Vikan


Vikan - 07.05.1959, Side 18

Vikan - 07.05.1959, Side 18
Lykill að fjarvistarsönnun SMÁSAGA EFTIR JOHN DICKENS Þaö þarf ímyndunarafl til þess að leggja á ráðin, en of mikið . ímyndunarafl getur orðið ör- }' lagarikt. Spennandi glœpa- (, saga. E.usta^e St. John Maninway — hið rétta' nafn hans var William Stubb- ings — st'óð fyrir framan spegilinn og velti bréfinu frá Marellu Gallarey milli fingranna. Hann virti hugsandi fyrir sér hið skarpleita, f.yrirmannlega andlit sitt, og nokkur óróleiki voru á honum. Hann, sem hafði eytt meirihluta sinna tuttugu og átta ára í að forðast óþægilegar staðreyndir, gerði sér nú fyllilega grein fyrir, að hann var i alvarlegri klípu og skjótra aðgerða þyrfti með, ef honum ætti að heppnast að sleppa úr henni. Hann fékk sér viskíglas, settist niður og hóf að lesa bréfið frá Mar- ellu einu sinni enn. Það hljóðaði á þessa leið: „Eustace, nú hef ég komist að hinu sanna. Það rann upp fyrir mér, að ég er aðeins nýtt fórnarlam, efnuð miðaldra kona, sem hefur látið glepj- ast af myndarlegum en slungnum ungum manni, sem reyndar er aðeins hæfilega slægur. Þú hefur ef til vill áhuga á að vita, hvernig ég uppgötvaði þinn sanna, innri mann. Eg veit ekki, hvort þú manst, að fyrir hálfum mánuði send- ir þú mér þrjár bækur, sem ég skyldi :lesa. Ein bókanna var sú, sem þú sagðir, að þér virtist svo merkileg, 'af því að aðalpersónurnar í henni — ungi maðurinn og miðaldra konan, er síðar fann sinn rétta maka — minntu ;þig svo mikið á okkur. Inn á milli síðanna í bókinni fann ég af tilviljun þriggja mánaða gaml- .an veðsetningarseðil á demantshring. Veðsetningarseðillinn hljóðaði ckíu á þitt nafn, en aftan á hann var ritað ,,V. M.“ og dagsetningin var „3. marz.“ Það var með þinni rithönd. Mér gat ekki skjátlast, þvi að ég þekkti þetta „M“ svo vel. Ég býst við, að ég hafi orðið forvitin og einn- ig langaði mig til að koma þér sræmmtilega á óvart, þvi að ég fór til veðsétningarskrifstofunnar og leysti hringinn út, sem hafði verið veðsettur fyrir tíu þúsund krónur. En ég þekkti hringinn strax og ég sá hann. Það var hringurinn, sem Veronica Mailow hafði saknað snemma í marz. Hún hélt, að hún hefði týnt honum og tilkynnti lög- reglunni ekki hvarfið, en lét sér arlaunum, sem færði hennir hringinn aftur. Enda þótt líklegt sé, að margir demanthsringir séu til, sem líkjast nægja að auglýsa og lofa þeim fund- þessum, þá var ég strax viss um, að þetta væri hringur Veronicu og fangamrk hennar og dagsetningin, sem þú hafðir skrifað aftan á seðil- inn — að líkindum til þess að geta greint þetta afrek frá öðrum í sama stíl, þú ert nefnilega mesti reglu- maður — tók af allan vafa. Eg vissi nú, að þú varst þjófur, og einnig vissi ég, að það varst þú, sem stalst hringnum hennar Vero- nicu. Eg setti mig undir eins í samband við skrifstofu leynilögreglumanna í London og bað þá að láta mér í té allar mögulegar upplýsingar um þig. Og það gerðu þeir. Síðustu daga hef ég verið að hugsa um, hvað ég ætti að gera við þig, og nú hef ég tekið ákvörðun. Ég fer aftur til London á morgun með lestinni, sem fer kl. fimm, fer strax heim, og annað kvöld ætla ég að hafa upp á Veronicu. Eg ætla að ráðleggja henni að tilkynna lögregl- unni um þig, og hún mun ekki hugsa sig um tvisvar, þegar hún heyrir all- an sannleikann. Hún verður öskureið, þegar hún heyrir, að leikið hafi verið á mig, beztu vinkonu hennar, af ná- unga eins og þér, sem ert ekki annað en lélegur þjófur. Ég verð óttaslegin, þegar ég hugsa til þess, að ég breyti erfðaskrá minni fyrir tæpum mánuði og ánafnaði þér álitlega upphæð til þess að lifa af það sem eftir er æfi þinnar, ef eitt- hvað skyldi koma fyrir áður en við gætum gift okkur. Ég skal svo sann- arlega breyta þvi aftur, þegar ég kem til borgarinnar. Þú skalt ekki reyna að komast í samband við mig með þvi að skrifa mér eða hringja eða hafa upp á mér, því að slíkt er þýðingarlaust. Ákvörð- un mín er óhagganleg. Marella Gallery". Hann fékk sér annan viskísjúss. Skelfingar flón hafði hann verið að líta ekki í gegnum þessar bækur áður en hann sendi þær. Þarna var sem sagt veðsetningarseðillinn niður- kominn. Hann hafði saknað hans og hugsað sér að leita vandlega í hirzl- um sínum. Nú gat hann sparað sér ómakið. Óttalegur asnaskapur. Hann efaðist ekki um, að Marella myndi gera alvöru úr hótun sinni. Hún mundi sjá jm, að lögreglunni yrði gera aðvart og þá myndi allur hans glæpaferill verða afhjúpaður. Han byrjaði að ganga fram og aftur í herberginu. Hann varð að bjarga sér með einhverju móti. Hann nam allt í einu staðar oa gekk siðan r.