Vikan - 14.05.1959, Blaðsíða 5
„KVENFOLKIÐ
RENNUR FRÁ MANNI A MOR
EINS OG VÍNIÐ...“
Sumarið 1936 hrundi liálft þorpið Dalvík til
grunna en veturinn eftir fœddist Kristinn Jó-
hannsson þar. Nú er húið að byggja þorpið upp
aftur og Kristinn er farinn að mála myndir til
þess að hengja upp á veggi.
— Af hverju ertu með skegg, Kristinn?
—■ Bg var í hernámsvinnu hérna á árunum og
nennti ekki að raka mig, en svo fannst mér
þetta svo helvíti virðulegt að ég timdi ekki að
raka mig.
— Nú, ertu ekki að gera þetta til þess að líta
listamannslega útf
— Að vísu hefur komið í Ijós, að ýmsir hífaðir
góðborgarar hafa haft gaman af að toga í topp-
inn á opinberum veitingastöðum. Það vœri illa
gert við geyin að klippa hann af. Það má reynd-
ar kallast assslcotans kvöl að ganga með þetta
um bœinn, það er svo mikill smábyrgingur í Reyk-
víkingum. Þeir hafa sama þankagang og íbúar
smáþorpa út um land, komi nýir menn í plássið.
Þeir eru með pendingar og hvíslingar, glott og
hlátra, og ekki síst ef maðurinn er kynlegur út-
lits, gengur með skegg og regnhlif.
— Þetta er samt fólkið, sem kaupir myndirnar
þínar.
— Já, og hafi það guðs blessun fyrir það.
— Hvaðan kemur þessi rómantík í Vikukáp-
urnar þínar?
— Hún kemur að norðan, þar sem smáborgar-
■arnir eru stœrstir og umtalið um náungann hat-
ramast.
Akureyri er fallegur bcer og gerir alla menn
rómantiska á kostnað skynseminnar, eða svo lijala
þeir sunnanmenn, og meina vist að þeir séu fœrir
um að dæma.
— Og upp úr öllu þessu kemur rómantíkin
þín?
■— Þú þarft ekki að spyrja svona eins og asni,
■maður, það gefur augaleið.
— Heyrðu annars, á ekki kvenfólkið helming-
inrt i myndunum þinumf
— Það er forheimskandi að tala við blaðamcnn.
— Soof
— Auðvitað hefur kvenfólkið áhrif á undirtón-
i:m í mörgum málverkunum, en það er einfald-
lega vegna þess, að maður verður að festa það
hjá sér einlivers staðar, því það rennur frá manni
á morgnana eins og vínið.
— Hvar grófstu upp þennan mannalega tón í
AUÐVITAÐ f
— Hverslags eiginlega minnimáttarkend er
þetta, sem kemur upp í Reykvíkingum, þegar þeir
heyra talaða góða norðlenzku. Skárra vœri það
nú hclvítið, ef maður þyrfti að leggja niður móð-
urmálið til þess að maður skildist í Reykjavík.
Uppi er á þér tippið drengur.
mál og bendi honum því á mynd, sem hangir á
Ég finn það á öllu að ekki bogar sig að
deila við sjálfbyrgingslegan Akureyring um þessi
veggnum.
— Málar þú í sama stíl og er aftan á reikn-
ingum frá Mjólkursamsölunni?
—- Ég hef ekki séð bakhlið á reikningum fyrir
gœðasmjör eða osta, máske er það eitthvað líkara
því. Annars er ekki gerandi grín að þessu, þetta
er geysi merkileg stefna þessi kalkipappirsismi,
snnlega einstceð í heiminum.
— Hvemig er með músikkina í myndunum
þinum, er liún í blues stil, Wagner eða Strauss
eða kannske eittlwað allt annaðf
— Eins og ég sagði áðan, hefur kvenfólkið
áhrif á undirtóninn í myndunum, þcss vegna verða
þetta oftast lagleysur, i liœsta lagi einstaka falsk-
ir tónar og bregður fyrir „liillí — billi“ hér og
þar.
Kristínn er með tjaltískán trefil og vQl óður
og uppvœgur tala um utanreisur sínar.
