Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1948, Blaðsíða 30
Iðnaðarritið 5. - 6. XXI. 1948.
/
Formaöur F. 1. I. Kristján Jóh. Kristjánsson ávarpar sýningargesti aö kynnisförinni lokinni.
Framháld af bls. 57:
viðundandi húsnæði, í heldur viðkunnanlegt og
þægilegt húsnæði á Laugaveg 10, sem mun þó
aðdíkindum reynast ófullnægjandi áður en langt
um líður, ef starfsemi félagsins vex jafn ört og
verið hefir s.l. ár.
ÁLYKTANIR FUNDARINS.
Svohljóðandi ályktun var samþykkt í einu
hljóði:
„Aðalfundur Félags íslenzkra iðnrekenda hald-
inn í Oddfellow fimmtudaginn 29. apríl 1948
leggur til, að stjórn félagsins beiti sér fyrir eftir-
farandi:
1. Að hraðað verði nauðsynlegri endurskoð-
un og breytingum á iðnaðarlöggjöf landsins í
anda þess frumvarps, er Gísli Jónsson flutti á
síðastl. Alþingi og sem þá var vísað frá með
rökstuddri dagskrá.
2. Að fulltrúar kjörnir af iðnaðinum sjálfum
sitji í nefndum þeim, er gera áætlun um þjóðar-
búskapinn og innflutning til landsins.
3. Að áætlun um innflutning til landsins sé
sniðin með hliðsjón af, hvaða störf innlendi iðn-
aðurinn geti innt af hendi, og hverjar þarfir hann
geti uppfyllt.
4. Að iðnaðurinn fái með nægilegum fyrir-
vara innflutning á efnivörum þeim, sem nauð-
synlegar eru til þeirrar iðnaðarframleiðslu, er
hagkvæmt þykir að reka í landinu.
5. Að ekki sé að nauðsynjalausu og að ó-
rannsökuðu máli stofnað til nýrra iðnaðarfyrir-
tækja í þeim greinum, þar sem innlendar verk-
smiðjur, sem þegar eru fyrir, geta langsamlega
fullnægt öllum þörfum um ófyrirsjáanlega fram-
tíð. Fundurinn vill enfremur taka það skýrt
fram, að Félag íslenzkra iðnrekenda er reiðu-
búið til að taka höndum saman við alla iðnaðar-
menn í landinu, svo og aðra framleiðendur, um
að vinna að sem heppilegustum framgangi nauð-
synjamála iðnaðarins, svo að hlutverk hans í
þjóðarbúskapnum geti orðið sem happadrýgst
fyrir þjóðfélagsheildina."
STJÓRNARKOSNING.
Formaður var endurkjörinn, Kristján Jóh.
Kristjánsson, og meðstjórnendur Bjarni Péturs-
son og H. J. Hólmjárn. I varastjórn voru kjörnir
Sveinbjörn Jónsson og Sveinn B. Valfells. Fyrir
voru í stjórninni Halldóra Björnsdóttir og Sig.
Waage.
72