Vikan - 07.05.1959, Blaðsíða 10
Myndin að neðan til hœgri er af dönsku eldhúsi, sem hinn heimskunni
danski arkitekt Arne Jacobsen hefur teiknað. Hér er um að rœða „opið
plan“, það er að segja, eldhúsið er ekki aðskilið með vegg, heldur af-
markast það fyrst. og fremst af skápunum, sem „hanga“ niður úr loft-
inu og borðinu þar undir. Einstaklega léttur svipur er yfir eldhúsinu og
gluggarnir stórir. Matarborðið er aðeins þunn plata á málmfótum, byggt
út frá skáp við vegginn.
Borðkrókurinn er aðskilinn með A
föstum bekk, sem nær út á gólfið. T
Athyglisverð og einföid iausn.... |
Hér er amerísk lausn á
vandamálinu. Það er einskonar
bar-borð, sem byggt er út á
gólfið. Hæðin er hin sama og
á vinnuborðunum. Yfir borð-
inu er bollaskápur með renni-
hurðum úr gleri. Slíkt smáborð í eldhúsi
er mjög hentugt t. d. þegar börnin koma
inn og eru svöng. Það nægir einnig fyrir
litla fjölskyldu.
BORÐAÐ í ELDHÚSINU
Skipulag eldhússins hefur lengi verið vandamál. Einn þáttur í því vandamáli er, hvort rétt
sé að borða í eldhúsinu sjálfu, eða í aðskilinni borðstofu. Á síðari tímum hefur það sjónarmið
átt vaxandi fylgi að fagna, að hafa borðkrók i eldhúsinu og neyta þar daglegra máltíða, en
hafa hinsvegar gott borð í stofu eða borðstofu, sem hægt er að nota, þegar gesti ber að garði
eða á hátíðum og tyllidögum. I þessu sambandi ber að hafa þá staðreynd í huga, að eldhús I
nýjum íbúðum eru nú svo vönduð að frágangi að ekki þarf að borða annarsstaðar vegna þess.
Fyrir liúsmóðurina er það ólíkt hægara að bera á borð í eldhúsinu, seilingarlengd eða svo,
heldur en að bera mat og áhöid í annað herbergl.
Þegar borðkrókur er hafður í eldhúsi, er algengast að skipta eldhúsinu eins og hér er sýnt.
Eldhúsborðið nær fram á gólfið og skilur borðkrókinn að. 1 honum er annaðhvort laust borð
eins og hér sézt, eða byggt út frá vegg. Yfir borðinu, sem gengur út á gólfið er gjaman skáp-
ur með rennihurðum til þess að nota plássið og leggja frekari áherzlu á skiptinguna. Takið
eftir, að eldavélin er í borðinu og vel staðsett, en kæliskápurinn er nokkuð langt frá matar-
borðinu.
Skemmtilega útfærður borðkrókur úr
þýzku eldhúsi. Borðplatan er byggð út úr
skáp, sem stendur undir glugga. Málm-
grind heldur borðplötunni uppi. Mjög
léttur og listrænn svipur á heildarmynd-
inni.
Sýnishorn úr þýzku eldhúsi. Það
er mjög svipuð lausn og í því
ameríska efst til vinstri. Einskon-
ar bar-borð er sett utan á skáp,
sen nær út á gólfið. Fjórir geta
borðað við þetta borð í einu.