Vikan


Vikan - 12.03.1959, Síða 5

Vikan - 12.03.1959, Síða 5
HVER FELLUR Á LANDSPRÓFI? Fell ég í vor? Landprófsnemandi skrifar þeett- inum langt bréf. Hann vill fá aö vita, hvort hann standist lands- próf 3. bekkjar í vor, eða hvort hann muni falla. Hann lýsir náms- gáfum sínum og áhugamálum, en fjölyrðir auk þess um landsprófið og tilhögun námsins. Bréfið er of langt til að birtast hér, enda virðist okkur æskilegra fyrir höf- undinn að bíða með dóm sinn um landsprófið, þangað til hann hefir lokið því og getur litið rólega yfir farinn veg. Hann lýkur bréf- inu með þessum orðum: „Eftir þessa lýsingu á sjálfum mér og námsgáfum mínum, éins og þær koma mér fyrir sjónir, langar mig til að biðja þig að segja mér, hvort þú telur likur til að ég nái prófinu í vor. Margir eiga víst ekkert framundan nema fallið. Er ég einn i þeirra hópi?“ Kæri landsprófsnemandi, við sendum bréf þitt til skólasérfræð- ings þáttarins og hann setti raf- eindaheilann í gang og reiknaði út líkur þínar í eftirfarandi töflu. Þú verður sjálfur að ákveða þann flokk, sem þér finnst þú eiga heima í. Taflan miðast við náms- kröfur til landsprófs síðastliðin 9 ár. 1 samræmi við bréf þitt köll- um við „fall“, ef einkunn nær ekki 6. TAFLA. um (jreindarþroska og námsárangur landsprófsnemenda árin 1950—1958 Greindar- Slök meðalgreind og lakari Meðalgreind í betra lagi Góð meðalgreind og betri Mjög góð greind Af burð agreind 50—60% hinna tornæmustu falla! Ef námsgáfur þínar eru í slöku meðallagi eða lakari, hefir þú ekki miklar líkur til að standast próf- ið. Eins og þú sérð af töflunni, falla 3 krakkar af hverjum 5 úr þeim hópi. Unglingar af þessu greindarstigi ráða ekki af eigin ramleik við námsefni landsprófs- deildar. Þeir, sem slampast í gegn, eiga það fyrst og fremst að þakka aukakennslu, sem foreldrar veita eða kosta handa þeim. Auk þess fljóta þeir á léttum minnisgrein- um, sem reyna lítið á skilning, en fá mjög lágar einkunnir í erf- iðum greinum eins og íslenzku og stærðfræði. Ef námsgáfur þínar losa vel meðallag, er hópur þinn aðeins öruggari: 57% falla, en ef þú visitala 76— 99 100—109 110—119 120—134 135—170 Hundraðshl. af heild ,,Fall“% 16 22 22 28 12 60 57 44 30 4 lendir með góðri og dágóðri greind falla aðeins 44%. Ef bekkur þinn er blandaður úr þessum tveimur hópum, verða likurnar fifty-fifty, eins og enskukennarinn þinn seg- ir. Nemendum af þessu greindar- stigi reynist námið erfitt, en þó viðráðanlegt, ef viljinn er einbeitt- ur og marksækinn. En hann má aldrei slaka á, aldrei láta glepj- ast af óskyldum hugðarefnum. Þá missir nemandinn þráðinn. Gerum ráð fyrir að þú sért i hópi hinna greindu, sem ráða vel við námsefnið. Þá ert þú samt ekki úr allri hættu. Af nemend- um meö mjög góðar námsgáfur fellur nœstum 3. hver maður á landsprófi 3. bekkjar í Rvik, en 5. hver maður í skólum út um land- ið. Nokkuð skortir á nákvæmni í Foreldrum og öðrum er vel- komið að skrifa þættinum og leita úrlausnar á þeim vaiula- málum er þeir kunna að stríða við. Höfundur þáttarins mun leitast við að leysa vandræði allra er til lians leita. ÖIl bréf sem þættinum eru send sloilum stíluð til Vik- unnar, pósthólf 149. Umslagið merkt: „Foreldraþáttur“. skýrslum um próf hinna síðar- nefndu og kann það að valda ein- hverju um mismuninn. En eflaust eiga glepjandi áhrif höfuðborgar- innar