Vikan


Vikan - 16.04.1959, Qupperneq 10

Vikan - 16.04.1959, Qupperneq 10
Norðmenn hafa gnægð trjáviðar í landi sínu og norsk húsagerð hefur mótazt af því. Timbrið er nærtækt og ódýrt byggingarefni í Noregi og úrkoma er þar viðast minni en hérlendis og þessvegna eðlilegt að þessi náttúruauðæfi séu notuð. Norskar aðstæður eru á margan hátt svip- aðar íslenzkum og einmitt vegna þess hafa ýms- ar norskar fyrirmyndir gefizt vel hér. Þetta einbýlishús stendur við Oslófjörðinn og er 115 ferm. að flatarmáli. Daglegur íveruhluti húss- ins, tsofa og eldhús, eru á einni hæð. Svefnher- bergin og baðherbergið eru í sér álmu og undir þeirri álmu er kjallari með geymslu, þvottahúsi, kyndingu og gufubaði. Bílskúrinn stendur nokkuð frá húsinu, en er tengdur við með bitum eins og myndin sýnir. Innra skipulag hússins, hið eilífa vandamál, virðist fremur vel leyst. Eldhúsið er mjög vel staðsett með innréttingum á tveim veggjum. Borðkrókur er ekki í því, en borðstofa er áföst við það. Stofan og borðstofan mynda skemmtilega heild, en flestir mundu hafa glugga á vesturvegg borðstofunnar fremur en á norður- vegg. 1 svefnálmunni eru skápar meðfram veggn- um á ganginum og baðherbergið er haft sem næst miðju hússins. Þegar planið er þessu líkt, er baðherbergið þó oft haft sem næst hjónaher- bergi, en sérstakt salerni við forstofuna. 'Crtlit hússins er vinalegt og mundi það sóma sér vel í íslenzku landslagi. Vesturveggurinn er fram- lengdur til skjóls og húsið er málað gult. Þakinu hallar aftur og sá halli er látinn koma fram að innan eins og myndin úr stofunni ber með sér. Loftið er klætt með misþykkum panel. MORSKT EINBÝLISHIJS Milli bílskúrsins og hússins er steinlögð stétt og gert yfir hana með bitum. Að neðan er mynd úr stofunni.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.