Vikan


Vikan - 12.03.1959, Side 22

Vikan - 12.03.1959, Side 22
Sá sem hefur fundið Guð... Og svo er hlustað á létta tónlist. Faðir Georges og faðir Hacking. af hlaSsi'Su /5 Hans Herradómur, Jóhannes Gunnarsson Hólablskup. Hvernig líður svo dagurinn þarna í Landakoti ? Faðir Hacking segir mér til dæmis frá einum degi sem er líkur ótal mörgum öðrum í hans lifi. HANN rís árla úr rekkju. Klukkan hálf sex. Siðan gengur hann út úr gamla húsinu og fer yfir götuna og inn í sjúkrahúsið. Þar flyt- ur hann messu í kapellunni fyrir systurnar. Að lokinni messu les hann bænir sínar, en reglan mælir fyrir um að fluttar séu bænir eftir mess- una. Þegar hann flytur bænina er hann aleinn með guði sínum. Klukk- an tuttugu minútur yfir sjö, hittast prestamir allir og biðja sameiginlega upphátt, og síðan hefur hver um sig hugleiðingu, um ýmsa erfiðleika, starfið, vini sína. Þetta stendur yfir til klukkan átta. Þá snæða þeir morgunverð. Eftir morgunverð fer hver til síns herbergis. Föður Haeking bíða mörg verkefni. Hann þarf að svara bréfum, en þau fær hann mörg erlendis frá, með fyrir- spurnum um starfið, land og þjóð. Honn þarf að undirbúa kenslu dags- ins, en hann er skólastjóri Landa- kotsskólans, sem á þessu ári er 50 ára. Hann þarf einnig að skrifa grein í tímarit kaþólskra hérlendis, Merki krossins. Klukkan 12 snæða þeir miðdegisverð. Allir prestarnir þurfa þá að vera mættir. Þá les hann borð- bænir með þátttöku prestana, síðan er lesin smákafli úr Biblíunni og síð- an matast þeir. Eftir snæðing er les- in kafli úr bók píslarvottanna, en hver dagur er tileinkaður einhverjum eða nokkrum dýrlingum og píslar- vottum, síðan er flutt bæn og staðið upp frá borðum. Fljótlega eftir há- degið má búast við fólki upp í Landa- kot. Það er ýmist kaþólskt eða þá mótmælendur, sem koma til þess að ræða sitt hvað við prestana, trúmál, vandamál vina sinna eða sjálfra síns. Hvenær prestarnir drekka miðdegis- kaffi er mjög undir hælin lagt, en kvöldverð snæða þeir kl. 7. Kvöld- verður prestanna hefst með sameig- inlegri bæn og upplestri úr Biblíunni og á eftir er flutt bæn og lesið úr bókinni, Breytni eftir Kristi. 1 frí- stundum sinum læra þeir íslenzku, fara í húsvitjun, eða kannski bara í bíó, eða þá þeir heímsækja kunn- ingja sina. AHir þekkja hana Guðrúnu. n.'i- er hún með „börnin sín“ í kennslustund. 22 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.