Vikan


Vikan - 14.08.1952, Qupperneq 9

Vikan - 14.08.1952, Qupperneq 9
VIKAN, nr. 31, 1952 9 Taft beið að vísu ósigur fyrir Eisenhower á flokksþingi repu- blikana, en hann er sem fyrr valdamikill maður í flokki þeirra. Það þykir spá góðu fyrir Eisen- hower i forsetakosningunum í haust, að Taft, sem hér situr að snæðingi, hefur heitið honum al- gerum stuðningi sínum. FRÉTTAMYNDIR Nú er Estes Kefauver, sem er á þessari mynd ásamt föður sínum, ,,kom- inn úr umferð", ef svo mætti orða það. Eins og kunnugt er, fékk hann ekki demokrata til að velja sig sem forsetaefni þeirra, þrátt fyrir harð- vítuga baráttu og áróður. Mary Bernadette Doyle er ein af 15 kommúnistum, sem haldið hefur verið í fangelsi í Los Ang- eles, meðan lögfræðingar þeirra hafa reynt að fá tryggingargjald þeirra lækkað. Hún sést hér á myndinni þegar hún kom úr fang- elsinu í hjólastólnum sínum. Leið • toga kommúnistaflokksins var sleppt vegna alvarlegrar hjarta- bilunar. Lögreglan í New York hefur áhyggjur vegna hins einkennilega hvarfs frú Mavis Chaffey Ramus, 32 ára, sem er erfingi að búgarði í Kanada. í>ar sem hún hefur stundað listnám, síðan hún skildi við mann sinn fyrir einu ári, hefur hún búið i listamannahverfi New Yorkborgar. Hún borðaði með vinum sínum fyrir nokkrum vik- i:m og hefur ekki sézt síðan hún kvaddi þau og ætlaði heim. Fyrr- verandi maður' hennar er lista- verkasali. Þau eiga fjögurra ára gamlan son. James Fox, leynilögreglumaður faldi andlit sitt eftir að sannað var á hann að hann væri þátttak- andi í innbrotum. Leynilögreglu- maðurinn var handtekinn ásamt þrem félögum sínurn, eftir þrjár árangurslausar tilraunir til að brjótast inn í íbúðir i New York. Álitið er að þeir séu i sambandi við þjófafélag, sem stelur skinnum og gimsteinum. Anna Jitla gat eltki farið í sirkusinn, af því hún varð fyrir bíl og var flutt á sjúkrahús með brotinn fótinn og meidd á höfði. Trúðurinn lék því sinn hluta af sýningunni við rúmstokkinn hennar. Á myndinni er liún að rannsalía hvort nefið á honum sé ófalsað.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.