík slys nokkuð tíð í gamla daga.
Sjómennirnir drukknuðu allir því
þeir voru allir ósyndir alveg eins
og fólkið í fjörunni sem gat ekkert
gert nema horfa á,“ útskýrir Dögg.
Myndin þykir svolítið tilrauna-
kennd og stutt, en hún er aðeins
um tíu mínútna löng. „Ég kláraði
myndina árið 2007 minnir mig
og hún er búin að vera á flakki
á milli kvikmyndahátíða síð-
astliðið ár og hlaut meðal ann-
ars verðlaun fyrir bestu leik-
stjórn og bestu tónlistina á
Sitges Inter national Film
Festival á Spáni.“
Undanfarin tvö ár
hefur Dögg staðið
fyrir kvikmynda-
hátíðinni Northern
Wave Film Festival sem fram fer í
Grundarfirði. Þriðja hátíðin verðu
haldin í byrjun mars á næsta ári
og er undirbúningur fyrir hátíðina
þegar hafinn. „Grundfirðingar
er mjög stoltir af þessari hátíð
og núna í ár ætlum við að
reyna að fá fleira á fólki frá
nesinu öllu til að taka þátt í
þessu með okkur. Erlendis
virðist hátíðin hafa spurst
út meðal kvikmyndagerðar-
fólks og við höfum fengið
mikið af fyrirspurnum um
hvenær hátíðin byrji að
taka við myndum,“ segir
Dögg að lokum.
Sk i lafrestur á
myndum er til 1. desember. Upp-
lýsingar má finna á www.northern-
wavefestival.com. - sm
Íslensk stuttmynd á kvikmyndahátíð í Íran
DÓMNEFNDIN Dögg Mósesdóttir
stendur lengst til vinstri, næst Bertrand
Mandico, Kristín Jóhannsdóttir og
Hilmar Örn Hilmarsson. Þau skipuðu
dómnefndina í fyrra.
Tvær bækur sem koma út fyrir
þessi jól bera sama nafnið, Hjart-
sláttur. Annars vegar er um að
ræða ævisögu Hjálmars Jónsson-
ar dómkirkjuprests og hins vegar
unglingabók Ragnheiðar Gests-
dóttur. Báðir rithöfundarnir eru
sammála um að þetta gæti kannski
leitt til skemmtilegs misskilnings,
gæti svo farið að óharðnaður ungl-
ingur fengi bók um miðaldra prest
og einhver af eldri kynslóðinni
sögu af ást á örlagatímum.
„Svo segja menn að það sé ekki
samkeppni á milli forlaga, þetta er
bara skýrasta dæmið um að það
er bullandi samkeppni á þessum
markaði,“ segir Hjálmar og rifjar
upp nokkuð skondna sögu í þessu
samhengi. „Þannig var að þegar
ég var að fermast þá hét ferm-
ingakverið Vegurinn. Eitt ferm-
ingasystkinanna fór og keypti það
en fannst það heldur dýrt. Enda
hafði það keypt reyfara sem hét
Gatan.“ Hjálmar leyfir sér þó ekki
að efast um að unglingar geti haft
gaman af bókinni sinni. „Ég fer
reyndar ekkert yfir unglingaást-
ina en bernskan er þarna, þetta er
ekki bara bók um gamlan klerk.“
Hjálmar segir sinn hjartslátt dreg-
inn af því að slíkur sláttur hafi
fylgt honum alla tíð. „Ég var mjög
feiminn sem barn, stamaði og var
óframfærinn og því fór hjartað að
slá ögn örar þegar maður var kall-
aður upp í tímum,“ útskýrir Hjálm-
ar og svo sé það hin ástæðan: „Svo
var ég tekinn í hjartaaðgerð fyrir
nákvæmlega fimm árum, samdi
reyndar ljóð sem hét hjartalag og
var að íhuga að kalla bókina það,“
en hjartsláttur varð ofan á.
Ragnheiður segist hafa feng-
ið nokkrar ábendingar um þessa
skemmtilegu tilviljun. „Já, þetta
er mjög skrýtið og nei, það er ekk-
ert sjálfsævisögulegt í minni bók.
Sagan er bæði gömul og ný, þetta
er um unga elskendur sem eiga
ekki að fá að njótast,“ útskýrir
Ragnheiður. Hennar hjartsláttur
vísar að sjálfsögðu til ástarinnar
en einnig búsáhaldabyltingarinn-
ar sem er umhverfi sögunnar. „Sá
taktur sem þar var sleginn var
hjartsláttur þjóðarinnar og þeirrar
frelsisþrár sem þarna kviknaði,“
útskýrir Ragnheiður og bætir því
við að það sé kannski ekkert óeðli-
legt að tvær bækur með þessu heiti
skuli koma út. „Við erum öll mann-
eskjur og þetta sameinar okkur öll,
hjartslátturinn.“
freyrgigja@frettabladid.is
RAGNHEIÐUR GESTSDÓTTIR: HJARTSLÁTTURINN SAMMANNLEGUR
TVÆR BÆKUR HEITA
HJARTSLÁTTUR
MEÐ HJARTSLÁTT
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur og
Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur
gefa bæði tvö út bækur sem bera
nafnið Hjartsláttur. Þau eru sammála
um að markhópar þeirra gætu haft
gaman af hinni bókinni líka enda sé
hjartsláttur sammannlegur.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Mér finnst þetta bara vera
mjög sniðugt hjá þeim, það er
ekkert að þessu.“
Elsabet H. Baldursdóttir, móðir Kristínar
Gígju Sigurðardóttur sem tók þátt í
kynlífstilraun útvarpsstöðvarinnar Kanans.
