Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1945, Page 20
Tímarit Iðnaðarmanna 3. XVIII 1945
Jón Sigurðsson
trésmíðameistari á Akranesi sjötíu og fimm ára.
Þann 10. maí 1945
voru 75 ár liðin frú
fæðingu i)essa ágæta
smiðs.
Sá er þessar línur
ritar mun eigi dyelja
við að rekja ætt háns
eða uppruna, heldur
getii þess, hver hann
er.
A þroskaárum Jóns
var iðnnám ekki tii
svo teljandi væri á
landi hér, þó ein-
stöku menn tækju
smiðanema, einkum í Reykjavík.
Þá mun hitt hafa verið tíðara, að náttúruhagir
menn öfluðu sér áhalda og hó'fu sitt æfistarf án
verulegrar tilsagnar lærðra fagmanna, enda voru
þeir ekki á hverju strái. Svo mun einnig hafa ver-
ið með þennan heiðursmann. Þó dvaldi hann tvo
vetur hjá Jakobi Sveinssyni trésmíðameistara í
Reykjavík og tók hjá honum sveinspróf árið 1894.
Hér á Akranesi hefur Jón Sigurðsson dvalið i
55 ár og á þeim langa tíma byggi fjölda liúsa bæði
hér, í Borgarnesi og um allt Borgarfjarðarhérað.
Auk húsasmíðanna hefur Jón smiðað allskonar
húsgögn.
Á þeim árum er hann stóð í mestum bygginga-
framkvæmdum varð trésmiðurinn að vera fjölhæf-
ur ef vel átti að fara, hann varð að smiða, múra,
mála, veggfóðra o. s. frv., en það get ég undir-
strykað, að ég hefi með engum eða fáum unnið,
er eins vel kunni tökin á öllu því er laut að bygg-
ingu hverskonar húsa og húsgágna, allt frá grunn-
hleðslu húss að gljáfægingu harðviðarhúsgagna. Og
honum lætur jafn vel járnsmíði, t. d. smíði alls-
konar trésmíðaáhalda.
í fáum orðum sagt, öll verk Jóns Sigurðssonar
bera á sér einkenni snillimennsku og afburða
hagleiks, ásamt trúmennsku og útsjónar í meðferð
þess efnis, sem hann mótar í hvert sinn.
Jón hefir útskrifað nokkra húsasmiði, auk þess
armanncfélags Akraness, og ein styrkasta stoð þess
fram á þennan dag. Jlann starfaði mörg ár í verð-
lagsnefnd félagsins vel og trúlega sem annarsstað-
ar. Ávallt er hann hvetjandi til hverskonar dáða
og drengskapar i félagsskap iðnaðarmanna. Hann
54
er aldursforseti Iðnaðarmannafélags Akraness og
ber j)ann lieiðurstitil með mestu prýði.
Jón Sigurðsson er mjög fróðleiksfús og leitandi
maður, les öllum stundum, ef hann ekki smíðar.
Hann hcfur fallega rithönd, er hann heldur enn,
þó sjónin sé heldur farin að daprast. Þá er hann
söngelskur og hefur sjálfur lært að leika á orgel
án nokkurrar tilsagnar.
Jón hefir útskrifað nokkra húsasmiði, auk þess
sem allir hafa getað af honum lært.
Stjórn félgsins og allir iðnaðarmenn á Akranesi
óska þessum mikla iðnaðarmanni og góða félaga
hjartanlega til lukku og blessunar i tilefni af af-
mælinu. Við fengum ekki að hafa hann meðal okk-
ar á afmælisdaginn, hann dvaldi þann dag á heim-
ilum dætra sinna i Reykjavík.
Kona Jóns er Sigriður Lárusdóttir fyrrum Ijósm.,
hin ágætasta kona. Þau eiga þrjú börn, einn son
og þrjár dætur, öll vel gefin. Dæturnar eru bú-
settar i Reykjavík, en sonurinn á Akranesi.
Aldurinn ber Jón Sigurðsson vel, hann starfar
án afláts á vinnustofu sinni og hefur oft lengri
vinnudag en þeir sem yngri eru.
Vonandi á hann enn eftir að láta frá sér fara
marga fallega og vel gerð hluti, sem talandi vitni
um afburðahagleik og snilli liuga og handar þessa
prúða og ágæta iðnaðarmanns.
Jóh. Guffnason.
Frá Félagi veggfóðrara í Reykjavík.
Á aðalfundi Meistarafélags veggfóðrara i Reykja-
vík, sem haldinn var 8. febr. s.l., var endanlega
gengið frá sameiningu Veggfóðrarafélags Reykja-
vikur og Meistarafélagsins, eftir að samningar höfðu
farið fram um málið.
Þar voru ný lög samþykkt fyrir félagið og þvi
gefið nafnið: Félag veggfóðrara í Ileykjavík.
Félagar eru nú alls 21, voru 5 meðlimir í Vegg-
fóðrarafélagi Reykjavíkur og 10 i Meistarafélagi
veggfóðrara í Reykjavík.
Ákveðið var að hið nýja félag yrði i Landssam-
bandi iðnaðarmanna.
Stjórn félagsins ski])a þessir menn: Guðjón Björns-
son, formaður, Ólafur Guðmundsson, varaform.,
Þorbergur Guðlaugsson, ritari, Jóhannes Björnsson,
gjaldkeri, Friðrik Sigurðsson, meðstjórnandi.
Stjórn Iðnráðs Akraness
skipa þessir menn:
Formaður Finnur Árnason, húsasm.m. Meðstjórn-
endur: Þorgeir Jósepsson, vélvirkjam. og Böðvar
Jónsson, skósm.m. Iðnaðarmannafélagið kýs einn
fulltrúa í ráðið.