Vikan - 15.07.1954, Side 15
Heim i síðdegiste
Framhald
húninn. — Má ég koma inn, Rose-
mary? í>að var Philip.
— Auðvitað.
— Ö, afsakið, sagði hann þegar
hann birtist í dyrunum.
— Það gerir ekkert til, svaraði^
Rosemary brosandi. — Þetta er vin-
kona min, ungfrú . . .
— Smith . . . sagði illa klædda stúlk-
an, en röddin var róleg og djarfleg.
— Auðvitað, sagði Philip og kom
auga á hattinn og kápuna, sem enn
lágu á gólfinu. — Það er andstyggi-
legt veður, sagði hann svo og brosti
elskulega. —Viltu koma snöggvast
inn í bókaherbergið, Rosemary, ef
ungfrú Smith vill afsaka okkur?
Stór augu störðu á hann, en Rose-
mary varð fyrir svörum. — Auðvitað
vill hún það. Og svo fóru þau fram.
—- Hvað á þetta að þýða? spurði
Philip, þegar þau voru orðin ein.
Rosemary hló og hallaði sér upp
að hurðinni. — Ég fann hana í Cur-
zon Street. Hún bað um peninga fyr-
ir tebolla og ég kom með hana heim.
Ég ætla að reynast henni vel og vera
góð við hana . . .
— En kæra barn, þú ert ekki al-
mennileg! Svona lagað gerir maður
ekki.
—- Eg vissi að þú mundir segja
þetta, svaraði Rosemary. — En hvers
vegna ekki? Maður er alltaf að lesa
um það. Ég er búin að álcveða . . .
— J-á, sagði Philip hægt og skar
af bls. 7.
endann af vindlinum sínum. — Hún
er aðdáanlega falleg . . .
— Falleg ? Rosemary varð svo
undrandi að hún roðnaði. — Finnst
þér það? Það datt mér ekki í hug.
— Hamingjan góða! Philip kveikti
á eldspýtu. Hún er blátt áfram yndis-
leg. Ég varð alveg orðlaus, þegar
ég sá hana. Ég held að þér hafi mis-
sýnzt hrapalega. Afsakaðu, ef ég er
dónalegur, en láttu mig vita ef ung-
frú Smith borðar kvöldverð hérna,
svo ég ! geti flett upp í „Dagblaði
Hattakvenna!"
— Viðbjóðslegi asni, sagði Rose-
mary og fór. En hún fór ekki beint
upp í svefnherbergið, heldur settist
niður við skrifborðið í litlu stofunni.
Falleg! Blátt áfram, yndisleg! Orð-
laus! Hjarta hennar tók kipp og hún
greip ávísanaheftið. Æ-nei, ávísun
væri víst ekki hentug. Svo opnaði hún
skúffuna og tók upp úr henni fimm
eins punda seðla, leit á þá, lagði tvo
þeirra aftur niður í skúffuna og gekk
upp í svefnherbergið.
Þegar Rosemary kom niður í bóka-
safnið hálftíma seinna, sat Philip þar
enn. — Ég ætla bara að segja þér . . .
hún horfði íbyggin og með geislandi
augnaráði á hann, — að ungfrú
Smith borðar ekki með okkur.
Philip lagði frá sér blaðið. — Hvað
kom fyrir? Var hún vant við látin?
Rosemary settist í kjöltu hans. —
Hún vildi endilega fara, svo ég gaf
litla greyinu nokkur pund. Ég gat
þó ekki haldið í hana, fyrst hún vildi
það ekki. Rosemary var nýbúin að
snyrta sig og setja á sig perlufesti.
Nú tók hún um höfuð Philips. ■— Þyk-
ir þér vænt um mig? spurði hún og
djúpa röddin hafði sin áhrif.
-—- Mér þykir óumræðilega vænt
um þig, sagði liann og þrýsti henni
að sér. — Kysstu mig.
Nú varð stutt þögn. Svo sagði
Rosemary dreymandi. — Ég sá dá-
samlega fallega öskju í dag. Hún
kostaði tuttugu og átta gineur. Má
ég kaupa hana ?
— Já, það máttu, litli eyðslusegg-
urinn minn!
En það var ekki þetta sem Rose-
mary lá á hjarta.
— Philip, hvislaði hún og faldi and-
litið við barm hans. — Er ég falleg?
Drottning villimannanna
Framh. af bls. 11.
Fljótið Chindwin var í 200 mílna
fjarlægð!
Þegar innrás Japana hafði verið
hrundið og ósigur þeirra var fyrirsjá-
anlegur, gengu þau í hjónaband, Urs-
ula og majórinn. En þetta var ekki
nóg í augum höfðingja Naga-kyn-
flokksins. Rétt til þess að vera viss
um, að hnúturinn væri nógu traustur,
rændi hann brúðhjónunum, gifti þau
að hætti hinna innfæddu og efndi til
36 klukkustunda brúðkaupsveizlu. Að
því loknu veitti hann þeim blessun
sína og sendi þau burtu.
Brezka stjórnin vottaði Ursulu
þakklæti sitt í stríðslok. Þá barst
henni dag nokkurn stórt umslag með
mörgum opinberum stimplum og inn-
siglum. 1 þvi voru hvorki meira né
minna en fimm heiðursmerki.
Ég spurði drottninguna fyrrver-
andi, hvort hún hefði nokkur heilræði
að gefa ungum stúlkum, sem langaði
að upplifa ævintýri.
„Amma var vön að segja: Ef þú
hefur áhyggjur af því, hvað fólk
kunni að segja um þig, þá muntu
alltaf hjakka í sama farinu. Svo ég
hef forðast slíkar áhyggjur," svar-
aði hún.
— FRANCIS FLYTTON.
MUNIÐ
NDRA MAGASIN
‘ENGLISH ELECTRIC
HEIMILISTÆKI
hafa á undanförnum áratugum
sannað svo ágæti sitt, að vart
verður á betra kosið.
Meðfylgjahdi myndir gefa að
líta þær heimilisvélar, er vér
eigum að staðaldri fyrirliggj-
andi:
Gjörið svo vel að skoða hjá
okkur:
KÆLISKÁP A
ÞVOTTAVÉLAR
STRAUVÉLAR
HRÆRIVÉLAR
LAUGAVEG 166
15