DÖGG MÓSESDÓTTIR
FR
ÉTTB
LA
Ð
IÐ
/PJETU
R
Jógvan Hansen mun syngja Eurovision-
lag Óskars Páls Sveinssonar og Bubba
Morthens. Færeyski söngvarinn segir þetta
vera einn af hápunktum ferils síns; Bubbi
hafi verið eini íslenski tónlistar-
maðurinn sem hann hafi þekkt
til áður en hann kom til Íslands,
Færeyingar þekki til að mynda
lagið Það er gott að elska ákaf-
lega vel. Og Óskar Páll samdi
lagið Hvern einasta dag en
það færði Jógvan sigur í X-
Factor. „Þetta er mikill
heiður og framar öllum
mínum vonum. Ég hefði
verið heimskasti maður
Íslands og jafnvel Færeyja líka ef ég hefði
sagt nei við þessu tilboði,“ segir Jógvan.
Bubbi bar mikið lof á hæfileika Jógvans
þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Bubbi
er reyndar búinn að glíma við flensu undan-
farnar tvær vikur og upplýsir, í framhjá-
hlaupi, að hann hafi reynt að tala sem
minnst undanfarna daga. „Og eflaust eiga
einhverjir eftir skella uppúr þegar þeir
lesa þetta.“ En þá að Eurovision-laginu.
Bubbi segir Jógvan hafa í raun allt
til brunns að bera til að geta
náð langt í tónlistarbrans-
anum. „Jógvan er fyrst
og fremst afbragðs
söngvari, hann hefur
sterka sviðsnánd og
kemur vel fyrir í
alla staði. Hans
rödd mun henta
mjög vel því sem við erum að pæla í að gera
og útlitið skemmir ekki fyrir.“
Bubbi hefur alla tíð verið mikill tals-
maður þess að syngja á íslensku en
enskan hefur smám saman verið
að taka yfir í hinni íslensku for-
keppni. Bubbi segir að það
muni ráðast með teningakasti
hvort verði ofaná, íslenskan
eða enskan. „Og svo verður
sá sem tapar bara að bíta
í það súra epli að lenda
undir.“
- fgg
Jógvan syngur lag Bubba í Eurovision
JÓGVAN Mikill heiður
að syngja lag Bubba og
Óskars Páls.
BUBBI Finnst Jógvan
afbragðs söngvari.
Gunnar Björn Guðmundsson,
leikstjóri Áramóta-
skaupsins, ætlar
augljóslega að láta
Skaupið koma á
óvart. Því hann er
nánast ófáanlegur til
að gefa upp eitt eða
neitt í kringum
framgang þess.
Yfirleitt hefur
því verið lekið
í fjölmiðla
hverjir leika
í Skaupinu
en leikstjórinn
liggur á þeim lista eins og ormur
á gulli.
Fréttablaðið hefur þó heimildir
fyrir því að Ladda muni bregða
fyrir í Áramótaskaupinu. Gunnar
Björn hefur vafalítið ekki þurft að
hafa mikið fyrir því enda var hann
aðstoðarleikstjóri í kvikmyndinni
Jóhannes sem Laddi leikur einmitt
aðalhlutverkið í. Þá mun Gunnar
Hansson einnig leika í Skaupinu
sem og Víkingur Kristjánsson og
Tinna Lind Gunnarsdóttir.
Þá mun Margrét Áka-
dóttir einnig bregða á
leik í Áramótaskaup-
inu en áður hefur
verið greint frá því að
Árni Pjetur Guðjóns-
son verði
meðal
leikara.
Og síðasti þáttur Fangavaktarinnar,
með Ólaf Ragnar fremstan í
flokki, fór í loftið í gær. Ekki gekk
víst snurðulaust að koma honum
á þartilgerðar spólur og sátu
tæknimenn og leikstjórinn Ragnar
Bragason langt fram undir laugar-
dagskvöld við að redda málunum.
Ragnar hyggst nú bregða sér í
langþráð sumarfrí, ætlar að liggja
með tærnar uppí loftið næstu þrjá
mánuði og njóta vaktarlausra daga.
Aðdáendur þáttanna geta
þó huggað sig við það
að á sunnudaginn
eftir viku verður sýnd
klukkustundarlöng
heimildarmynd um
gerð þess-
ara þriggja
þátta-
raða.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Til Los Angeles í
Bandaríkjunum.
2 Berlínarmúrinn féll í Þýskalandi.
3 Hjartsláttur.
Auglýsingasími
– Mest lesið