Vikan - 28.06.1956, Page 14
H EIMILIÐ
RITSTJÓRI: ELÍN PALMADÓTTIR
HÉR ER TÆKÍFÆRI TIL AÐ
„SVINDLA“ DALÍTIÐ
Kinnaroða er hægt á kaupa í hverri
snyrtivöruve'rzlun, og ef þér eruð fölar
í kinnum, ættuð þér að notfæra yður það
— en það er mikilvægt að gera það á
réttan hátt.
Þeir tímar eru nú löngu liðnir, þegar
það þótti fallegt að vera fölur í andliti.
Nú á dögum vildu margar konur gefa
mikið fyrir að hafa eðlilega rjóðar kinnar,
en því miður eiga ekki nema fáar því láni
að fagna. Kinnalit er nú hægt að fá í
þrennskonar ástandi: duft í dósum, krem
í krukkum, og lög í glösum, — og hvers
vegna þá ekki að „svindla“ svolítið.
Það er nokkurn veginn sama hvers kon-
ar roði er notaður, ef aðeins liturinn er
réttur, en þess bera að geta, að fljótandi
roði, sem annars er svolítið erfiður viður-
eignar fyrir viðvaninga, er borinn strax
á hreina húðina, en krem-roði er borinn á
á eftir dagkreminu (og á undan púðrinu).
Þurri roðinn er aftur á móti borinn yfir
púðrið. Hvaða tegund sem þér notið, skul-
uð þér ávallt nota hana með hinni mestu
varúð og vandvirkni. Það er hreint og
beint sorglegt að sjá kinnaroða misnot-
aðan. Ef að þér hafið „normál andlitslög-
un“, á kinnaroðinn að vera borinn á þar
sem eðlilegur roði kemur fram. Sláið létt
á kinnarnar og þar sem roði kemur fram,
skal kinnaroðinn borinn á. Það er ósköp
auðvelt.
Ef að þér hafið langt, lítiö andlit, sem
þér viljið gjarnan láta sýnast svolítið
breiðara, þarf meiri vandvirkni við og skal
bera roðann á hákinnbeinið og dreifa síðan
úr honum út til eyrnanna. Látið hánn um
fram allt ekki koma nálægt nefinu, en
vera mestan undir augunum og yzt á kinn-
beinunum. Örlítill roði á hökunni og eyrn-
arsneplunum styttir andlitið. Ef að and-
litið er of breitt, er roðinn settur á nær
nösunum, í þríhyrning, með eitt hornið
beint niður. Auðvitað er ekki ætlunin, að
þetta sé nákvæmlega afmarkaður þrí-
hyrningur, en aðeins eitthvað í þá átt-
ina! Gætið þess, að mörkin sjáist ekki,
heldur smádofni.
Ef að langt er á milli augnanna, má
bæta svolítið úr því, með því að setja ör-
lítinn lit innst í augnakrókinn, en ekki er
ráðlegt að nota þetta bragð nema við ljós.
Á kvöldin er alveg óhætt að auka svolít-
ið kinnaroðann.
En það er kannski þess virði að bæta
því við, að jafnvel þótt hægt sé svona auð-
veldlega að fá „roða“ í kinnarnar, má
engan veginn draga úr útiverunni! Litur-
inn er og verður ailtaf hjálparmeðal, sem
aldrei kemur til með að standa jafnhliða
hinum sanna roða, sem á upptök sín í heil-
brigði. ' _ i !
GÓMSÆT OG FALLEG
Atta-laga terta.
Skeinmtileg tilbreytni í tertu-uppskrift.
1 bolli smjör eða smjörlíki. 1 bolli sykur.
Fjögnr egg. 2 bollar sáldrað hveiti. 1
peli súrmjólk. 1 bolli möndlur, smátt
skornar. 1 teskeið vanilla. Þrennskonar
(mislitt) aldinmauk. Ofnhiti: 350. Bök-
unartími: ca. 12 mín. Biðtími: yfir nótt.
Tvær plötur ósætt súkkulaði, brætt. 1
matsk. srrrör. % bolli mjólk. Suðutími:
þrjár mínÚLar. Ca. 2 bollar flórsykur.
% tesk. vanilla.
Smjörið (smjörl.) hrært í skál þar til það
er létt og ljóst. Sykrinum blandað í smátt
og smátt. Eggjarauðurnar, ein og ein, settar
í, og síðan hveitið. Eggjahvíturnar stífþeytt-
ar og blandað varlega saman við deigið.
Kringlótt tertumót smurð. Deiginu smurt
þunnt þar i, og bakað þar til brúnirnar eru
orðnar Ijósbrúnar Tekið varlega úr mótun-
um. Endurtekið þar til átta lög eru bökuð.