mikinn þátt í honum. Ungl- ingarnir finna til hæfileika sinna og álíta sér óhætt að taka lífið létt. Þeir vara sig hvorki á því, að skemmtanafíknin hefir sundr- andi áhrif á námsgetuna, né að námsefnið er flóknara og próf- kröfurnar strangari en þeir hafa áður vanizt. Ef þú ert i hópi þeirra unglinga, sem eru gæddir afburðagreind, þá máttu kallast öruggur með að standast prófið. Hinar miklu námsgáfur gera námið mjög auð- velt og tryggja sjálfkvæman á- huga. Samt ber það við, að af- burðagreindur nemandi fellur, en þá er mjög slæmum ytri aðstæð- um eða óhollum lífsvenjum um að kenna. Hins vegar verður mörgum hált á því að treysta á afburða- greind, sem hann hefir alls ekki. Er viljinn með í verki? Eins og þú sérð, kæri lands- prófsnemandi, er námsbraut þin ekki hættulaus. Margur ungling- ur leggur út á hana af lítilli fyr- irhyggju, sumir sárnauðugir, þó að þeir láti að orðum foreldra sinna. En ósk foreldra sprettur oft fremur af metnaði en fyrirhyggju. Þau lifa í góðri trú og vona að sonur þeirra eða dóttir lúki þessu eftirsótta prófi árekstralaust. Því miður verður raunin oft önn- ur. En hvað vilt þú sjálfur? Geng- ur þú að námsstarfinu með lifi og sál? Á því veltur allt. Ef þú hef- ir yndi af stærðfræði, íslenzku, ensku og sögu, ef þú kýst fremur að eyða stund yfir bók en í kvik- myndahúsi, knæpu eða dansleik, þá stenzt þú prófið, þó að þú hafir ekki nema góða meðalgreind. En ef verulega skortir á bæði náms- löngun og hœfileika þá er náms- áform þitt eins og rangt uppsett dœmi: útkoman hlýtur að verða skökk. Þetta er átakanleg, en þvi því miður óyggjandi staðreynd. Af þeim sem falla á landsprófi í Rvík setjast 25% í deildina næsta vetur. 70% þeirra ná prófi, flest með mjög lágri framhaldseinkunn, en 30% verða í annað sinn fyrir neðan þetta mark. Hjá sumum lækkar einkunin jafnvel frá fyrra vorinu. 1 hópi hinna tví- föllnu eru greindir unglingar í miklum meirihluta, en lággreind- ir unglingar njóta sín tiltölulega betur, þegar námstíminn tvöfald- ast. Dýrar fórnir. Kæri landspróf snemandi! Það kann að verða þér og jafnvel for- eldrum þinum nokkurt undrunar- efni, hve hár hundraðshluti mjög vel gefinna nemenda fellur. Það er býsna alvarlegt atriði, að fjöl- margir unglingar búnir glæsileg- um gáfum, bíða skipbrot í námi á einu viðkvæmasta þróunarskeiði ævinnar. Vonbrigði og beizkja eru æskunni óhollt veganesti. 1 vissum skilningi er hún líka tryggð hjá þjóðfélaginu; skakkaföll hennar lenda á því. Við mættum þvi vel hugleiða, hvort þessi blóðtaka sé óhjákvæmileg og hve lengi menn- ingarþjóðfélag þoli hana. Hvað veldur þessu misræmi milli hæfileika og árangurs? Á- stæðurnar eru eflaust margar. Is- lenzkur tíðarandi um miðja tutt- ugustu öld styður lítt að skóla- hollustu og ástundun í námi. Sú spurning er líka athygli verð, sem þú varpar fram i bréfi þínu, hvort námskröfur og námstilhögun landsprófsdeildarinnar séu þannig, að þær hamli því, að mjög góðar námsgáfur njóti sín til fulls. En úr henni verður ekki leyst með fá- um orðum. Þó er þetta víst: Því þrengra og ákveðnar sem náms- efni til landsprófs er afmarkað og því meir sem prófið er fólgið í upptalningu sundurlausra minn- isatriða, því minni verða líkurnar, að fjölhæfni háþróaðs gáfnafars fái notið sín til fulls. VIKAN 5

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.