Tímarit iðnaðarmanna


Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1945, Qupperneq 19

Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1945, Qupperneq 19
Tímaril Iðnaðarmanna 3. XVIII 1945 Mnaðarmannafélag stofnað 1 Ólafsffrði Hinn 28. ág. s.l. komu átta iðnaðarmenn í Ólafsfirði saman á fund lil þess að stofna með scr iðnaðarmannafé'lag. Mættur var þar með þeim Sveinbjörn Jónsson úr stjórn Landssambands iðnaðarmanna og skýrði fyr- ir fundarmönnum fyrirkomulag iðnmálanna í landinu og benti á nauðsyn þess að i vaxandi kaupstað, sem Ólafsfirði væri starfandi iðn- aðarmannafélag, sem fylgdist vel með gangi iðnmála i landinu og gætti velferðar iðnað- armanna heima fyrir. Tilgangur félagsins var ákveðin en að öðru leyti skyldu lög félagsins samin í samráði við Landssamband Iðnaðarmanna en i það sam- þykktu fundarmenn að ganga. 1 stjórn voru kosnir: Ágúst Jónsson formaður, Gísli Magnússon ritari og Baldur Steingrimsson gjaldkeri. Þelta er 18. iðnaðarmannafélagið í landinu og öll eru þau í Landsambandi iðnaðarmanna. íbúðir 1944. Herbergi auk eldhúss 1 2 3 4 5 0 7 8 9 Alls. 1 timburhúsum 1 2 8 1 12 1 steinhúsum 9 104 96 77 21 9821 327 Samtals ............. 10 100 104 78 21 !) 8 2 1 339 Á árinu liafa veri'ð bygg'ðir 003.41 ferm. af timb- urhúsum og 22.371.47 ferm. af steinhúsum, eða sam- tals 22.947.88 ferm., 3.050 rúmm. af timburhúsum og 175.090 rúmmetrar af steinhúsum eða samtals 178.140 rúmmetrar. Hefur því verið byggt l'yrir ca. 50 milj. króna. Alls hafa 339 íbúðir bætzt við á árinu, þar með taldar 09 íbúðir, sem vitað er að gerðar hafa verið í kjöllurum húsa án samþykktar byggingarnefndar. Alls voru byggð 204 hús, þar af 124 íbúðarhús, 2 skólar, 2 verzlunar og skrifstofuhús, 11 verksmiðju- og verkstæðishús, 02 geymslur og bílskúrar. Aukn- ingar á eldri húsum samtals 24 eru ekki lagðar við tölu liúsa, en rúmmál þeirra og flatarmál er talið með i þeim flokki, er þær tilheyra. Breyting- ar á eldri Iiúsum, sem ekki auka rúmmál þeirra, girðingar o. f 1., er ekki talið með i yfirliti þessu, en til sliks hefur verið vari'ð miklu fé á árinu. Guðjón Jónsson, Oddsstöðum, Vestmannaeyjum, sjötugur. Maður skyldi ckki halda að þetta væri satt, þegar maður sér Guðjón á Oddastöðum hraustan og kátan, alveg eins og i gamla daga. En svo þegar maður hugsar sig bet- ur um, þá stendur allt heima, því að hann er fæddur hér i Eyjum 27. des. 1874 á því herrans ári þeg- ar kóngurinn gaf okk- ur stjórnarskrána. Eins og flestir Eyjaskeggjar, stundaði Guðjón sjó- mennsku og fuglaveiðar á uppvaxtarárum sín'um og man ég fyrst eftir honum sem formanni á ára- skipi, sem liafði 20 manna áhöfn. Þá voru engar bryggjur hér, svo að bátarnir urðu að leíida i fjör- unni en fiskurinn var seilaður og dregiiin að landi af sjómönnum, sem voru í skinnbrókum upp undir hendur. Þá vildu menn nú vökna og hirtu ekki um þó að liinir blotuðu líka, svo að allt lenti í sjóslag og ef ég man rétt, þá var formaðurinn lífið og sálin í öllu saman. Guðjón byrjaði „að fara til fugla“ tíu ára gam- all, hcnn hefur dvalið i úteyjum á hverju sumri síðan og liaft mikið yndi af úteyjalifinu eins og allir sem það stunda. Enda þótt Guðjón liafi búið snotru búi að Oddsstöðum um langan aldúr, hefur aðalstarf hans verið trésmiðar, fyrst húsasmíðar, en síðan um allmörg ár líkkistusmiðar. Þeð má nú segja, að siðan Guðjón byrjaði á þeim starfa liafi hann einn smíðað nær allar þær líkkistur, sem smíðaðar hafa verið í Vestmannaeyjum og þetta þykir svo sjálfsagt að góðvinir Guðjóns spyrja hann stundum í græskulausu gamni, hvort ekki sé rétt að hann fari að „taka málið“ af þessum eða hinum, sem eru eitthvað deufir eða i slæmu skapi og það stendur ekki á svarinu hjá Guðjóni, þvi að hann er mjög kátur og skemmtilegur. Guðjón er einn af stofnendum Iðnaðarmannafé- lags Vestmannaeyja og liefur reynzt hinn traust- asti félagsmaður, enda var hann gerður heiðurs- félagi þess þegar hann varð sjötugur. Til lukku með afmælið, Guðjön! llar. Eiriksson. 53

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.