ð skattholinu sem stóð í einu horninu, opnaði lokið og dró út dálitla skúffu. Upp úr henni tók hann bunka af bréfum þeim, sem Marella hafði skrifað honum síðasta hálfa árið. Hann hóf að lesa þau með þá veiku von i brjósti, að eitt- hvað kynni að leynast í þeim, er hann gæti notað. Og hann fann dálítið. Það var bréf, sem Marella hafði skrifað honum fyr- ir f jórum mánuðum, þegar hún dvaldi hjá vinum sínum uppi i sveit. Hann las það hratt. Innihaldið var þetta venjulega. Hún gat aldrei hætt að tönnlast á, hversu mikið henni hefði komið á óvart, að hann, svo ungur og heillandi sem hann var, skyldi vilja hana, sem var a. m. k. fjórtán árum eldri . . . Bréfið endaði svo: „Ég get aldrei gleymt þeim orðum, sem þú sagðir við mig einu sinni. Ég endurtek þau svo oft fyrir sjálfa mig — þessi orð þin: Ég get ekki lifða án þín. Lifið er snautt og inni- haldslaust án þín. Ég elska þig, Marella." •vií-'- /&:■ /'1 X'i?l5T»NN 'H- Eustace settist og starði á bréfið og þessi orð: Ég get ekki lifað án þín . . . Marella. Einhver djöfull í heila hans tók að hvísla að honum leið til þess að sleppa úr þessum ó- göngum, sem hann var í. Marella skrifaði, að hún kæmi til bæjarins á morgun og færi strax heim til sín áður en hún fyndi Vcro- nicu. Ekkert þjónustufólk var heima í húsinu hennar í St. Johns Wood. Það hafði allt verið sent á brott áður en Marella fór. Og hún myndi koma með fimm-lestinni. Eustace fór að hugsa um ýmsar glæpakvikmyndir, sem hann hafði haft svo gaman af. Hann var full- I _.mlega sannfærður um, að ráða- brugg hans myndi heppnast. Hann setti bréfin aftur í skúffuna i skatt- holinu nema þetta eina, sem hann hafði verið að lesa. Hann gekk út að glugganum og fór yfir það einu sinni erm. „Ég get ekki lifað án þín. Lífið er snautt og innihaldslaust án þín. Ég elska þig. Marella.11 Ef einhver annar sæi þetta bréf — til dæmis Veronica — og hann eyðilegði það á eftir, þá myndi lög- reglan áreiðanlega fá vitneskju um, að það hafi verið til. Og þá myndu þeir vera sannfærðir um, að Marella hefði framið sjálfs- morð. Eustace pirði augun. Hann hafði eftir allt fundið leið úr þessari klípu. Síðdegis daginn eftir fór hann og heimsótti Veronicu. Klukkan var hálf fjögur. „Hvað er að, Eustace ?“ spurði hún. „Þú ert eitthvað svo sorgmæddur á svipinn. Hertu upp hugann, maður. . ‘X, ■ : Þú ætlar að fara að gifta þig í næsta mánuði." Hann hristi höfuðið. „Það var nú einmitt það, sem ég ætlaði að tala um við þig, Veronica,“ sagði hann. „Ég er í sælmri klípu út af Marellu." Veronica varð undrandi á svip. „Þú ætlar þó ekki að segja mér, að þið séuð orðnir óvinir?“ sagði hún. „Er eitthvað ekki i lagi, Eustace? Hvað er að?“ Hún kveikti sér í sígarettu og virtist taugaspennt. „Ég skal segja þér það,“ sagði Eustace. „Undanfarinn mánuð hef ég verið að hugsa um þetta hjónaband. Ég hef alltaf vitað, að þetta var ekki eins og það átti að vera. Reyndar var ég mjög hrifinn af Marellu, en nú er ég viss um, að ég elska hana — ekki. Og það er eitt enn. Hún á svo mikla peninga. — Ég hugsaði nánar út í það, og ég tók ákvörðun mína fyrir þrem dögum. Ég hringdi til hennar og sagði henni, að ég gæti ekki gifzt henni, — það myndi vera rangt af mér.“ Veronica sat þegjandi nokkra stund. „Eustace", sagði hún svo, „ég held, að þetta sé rétt af þér. Náttúrlega tekur hún þetta nærri sér, það get ég vel skilið, en það lagast.“ „Ég er hræddur um, að málið verði ekki svo auðvelt, Veronica. 1 gær hringdi hún til mín viti sínu fjær. Hún sagði, að sér væri alveg sama hvort ég elskaði hana eður ei, hún vildi giftast mér. Ég hef aldrei vitað hana í slíkum ham. Ennfremur sagði hún, að hún myndi svipta sig lífi, ef ég sviki hana. Og snemma í gær fékk ég — þetta hér.“ Framhald á bls. 26. 18 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.