Vikan - 07.08.1952, Blaðsíða 3
VIKAN, nr. 30, 1952
3
S.Í.S. jimrntugt.
Því hefur verið haldið fram, að rekja megi rætur
að stofnun Sambandskaupfélags Þingeyinga í febr.
1902 til þess, þegar Skúli fógeti var innanbúðar hjá
dönskum á Húsavík og neitaði að svíkja mál og vog.
Þetta er eflaust rétt, því að þar með hófst barátta
Skúla gegn einokuninni, og þá baráttu háði hann
al!a sína tíð. Hann bjó síðan í haginn fyrir hina
innlendu kaupmenn, t. d. Bjarna riddara Sívertsen
í Hafnarfirði, og á seinasta fjórðungi 19. aldar taka
menn að mynda með sér verzlunarsamtök, sem líkt-
ust frekast hlutafélögum að formi: Gránufélagið og
Borðeyrarfélagið. En þessi samtök börðust í bökkum.
Þá var stofnað Kaupfélag Þingeyinga 1881—82. Því
tókst að ná hagfelldum viðskiptum við Zöllnar nokk-
urn í Newcastle, sem veitti þeim mikinn styrk. I
febr. 1902 komu svo saman í Yztafelli fulltrúar
Kaupfélags Þingeyinga, Kaupfélags N-Þingeyinga og
Kaupfélags Svalberðinga og stofnað var Sambands-
kaupfélag Þingeyinga og þar með var myndaður vísir
að SlS vorra daga, og við þennan atburð miðar það
afmæli sitt, þótt það hlyti ekki sitt núverandi nafn
fyrr en 1910. Veldi þessara samtaka eflist svo með
ári hverju. Upphaflega var starfssvið bundið við
verzlunina, síðan er farið að hyggja á önnur mið, sem
að vísu eru nátengd verzluninni, verksmiðjur eru
reistar til að vinna úr hráefnunum, skip keypt, o. fl.
Félagatalan hækkar ört, og nú eru 21.27% lands-
manna félagsbundnir, en kaupfélögin 55 að tölu.
Veltan 1951 nam 390 millj. króna. Út voru flutt
86.1% allra landbúnaðarafurða, 15.1% alls freðfisks,
8.6% alls saltfisks, en inn var flutt t. d. helmingur
alls rúgmjöls og haframjöls, ca. 35% alls hveitis og
sykurs. Skip Sambandsins eru nú þrjú: Arnarfell,
Jökulfell og Hvassafell, og tvö bætast við á næstu
árum. Það rekur sína eigin bókaútgáfu (Norðri), sitt
eigið blað. Einnig véla- og bifreiðaverkstæði.
Iðnaðarframkvæmdir þess eru þó sízt ómerkastar:
Ullarverksmiðjan Gefjun, Skinnaverksmiðjan Iðunn,
Fataverksmiðjan Hekla, Sápuverksmiðjan Sjöfn. Og
hér byrtast nokkrar myndir af þeirri starfsemi Sam-
bandsins.
Prjónasilki ofið.
Kembivélasamstæða í Gefjun.
Sólaleður pressað í Iðunni.
Karfi reyktur í reykhúsi Sambandsins í Rvík.