Vikan - 16.04.1959, Blaðsíða 2
Barna-
sett
★
Rauð-
hetta
PÓSTURINIS
Bréf til Norogs.
Kæra Vika!
Ég hef séð að þú leysir vel úr spurningum og
vandamálum lesenda þinna. Þessvegna vil ég
biðja þig að hjálpa mér. Mig langar nefnilega
að komast í bréfasamband við norska pilta. Get-
ur þú nú ekki sagt mér utanáskrift einhvers
norsks blaðs, sem helzt er gefið út í Trondheim;
en það er auðvitað ekki nauðsynlegt.
Með fyrirfram þökk fyrir svarið.
Skrifari.
SVAR: Ernst G. Mortensens Forlag, övre Voll-
yate 13 Oslo.
o----o
Söngelskar.
Kæra Vika!
Okkur datt í hug að skrifa og biðja þig
að svara nokkrum spurningum. Hvað má maður
vera gamall til þess að læra að syngja og hjá
hverjum getur maður lært? Með fyrirfram þökk.
Þrjár söngelskar
SVAR: Snúið ykkur eil Guðmundar Jónssonar
eða þá Kristins Hallssonar. Þeir eru báðir í sima- «
skránni.
o——o
Cftvarpið heillar.
Kæra Vika!
Élg hef áður fengið góð svör hjá þér og nú lang-
ar mig til að biðja þig um svör við þessum spurn-
ingum mínum:
1. Hvert á að snúa sér til að sækja um vinnu
hjá Ríkisútvarpinum ?
2. Er einhver sérstakur aldur tilskilinn?
3. Eru einhver önnur störf fyrir stúlkur en
þularstörf ?
4. Veiztu hvort vinna þar er vel launuð?
SVAR: Venjulegast auglýsir útvarpið eftir
fólki ef þörf krefur, en þú getur snúið þér til
skrifstofustjóra útvarpsins. Hann mun geta gef-
ið þér allar upplýsingar.
FRAMLEIÐANDI PLUTO H.F.
PIERPOIIT
ARMBANDSÚR
HEFUR ALLA
KOSTINA:
• höggvarið
• vatnsþétt
• glæsilegt
• árs ábyrgð
• verð við
allra hæfi
— Sendi gegn póstkröfu —
GARÐAR OLAFSSON
ÚRSMIÐUR
Sími 10081 Lækjartorgi
< * o----o
,, Frú eða ekki frú.
< i Kæra Vika.
<» Má skrifa „frú“ utan á bréf til stúlkna, sem
, , aldrei hafa verið giftar ? Ég skrifaði frú utan
,, á bréf til vinkonu minnar. Hún reiddist alveg
,, óskaplega, og sagði að ég ætti ekkert með að
(, skrifa sig frú, þar sem hún hefði aldrei verið
., gift. Vonast fljótlega eftir svari, hvort ég mátti
þetta'eða ekki.
Þura.
o SVAR: Það mun ekki vera viðtekin venja hér
<, á landi að kdlla ógift kvenfólk „frú“, og ekki
i, vitum við um neina samþykkt um, að það skuli
,, gert. Það er því von, að ógiftum stúlkum þyki
,, heldur miður að þœr séu titlaðar frúr. Að öðru
., leyti virðist þetta samt vera full mikil tilfyndni
hjá vinkonu þinni.
< > o----o
< > „Skak og skæiur“
• > Kæra Vika.
< > Getur þú frætt mig á því, hverjir eru í rokk-
O hljómsveitinni „5 í fullu fjöri." Þeir spiluðu í
< > ,,Vík“ í Keflavík um daginn og mér fannst þeir
< > svo ágætir.
SVAÆ; Þeir, sem spila í „5 í fullu fjöri“ eru:
Örn Armannsson gitar, Guðbergur Auðunsson
> gítar, Karl Möller píanó, Þorsteinn Sigmundsson
'1 bassi og Einar Blandon trommur. Auk þess syng- '
< > ur Guðbcrgur Auðunsson með „hljómsveitinni“.
1 > 1
< > o----o
Húsmæður.
Póstinum hafa borizt þó nokkur bréf, þar sem
spurt er um, hvernig auðveldast sé að komast
á húsmæðraskóla i Englandi eða á Norðurlönd-
um. Þeim er það til að svara, að bezt er fyrir
viðkomendur að snúa sér annaðhvort til Brezka
sendiráðsins hér í bænum eða Norræna félagsins
og þar munu allar upplýsingar verða látnar góð-
fúslega í té.
Felmni.
Kæra Vika.
Mér datt í hug að skrifa þér og biðja þig um
ráðleggingar, ef þú vildir vera svo góð og svara
mér.
Ég er órðin 17 ára, en er svo hræðilega ófram-
færin og feimin, að ég líð oft svo mikið fyrir
það. T.d. ef ég er í hópi kátra unglinga, sem ég
VIKAN