Vikan - 03.09.1953, Blaðsíða 15
POSTURINN
Framhald aj bls. 2.
1. Hvað verð ég að vera gamall,
til þess að lœra að fljúga?
2. Hvert á ég að snúa mér, ef ég
œtla að lœra það?
3. Hvað kostar tíminn ?
j SIS
Svar: Þú skalt snúa þér til „Flug-
skólans Þytur“ á Reykjavíkurflug-
velli (simi 80880). Lágmarksaldur til
að læra að fljúga einn er 17 ára, til
að læra að fljúga með farþega án
endurgjalds þarf nemandi að vera 18
ára og 19 ára áður en hann getur
orðið farþegaflugmaður.
Flugtíminn kostar 180 kr. með
kennara, en eftir að nemandi hefur
lokið A-prófi, getur hann flogið
kennaralaus og þá lækkar gjaldið
niður i 150 kr. á klukkutímann.
1. Hvað kostar Viðskiptaskráin?
2. Hvar á að panta liana?
3. Er ekki til íþróttablað hér á
Jslandi, sem heitir Sportblaðið? Ef
svo er, hvar hefur það þá aðsetur
sitt ?
R.A.S.T. 860
Svar Viðskiptaskráin kostar 75 kr.
og fæst í Steindórsprent í Tjarnar-
götu 4.
Sportblaðið hefur fengizt í bóka-
verzluninni „Bækur og ritföng", en
nú hefur það ekki sést lengi.
Véismiðja Hafnarfjarðar
STRANDGÖTU 50, SÍMI 9145. HAFNARFIRÐI.
RENNISMÍÐI
PLÖTUSMÍÐI
ELDSMÍÐI
LOGSUÐA'
RAFSUÐA
MÁLMSTEYPA.
Höfum fyrirliggjandi:
HARÐFISKBINDIVÉLAR
ÞURRKHÚSATRILLUR
TUNNUHÍFINGAR
Framkvæmum hvers konar járnsmíöi, véla- og
skipaviðgeröir.
ÁHERSLA LÖGÐ Á VANDAÐA VINNU.
Nýkomið í rafkerfi
flestra teg. amerískra bUa:
Viftureimar
Kveikjuhamrar
Kveikjulok
Kveikjuplatínur
Mótstöður fyrir Ford-
háspennukefli.
Kveikjuþéttar í flestar teg.
bíla.
Dynamóþéttar í flestar
teg. bíla.
Truflanadeyfar á kertin.
Öryggi, ýmsar stærðir.
Bílaleiðslur, plastic.
Geymasambönd, margar
gerðir.
Reimskífur á flestar teg.
Dýnamóa o. m. fl.
Góðar vörur og ódýrar.
Bílaraftækjaverzlun
Haifdórs Ólafssonar
Rauðarárstíg 20. Sími 4775.
AÐALFUNDUR
verður haldinn í Loftleiðum h.f., fimmtudag-
inn 15. okt. n. k. klukkan 2 e. h. í Tjarnarkaffi.
FUNDAREFNI:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Afhending aðgöngumiða og atkváeðaseðla
fer fram í skrifstofu félagsins, Lækjargötu 2,
dagana 12. og 13. október.
STJÓRNIN
„VELOX“ pappír
tfyggif góðar myndir
Leikni yðar við ljósmyndatöku er dæmd eftir eintök-
unum, sem þér sýnið. Gætið þess því, að tryggja góð-
an árangur með því að biðja um ,,Velox“-pappír. Hann
er framleiddur í ýmsum gerðum, til að fullnægja öllum
þörfum.
Gætið að nafninu „Velox“ aftan á sérhverju mynda-
eintaki.
er KODAK framleiðsla
Einkaumboðsmenn fyrir KODAK Ltd.:
Verzlun Hans Petersen
Bankastrœti Jf. Reykjavík.
„Velox“pappír
15