Vikan - 07.05.1959, Page 3
PEB3
Utgefandi: VIKAN H.F.
Blaðstjórn:
Hilmar A. Kristjánsson (ábm.)
Jónas Jónasson
Bragi Kristjónsson
Ásbjörn Magnússon
(auglýsingast jóri)
Framkvæmdastjóri:
Hilmar A. Kristjánsson
Verð í lausasölu kr. 10,00. Áskriftarverð
kr. 216,00 fyrir hálft árið. Greiðist fyrir-
fram.
Ritstjóm og auglýsingar:
TJarnargata 4. Simi 15004, pósthólf 149.
Afgreiðsla, dreifing:
Blaðadreifing h.f., Miklubraut 15. Simi
15017.
Prentað I Steindórsprent h.f.
Kápuprentun í
Prentsmiðjunni Eddu h.f.
Myndamót gerð í
Myndamótum h.f., Hverfisgötu 50.
Lyftur og öryggi
Kæri Póstur.
Það er rétt eins og ekki sé til mikils að benda
á það, sem miður fer í þjóðfélaginu. Á sínum tíma
benti ég á, að lyftan í húsinu við Austurstræti 12,
hefði bráðum ekki verið skoðuð í tvö ár, væri auk
þess alltaf myrkvuð, svo að allir heilvita menn
hættu vart lífi sínu inni í fyrirtæki. Núna eru
meira en tvö ár, síðan lyfturæksni þetta hefur
verið skoðað, og hlýtur .það að teljast vítavert
gáleysi af húseigendum og sömuleiðis þeim að-
ilum, sem sjá eiga um eftirlit með lyftum. Að
vísu er nú komið í ljós í lyfturæksnið, en skröltið
er hið sama og stundum líða heilu dagarnir án
þess að hún geti hreyft sig úr stað. Væri nú
ekki ráð að viðkomandi yfirvöld gerðu einhverj-
ar ráðstafanir, áður en slys hljótast af þessu
aldgamla skrifli, sem ekki hefur einu sinni verið
athugað af kunnáttumönnum á þriðja ár?
Sáróánægður
Vikan hefur engu við bréf „Sáróánœgðs" að
bœta. Hún veit, að jrásögn bréfritara mun i flest-
um atriðum rétt, þvi að í lyftunni má lesa það
skýrum stöfum, að slðast hafði liún verið skoðuð
16. apríl 1957. Virðist „Sáróánœgður“ þvi hafa
nokkuð til sí7is máls og vœri ráð að líta að
minnsta kosti á lyftugreyið, ef einhverjir eiga á
annað borð að hafa eftirlit með slíkum tœkjum.
—O—
List og líf.
Kæra Vika!
IÖg er 14 ára, og hef áhuga á að læra að fara
með olíuliti. Segðu mér er nokkur kennari sem
kennir byrjendum á sumrin. Vildirðu vera svo
góð að birta svarið eins fljótt og mögulegt er,
helst í næsta blaði.
Þakka fyrir allt gott.
Einn með mikinn áhuga.
SVAR: Reyndu að tala við skólastjóra Hand-
íða- og myndlistarslcólans, Ounnar R. Hansen og
hann lilýtur að geta bent þér á einhverja úr-
lausn í þessu efni.
—O—
Ættleiðing ?
Stúlka, sem ekki vill láta nafns síns getið,
hefur skrifað blaðinu. Hún á von á barni, er
aðeins 15 ára og er auk þess í skóla, sem hún
vill helzt ekki þurfa að hætta í. En hún óttast að
láta foreldra sína vita um þetta og hefur beðið
Vikuna að ráðleggja sér eitthvað í þessu efni.
Hún elskar ennþá unga manninn, sem rataði í
þetta ævintýri með henni, og álítur að hann elski
sig einnig.
SVAR: Þú ert vcegast sagt heldur ílla stödd,
vœna mín. Barnið þitt œtti auðvitað helzt að
vera velkomið í heiminn og eiga tryggt og gott
heimili. Eins og sakir standa virðist mér margt
benda til þess, að þið getið ekki veitt þvi það
fyrst um sinn og ef til vill er bezt, þar sem
efnahagur ykkar er jafn bágborinn og þú .getur
um í bréfinu, að þið reynið að útvega barninu
ykkar gott heimili til að alast upp á, eða jafnvel
látið œttlciða það. Hér á landi eru mörg góð
heimili, sem gjarna vildu taka af ykkur barnið
og ábyrgjast örugga framtíð þess. Atinars ættir
þú að leita á náðir Mœðrastyrksnefndar. Hún
hcfur vafálaust leyst úr mörgum svipuðum
vandamálum. Svo er líka nauðsynlegt fyrir þig
að láta foreldra þína vita af þessu og því fyrr
því betra og áreiðanlega geturðu ekki dulið þau
þess endalaust.
