Vikan


Vikan - 12.03.1959, Síða 19

Vikan - 12.03.1959, Síða 19
KALDUR MA'ÍUR Það er gamall og góður íslenzkur siður að bera fram kaldan mat. Hér áður fyrr var það mest allskonar súrsaður og reyktur matur, ennfremur harðfiskur, brauð, smjör og ostar. Nú hefur tilbúningur á súrsúð- um mat, því miöur, minnk- að til muna og jaínvel lagzt niður. Er það leitt, þar sem þetta er hollur og hand- hægur matur. Sérhverri húsmóður ætti að vera það kappsmál að bera allan mat snyrtilega og fallega fram, þannig að hversdagsmál'tíð- in gæti orðið að veizlumál- tið. Á síðari árum heíur komizt í tízku hið svokall- aða kalda borð. Of mörgum þykir lítið til þess koma, nema þar séu fram bornir allt að 20—30 réttir. Kem- ur þar, að því er virðist, helzt til greina hégóma- girnd fólks og samkeppni og metingur við náungann. Það getur verið þægilegt og gaman að útbúa kald- an mat fyrir góða gesti. Keynir þá oft á dugnað og smekkvísi húsmóðurinnar. En við eigum aldrei að bera fram einhver ósköp af mat, heldur hafa það, sem fram er borið, bragðgott og snyrtilegt. Varizt að of- hlaða matinn með skrauti, en berið hann þannig fram, að litir og samsetning njóti sin til fulls. Notið sem minnst af matarlit, því að hann er ekki talinn hollur, enda eru sjálf matvælin nógu litauðug. Oft þykir heppilegt að beia fram kaldan mat, þegar mörgu fólki er boðið, en vanhugsað er að bjóða svo mörgum, að ekki séu til sæti tyrir gestina. Helzt þarf að vera nægilegt til af bökkum og litlum borð- um, svo að vel geti farið um alla, meðan á máltið stendur. Yfirleitt er dýrara að bera fram kalda rétti en heita. Að vísu fer það mest eftir því, hvaða hrá- efni eru notuð í matinn. En köldu réttimir eru að þvi leyti þægilegri, að hægt er að undirbúa og jafnvel búa til flesta réttina daginn áð- ur og hafa þá að öllu leyti tilbúna á fötunum nokkru áður en gestirnir koma. Húsmóðirin þarf þá ekki að vera á þönum við matinn, einmitt þegar hún þarf að vera að taka á móti gestun- um. KALT BORÐ Lambslæri fyilt, Hangikjöt með grænertu- jafningi, Síld í sýrðum rjóma, Soðinn kaldur lax með piparrótarsósu, Fiskbúðingur í hlaupi, Egg með smjörtoppi, Avaxtasalat, Síldarsalat, Fisk- og rækjusalat, ' Bjúpnasalat. Hamborgarhryggur. Nál. l*/2 kg léttreyktur svínahryggur, nál. 6 dl vatn, 3 dl rauðvín, sykur, 50 g smjörUki, 50 g hveiti, rauðvínssoðið, 1 dl ribsberjasaft, sósulitur, sinnep. Skerið burt himnur og þvoið hrygginn. Eeggid hann í pott, og hellið sjóð- andi vatninu yfir ásamt rauðvíninu. Sjóöið hrygg- inn við vægan hita í nál. 45 mín. Færið hrygginn upp og leggið hann í ofnskúffu. Stráið þykku lagi af púð- ursykri ofan á hrygginn og hellið ögn af soði í skúff- una. Setjið hann i heitan ofn (meiri yfirhiti) og látið sykurinn brúnast í um 20 mín. Búið til brúna sósu og bragðbætið með ribsberja- saft og sinnepi. Berið fram með soðnum kartöflmn og grænmeti. Skerið kjötið í þunnar sneiðar og raðið þeim á fat. Lambslæri, fyllt 1 lambslæri eða nál. 2 kg af iæri, 100 g sveskjur, 30 g þurrkuð epU, 2 tsk. salt, y4 tsk. pipar, 50 g hveiti, 50 g smjörlfki, stcikarsoð, pipar, Salt. Hreinsið kjötið til steik- arinnar og takið beinið úr lærinu. Sjóðið sveskjur, svo að steinarnir náist úr, en bieytið epUn. Leggið stein- lausar sveskjur og epli inn i lærið ásamt salti og pip- ar. Saumið lærið saman, núið það með salti og steik- ið og sjóðið. Búið til brúna soðsósu. Berið lærið fram heilt eða skerið það í sneið- ar. Berið soðnar sveskjur, epli og grænmeti með. Að taka bein úr læri. Lát- ið innri hlið lærisins snúa upp. Byrj.