Þrem matsk. af rauðu aldinmauki er smurt
á neðsta lagið. Nú er súrmjólkinni, möndlun-
um og vanillunni blandað saman í skál. Þess-
ari blöndu er smurt yfir aldinmaukið á neðsta
laginu. Síðan eru hin lögin sett ofan á og
aldinmauki (sitt með hverjum lit) og möndlu-
blöndu smurt á milli. Þá er málmpappír sett-
ur yfir kökuna og eitthvað þungt (þykk bók
eða þ.u.l.) þar á ofan og látið bíða til næsta
dags. Þá eru brúnirnar jafnaðar með beittum
hníf. Svo er kringlóttur biti, ca. 7 V2 cm. í
þvermál, skorinn úr miðri kökunni, og tek-
inn varlega í burtu, lítilli skál af sömu stærð
komið fyrir í hans stað og bitinn siðan sett-
ur ofan á skálina
Kremið: Súkkulaðið, smjörið og mjólkin
sett í pott og hitað þar til súkkul. er bráðið.
Látið bíða um stund. Flórsykur hrærður út
í þar til komið er nógu þykkt til að smyrja
því á. Vanillu bætt í. Smurt yfir alla kök-
una, og hún skreytt með möndlum. Látin
kólna og síðan sett á kökufatið og borið fram.
SVERTINGJASTRAKUR
HANDA LITLA ANGANUM
SAMVISKUSPURNINGAR
Hér eru nokkrar spumingar, sem Dr. Ben-
der, enskur sálfræðingur, hefur tekið saman
og ráðleggur ykkur að svara í einrúmi. Ver-
ið nú hreinskilnar!
1. Áttu erfitt með að halda uppi samræð-
um við eiginkonur þeirra manna, sem mað-
urinn þinn á í viðskiptum við, þegar þið
þurfið að bjóða þeim heim?
2. Hefur þú enga trú á því, að maðurinn
þinn hafi hæfileika til að komast í hærri
launaf lokk ?
3. Reiðist þú, þegar maðurinn þinn þarf
að vinna eftirvinnu?
4. Eruð þið oft ósammála og æst við morg-
unverðarborðið ?
5. Óskar þú þess stimdum, að maðurinn
þinn væri ekki alveg eins ástúðlegur og
hann er ?
6. Reynirðu að komast hjá því að vera
kosin í nefndir eða taka að þér trúnaðar-
stöður fyrir samfélagsfólk þítt?
7. Hefur þú verið að minna manninn þinn
á það síðustu mánuði, að hann verði að
reyna að fá hækkun á launum?
8. Finnst þér að starf mannsins þíns komi
þér ekkert við?
9. Myndir þú mótmæla, ef félagið, sem
maðurinn þirm vinnur hjá, vildi flytja hann
á annan stað til þess að taka að sér ábyrgð-
armeiri stöðu ?
10. Er fjárhagurinn oft í öngþveiti vegna
þess að þú gerir enga áætlun um innkaup?
Ef þú hefur svarað þremur eða fleiri af
þessrnn spurningum játandi, þarftu áreiðan-
lega að taka þig á að einhverju leyti.
Væri ekki gaman að geta útbúið sjálf
uppáhaldsbrúðu handa baminu, sem það
helzt kýs að sofna með á kvöldin? Þér
getið sjálfar búið hana til úr ullargarns-
afgöngum, svona:
I brúðu, sem er ca. 35 cm. á hæð, þarf
fjórþætt ullargarn og tilsvarandi prjóna,
svo að 12 lykkjur verði 5 cm. á breiddina.
Og litirnir: ca. 30 gr. af svörtu eða dökk
bláu í höfuðið, 30 gr. af rauðu í jakkann,
30 gr. í ljósblátt í buxurnar og svolítið
hvítt. Bakið: Byrjið á jakkanum að neðan
og fitjið upp 30 lykkjur á prjóna nr. 3%.
Prjónið garðaprjón. 1. prjónn: réttur, 2.
prjónn: 2 réttar, 2 saman, síðan réttar
þar til 4 eru eftir, þá 2 saman og 2 réttar.
Þessir tveir prjónar eru endurteknir 4
sinnum, og nú eru 20 lykkjur eftir á prjón-
inum. Þær eru geymdar á aukaprjóni.
Fitjið upp 10 lykkjur fyrir hvorn fót með
svörtu eða dökk bláu, prjónið 12 prjóna
rétta, takið síðan ljósblátt gam og prjón-
ið 48 rétta prjóna. Svona eru báðir fæt-
ur prjónaðir hvor fyrir sig. Sðan eru 20
lykkjurnar teknar á sama prjón og prjón-
Framhald á bls. 18.
14