Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1945, Blaðsíða 22

Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1945, Blaðsíða 22
Tímarit Iðnaðarmanna 3. XVIII 1945 Fnndnr skólastjóra iðnskólanna Stjórn Iðnskóla Akureyrar, en i henni eiga sæti: Guðjón Bernharðsson, Guðm. Guðlaugsson og Gaston Ásmundsson, sendi, seint í júní s.l., stjórn Landssambandsins bréf, þar sem hún skorar á hana að beita sér fyrir jivi að skóiastjórar allra iðnskóla ó Jandinu verði kvaddir saman til fundar á þessu sumri til þess að athuga og gera tillögur sameiginlegar um fram- tíðarskipan og rekstur iðnskólanna, ekki sízt með fjárhagsafkomu þeirra og öryggi fyrir augum. Skyldu athuganir og tillögur jiessa fundar siðan lagðar l'yrir stjórn Landssambandsins og stjórnir og skóJanefndir iðnaðarmannafélaga þeirra, sem standa nú strrum af rekstri iðnskólanna, en að jieirri at- hugun lokinni, yrðu tillögurnar lagðar fyrir næsta iðnþing og verði þar endanlega frá þeim gengið til framkvæmda og fyrirgreiðslu hlutaðeigandi stjórnarvalda. Sambandsstjórnin ákvað strax að verða við á- skoruninni og tók formaður hennar, sem einnig er stjórnandi langstærsta iðnskólans, að sér boðun. fundarins. I bréfi skólastjórnarinnar segir.: Eins o.g Landsambandsstjórninni mun kunnugt, hefir kennslumálaráðherra nú fyrirskipað með reglu- gerð stórfellda hækkun á launum tímakennara við iðnskólana, í samræmi við hin nýju launalög rík- isins. Verður það að teljast réttmæt og eðlileg krafa, að um leið og ríkisstjórnin skipar fyrir um launakjör við skólana, sjái luin þeim og fyrir nægi- legum tekjuauka til þess að standa straum af kaup- hækkunum þeim, er af slíkum ráðstöfunum stafa. Telja má víst, að laun fastra kennara og skóla- stjóra skólanna liljóti einnig að hækka í hlutfalli við kaup tímakennaranna, enda væri annað hvorki réttmætt né eðlilegt. Skólanefndinni telst svo til, að með óbreyttum kennslustundafjölda og núgild- andi verðlsgsvisitölu muni útgjaldauki sá, er af nefndum ráðstöfunum ríkisvaldsins leiðir, nema allt að kr. 25.000.00 fyrir Iðnskólann á Akureyri. Og þar sem við teljuin hvorki mögulegt né sann- gjarnt að mæta hækkunum þéssum með tilsvarandi hækkunum á skólagjöldum, sem nú þegar eru orð- in mjög há, sjáum við ekki annað framundan fyr- ir skólann en að annað tveggja verði að leggja starfsemi lians niður, eða ríkisvaldið sjái lionum fyrir nægilegum tekjum til þess að mæta hækkun- um þeim, sem beinlínis stafa af ihlutun þess um málefni skólanna. Þar sem við gerum fastlega ráð fyrir því, að eitthvaö svipað sé að segja um afstöðu annara iðnskóla í landinu, teljum við rétt og nauðsynlegt, 56 að forráðamenn allra skólanna beri í tæka tið sam- an ráð sín um ])að, livernig bezt verði snúizt við þessum vanda, og er framangreind tiliaga okkar fram komin af þeim ástæðum. Sex skólastjóranna mættu á fundinum i Reykja- vik 15. og t(i. sept. s.l. Þar voru liessar tillögur samþykktar. „Fundur skólastjóra iðnskólanna, haldinn i Iteykja- vík' daganna 15. og l(i. sep(. 1945, beinir því til fræðslumálastjóra og Landssambands Iðnaðarmanna sem hafa meo höndum úthlutun ríkisstyrks til iðn- skólanna, að ríkisstyrk ársins 194(i verði að nokkru eða öllu leyti úthlutað á fyrsta ársfjórðungi ársins 1940, í söniu hlutföllum og styrkur fyrir 1945, ef e-kki fást skýrslur frá skólunum um vikulegan kennslustundafjölda, og áætlaðan vikufjölda, kostnað og fl. fyrir febrúarlok." „Fundurinn telur réttmætt, að ríki og bæjarfé- lög standi straum af rekstri iðnskólanna ekki síður en af skölum annara atviiinuvega og almennri ung- lingafræðslu í landinu. Telur fundurinn því ínikla nauðsyn, að hraðað sé afgreiðslu lrumvarps þess til laga uni iðnskóla, sem legið hefir fyrir síðustu iðnþingum og Alþingi. En á meðan lög þessi hafa enn ekki verið al'- greidd, telur fundurinn það réttmæta og sjálfsagða kröfu, að ríkissjóður greiði skólunum aukinn styrk, sem svarar til kosnaðarauka ])ess, er leiðir af á- kvörðun rikisstjórnarinnar um laun iðnskólakenn- ara.“ „Fundurinn beinir þeim tilmælum til stjórnar Landssambands Iðnaðarmanna, að hún atliugi mögu- eika á |)vi, að láta eftirleiðis árlega prenta eða fjöl- rita í einu hefti skýrslur um starf allra iðnskóla i landinu og senda öllum skólunum þær til athug- unar, svo að forráðamenn þeirra geti fylgst með starfstilhögun og námsefni hinna skólanna. Ekki er nauðsynlegt að nemendaskrá fylgi skýrslum þessum, en því ítarlegri greinargerð um námsefni og önnur atriði, er snerta skipulag og starfsað- ferðir hvers skóla. Fundarmenn voru samþykkir þeim efnisbreyting- um, er komið höfðu fram við iðnskólalögin og þessir menn voru tilnefndir til að undirbúa af fslands liálfu norrænt iðnfræðsluþing i Stokkhólmi 1940: Helgi H. Eiríksson, Jóhann Frímann og Magn- ús Jónsson. Ritstjóri Sveinbjörn Jónsson, Pósth. 491. Simi 2986. Prentstaður Herbertsprent, Bankastræti 3, sími 3635. Afgreiðslu hefir skrifstofa Landssambands iðnaðar- manna, Kirkjuhvoli, sími 5363.

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.