—O—
Kynlegar ástríður.
Kæra Vika!
Veiztu bara hvað. Eg fór inn á veitingahús
við Laugaveginn fyrir skömmu og settist þar og
bað um kaffi. Þegar ég hafði sötrað kaffið góða
stund, kom einhver lítill karlskratti að borðinu,
settist án þess að spyrja mig leyfis og fór að
röfla eitthvað um ást milli karlmanna. Hann
spurði mig, hvort ég vildi ekki koma með sér
heim í partí, við gætum haft það verulega gott,
nóg vín og allt tilheyrandi. Hann lét ekki bara
þar við sitja, heldur fór hann líka að klappa mér
á kinnina og sparkaði þessi býsn í fæturna á
mér. Ég spurði manngarminn, hvað hann meinti
eiginlega með þessu og þá sagði hann mér bara
hreint út, að hann elskaði mig svo heitt, að hann
gæti ekkert við þessu gert. Ég kallaði á þjón-
ustustúlkuna og bað hana að fjarlægja mann-
greyið, en hún yppti bara öxlum, eins og þetta
væri daglegt brauð þarna. Ég flýtti mér því og
fór svo, en sá litli var ekki alveg búinn, þvi að
hann elti mig niður í bæ og hrópaði ástarorð á
eftir mér niður allt Bankastræti. Ég hefi kom_
ið stundum á þennan stað siðan og hefi séð þar
ýmsa menn, sem þekktir eru að skrítnum á-
stríðum. Flestir láta mann þó í friði, en þó eru
nokkrir, sem eru svo ágengir, að maður heldur
að maður sé kominn á „Fortuna Bar“ hinn fræga
í Kaupmannahöfn. Hvað finnst þér, Vika mín,
að gera eigi við svona menn ? V.
SVAR: Vikan hefur auðvitað ekkert um þetta
mál að segja? Hún skiptir sér ekki af krytum
eða ágengni, sem gestir í veitingahúsum kunna
að verða fyrir, en hinni finnst að ef þú hefur
orðið fyrir dónaskap af hendi þessara manna, ætt-
ir þú að láta lögregluna vita. Stúlkur á viðkom-
andi stöðum geta vitanlega ekkert gert„ nema
mennirnir séu drukknir en þá bera þeim skylda
til að vísa þeim burtu.
Á TAKMÖRKUNUM
Eggert Gilfer er þjóðkunnur maður fyrir
ýmsar sakir. Hann hefur lengst allra staðið
í fremstu röð íslenzkra skákmanna og hann
hefur leikið mikið og vel á orgel. Auk þess
er maðurinn sérkennilegur í háttum,
gamansamur í svörum og frægur fyrir
einstæðan hlátur sinn.
Móðir Gilfers, Þuríður Þórarinsdóttir,
ur. Þegar Gilfer var aðeins 8 ára gamall
tók móðir hans hann með sér í ferðalag út
úr bænum. Fóru þau ríðandi og voru fleiri
systir séra Áma, var hinn mesti skörung-
í förinni. Gilfer reið aftastur. Liggur leið
þeirra upp Laugaveginn og áfram Suður-
landsbraut. Gilfer sat hinn rólegasti á hesti
sínum. Þegar fólkið var rétt komið að
Kambabrún, kallaði hann þá til móður
sinnar og spurði: „Heyrðu mamma. Mikið
asskoti er Laugavegurinn langur.“
Öðru sinni, þá kominn á fullorðinsár,
sat Gilfer að tafli. Hafði hann betri stöðu.
Andstæðingurinn þrauthugsaði hvem leik,
en ekkert dugði. Þegar útséð var um enda-
lok skákarinnar, stóð Gilfer á fætur, en
mótspilari hans sat og braut heilann ákaf-
lega. Gilfer stendur um hríð og horfir fast
og ákveðið á taflborðið, eins og hann ein-
beiti huganum að skákinni. E nsvo segri
hann upp úr eins manns hljóði: „Mikið
skrambi var Beethoven annars merkilegur
maður.“
TRÚLOFUNARHRINGAR
Við höfum nú hafið smíði á trúlofunarhringum eftir nýjum teikn-
ingum, sem gjörðar eru á verkstæðum okkar. Við bjóðum yður að kynna
yður hin nýju form og hinar skreyttu gerðir.
Um leið beinum við athygli yðar að hinu fagra, stóra og fjölbreytta
úrvali er við nú höfum af hringum og öðrum skartgripum í gulli og
dýrum steinum. En viðfangsefni verkstæða okkar er einkum, eins og
kunnugt er —
gull Og
dýrir steinar
iíiin liipiunilœon
Skarlpripaverzlun
skartgripaverzlun
Hlutafélag
„Fagur gripur er œ til yndis“
VIKAN
3