Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1945, Blaðsíða 17
Tímarit Iðnaðarmanna 3. XVIII 1945
Hallorlmor Einarsson Ij'ósmyndam.
Fimmtin ára starfsafmæli
Ljósnivndagerð-
inni hefir fleygt
frárn hin síóari ár,
seni allri annari
tækni, enda á liún
marga ágæta menn
innan sinna vé-
banda, sem gert
hafa þessa iðn a‘ð
æfistarfi sínu. Einn
þeirra er Hallgrím-
ur Einarsson á Ak-
ureyri, er átti i vor 50 ára starfsafmæli sem
ljósmyndari og mun enginn hérlendur mynda-
smiður hafa náð svo löngum starfsaldri fyr.
Hann lærði iðnina i Kaupmannahöfn og sett-
ist, að loknu námi, að á Seyðisfirði og lióf
þar sjálfstæðan atvinnurekstur 1. maí 1895,
])á 17 ára gamall, því að hann er fæddur 20.
febr. 1878. Sumurin 1901 og 1902 starfaði
hann á Akureyri að ljósmyndagerð en settist
þar að 1903, liefur dvalið þar siðan og rekið
eigin Ijósmyndastofu fram á þennan dag.
Ilallgrímur hefur haft 19 nemendur, karla
og konur, sem lokið hafa nami í iðninni,
margir hafa tekið sér önnur störf, en 6 þeirra
stunda nú ljósmyndagerð sem aðalatvinnu.
Tveir synir Hallgríms hafa lært iðnina hjá
hohum.
Hallgrímur hefur stundað starf sitt og rekst-
ur allan með stakri alúð og elju. Hann var
um langt skeið aðalmyndasmiðurinn norð-
anlands og tók þá, — auk fjölda manna-
mynda, einnig landslagsmyndir og ýmsar
tækifærismyndir, sem frægar eru orðnar.
Þótt Hallgrimur sé enn í fullu fjöri eftir
langan starfsdag, liefur hann orðið fyrir
ýmiskonar andstreymi um dagana og meðal
annars orðið að sjá af tveim hörnum sínum
í blóma lifsins.
En margt stórmenni og marga blómarósina
hefur Hallgrimur myndað um dagana og
iatsveinar oo vettingaþjónar taka próf
Fyrir mörgum árum var matreiðsla og
framreiðsla gerð að sérstökum iðgreinum.
En þótt fagfélag væri stofnað hér i Rvik
meðal starfandi manna i þessum iðngrein-
um, hefur ekkert skipulag á þær koinizt.
Nokkrir mætir menn liafa þó að þessu reynt
að vinna og Landssamband iðnaðarmanna
og Iðnráð Reykjavíkur boðið aðstoð sína. Er
það gleðiefni að nú skuli samstarf liafa
tekizt meðal Jjessa flokks iðnaðarmanna,
þeim veitt lögmæt réttindi sem bera þau og
að aðrir taki sveinspróf. Er vonandi að nám-
ið í þessum iðngreinum komist nú einnig í
viðunandi liorf.
Það var 19. sept. s.l. sem fimm framreiðslu-
menn og sjö matreiðslumenn og konur tóku
sveinsjiróf i Valhöll á Þingvöllum. Var jafn-
framt til hófs stofnað og þangað boðið for-
ystumönnum þessara iðna, Iðnráðs Rvíkur
og tíðindamönnum dagblaða og útvarps. Fór
hófið hið beztá fram, að sögn blaðanna og
margár ræður fluttar. Öll veizluföng voru af
bezta tagi og framreiðsla jnóftakanna hin
ákjósanlegasta.
Þeir sem próf tóku i l'ramreiðslu voru:
Stefán Þorvaldsson, Theódór Ólafsson, Árni
Guðjón Jónasson, Trausti Magnússon og
Tryggvi Steingrímsson.
I matreiðslu:
Þorgeir Pétursson, Kristján Ásgeirsson,
Sveinsina Guðmundsdóttir, Hólmfríður María
Jensdóttir, Þórður E. Arason, Böðvar Stein-
dórsson og Kjartan Guðjónsson.
Þetta sveinspróf markar tímamót í sögu
þessara iðngreina. Af ræðunum sem haldn-
ar voru i liófinu mátti skilja að gistihúsa-
eigendur og forystiunenn ]iessara iðngreina
hafa fyllsta hug á að auka menntun og hæfni
stétlarinnar. Enda er ]iað mikil nauðsyn.
víða eru myndir hans vel innrammaðar á
beztu stöðum heimilanna í þessu landi. Allar
bera þær smekkvísi hans og vándvirkni
golt vitni. .S'. ./.
51