ð á því að skera kjötið frá mjaðmarauganu, þannig að það lcsni úr án þess að gat komi á ytri hliö lærisins. Skerið síðan niður eftir hnútunni og leggnum, og fláið kjötið frá beininu. Síðast er hnéskelin skorin í burtu. Látið sem minnst kjöt fylgja beinimum. Vöðv- amir eiga að vera heillegir og lærið alveg heilt að utan. Nú er lærið ýmist fyllt eða þá vöðvamir eru skornir heillega út og þeir síðan notaðir í ýmsa kjöt- rétti. Þegar lærið er mat- búið, i heilu lagi, þykir mörgum betra að matbúa það með betnunum. Kjötið verður þá bragðbetra. Hangikjöt með grænertu- jafningi. Sjóðið læri í heilu lagi eða sagið kjötið simdur í stóra bita. Setjið það yfir í sjóð- andi vatn, saltið örlítið, ef þarf, og látið það sjóða hægt, þangað til það er meyrt. Sneiðið soðið hangikjötið niður, og raðið því smekk- lega á fat. Leggið gjarnan hrærð egg ofan á til skrauts og bragðbætis. Berið græn- ertujafning með: i/2 kg niðursoðnar ertur, 25 g hveiti, 25 g smjörlíki, i/2—1 1 mjölk og bauna- soð, sykur, salt, pipar. Búið til jafning og sjóð- ið. Bætið baununum út í. Síld í sýrðum rjóma. 2 saltsUdar, 2 dl rjómi, harðsoðin egg, laukur, rauðrófur, kapar, steinselja. Þvoið síldina, roðflettið og leggið 1 mjólk 1 nál. 2 klst. Leggið hana siðan i ediksblöndu í sólarhring (Edik, sykur, piparkorn, lárviðarlauf). Skerið síld- ina í 2 cm þykkar sneiðar og leggið á fat. Hellið súr- um rjóma yfir. Saxið harð- soðin egg, rauðu og hvítu út af fyrir sig. Leggið egg- ið i röndum ofan á súran rjómann. Saxaður laukur og rauðrófur er látið til skiptist í hring. Skreytið með salatblaði og kapar. ORÐSENDING frá Rafmagnseftirliti ríkisins. Nokkur brögð hafa verið að því undanfarið, að rafmagnsljóskúlur „sprengi“ vartappa, um leið og þær bila. Einnig eru þess nokkur dæmi í seinni tíð, að raf- magnsljóskúlur bili þannig, að glerkúlan springi og glerbrotin þeytist í allar áttir. Þótt rafmagnsljóskúlur séu ekki enn sem komið er viðurkenningarskyldar, sem kallað er, þ. e. að inn- flytjanda sé skyllt að senda raffangaprófun raf- magnseftirlitsins sýnishom til prófunar og úrskurð- ar um það, hvort leyfilegt sé að selja þær og nota, þá eru umræddir gallar, sem sannanlega hafa kom- ið í ljós, svo alvarlegir, einkum hin síðarnefndi, að rafmagnseftirlitið telur ekki rétt að láta þetta af- skiptalaust. Reynt verður að safna upplýsingum um hve mikil brögð kunni að vera að umræddum göllum. Rafmagnseftirlitið vill því hérmeð mælast til þess, að allir þeir, sem vottar hafa verið að slíkum bil- unum, sem hér um ræðir, tilkynni það rafmagnseftir- liti ríkisins eða hlutaðeigandi rafveitu, annað hvort bréflega eða í síma. Varúðarreglur: Þegar rafmagnsljóskúla (pera) er skrúfuð í lampa- höldu, skal ávallt gætt, að straumurinn að lampan- um sé rofinn og ekki kveikt á honum (með rofa eða tengilkvísl) fyrr en ljóskúlan hefir verið skrúf- uð í hann. Annars getur verið hætta á að verið sé of nálægt ljóskúlunni, þegar rafstraumi er hleypt á hana, ef hún skyldi springa, eða blossi myndast í henni. Einnig er það góð regla og raunar sjálfsögð, að snúa andlitinu frá, eða halda hönd fyrir augu, þeg- ar vartappi er skrúfaður í, því að við óhagstæð skil- yrði (skammhlaup) getur myndast mjög skær blossi í vartappanum um leið og hann nemur við botn í varhúsinu, þegar hann er skrúfaður í. Rafmagnseftirlit ríkisins. VIKAN 19

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.