— Það er meiri djöfulsms dellan, sem drýpur
úr þessum penna þínum, annars er það satt ég
var í Edinborg hérna um árið. Það var ég í lista-
háskóla og smakkaði bjór með gluggaþvottamönn-
um og kolamorkurum. Þeir eru forkostulegar
skepnur þessi Bretar, ég held, að þeir lifi bara,
Kristinn Jóhannsson — sjálfsmynd.
af því þeir eru svo vanafastir, að þeir geta
ekki skipt úr eniu ástandinu í annað.
Ég get séð það á forljótu fésinu á þé, að þú
ert að reyna að tœla mig út í landhelgisdeiluna,
en ég neita að tala um þorska.
— Annan eins kjaftliák hef ég aldrei komist
í kast við.
—■ Eftir að hafa séð brezkt kvenfólk skil ég
það mœtavel, að þeir skyldu vilja veiða íslenzkt
kvenfólk. En þeim er ekki alls varnað, bjórinn er
ágœtur og drekkandi er wiskíið þeirra.
Kristinri Jóhannsson er fœddur i Dalvík vetur-
inn 1937 eins og fyrr greinir. Hann lióf snemma
að leggja stund á málaralist og hefur liáldið tvær
sýningar norður á Akureyri. Tvo vetur hefur hann
dvalist í Edinborg við nám í listaháskóla þar og
er nýlega kominn heim þaðan. Kristinn er teikn-
ari fyrir Vikuna og hefur gert nokkrar kápur
meðál annars þá, er mi birtist. Hann sýnir í
glugga Morgunblaðsins, og hafa myndir hans
þar vakið verðskuldaða athygli. Kristinn mun
hafa í hyggju að hálda sýningu á verkum sín-
um í Reykjavík nœstkomandi haust.
SPAUS
1 Arnarholti var í tíð Sigurðar Þórðar-
son, sýslumanns, gömul, ógift vinnukona,
Guðrún að nafni. Þótti hún frekar einföld
og hjákátleg, svo alsiða var að hafa hana
sem skotspón fyrir fyndni heimamanna og
gesta. Þar var þá um skeið sýsluskrifari
Þórður Lárusson. — Einn dag, er margir
voru viðstaddir, snýr Þórður sér að Guðrúnu
og segir:
— Hefur þú aldrei eginazt barn, Guðrún
niín ?
Guðrún þegir við og ætlar sýnilega að
komast hjá svari. En Þórður ítrekar spurn-
inguna, svo Guðrúnu er eigi auðið undan-
komu. Þá lítur gamla konan upp og segir
hægt og stillt:
— Það eru ekki allar ferðir farnar til
fjár, Þórður minn.
Þórð setti hljóSan.
Kjarval cr þekktur að skrjngilegheitum
og undarlegri hátterni. Hann gengur tíðla
um götur bæjarins með handklæði á herð-
um og kastar þorskhausum í „þorskhausa",
sem tefja hann frá listiðju. Fyrir nokkru
var verið að selja málverk eftir hann á upp-
boði og var listamaðurinn viðstaddur. 1
eina myndina voru boðnar 6.500 krónur.
Þá drynur við í salnum dimrnur rómur
Kjarvals: „Sexþúsund fimmhundruð og tíu
aurar.“
A legsteini í kirkjugaði einum norðm-
lands stendur svolátandi grafskrift:
Hér hvílir mín heittelskaða eiginkona,
G. J. Hún var engill. Eftir hana mun ég
aldrei nokkra huggun hljóta. Hér hvílir
líka mín heittelskaða önnur eiginkona. Hún
var líka cngill.
Eggert Stefánsson, söngvari, hélt ein-
hverju sinni söngskemmtun hér í Reykja-
vík og bauð Kjarval að koma á skemmt-
ur.ina. Kjarval þáði boðið með þökkum, og
þar eð hann fékk tvo aðgöngumiða bauð
hann Óla T.faggadon að koma með sér og
hlýða á Eggert. En er skemmtuninni var
lokið, og þeir Óli og Kjarval eru að fara,
vindur sér maður einn ða Kjarval og spyr,
hvernig honum hafi þótt Eggert syngja. Þá
svaraði Kjarval: .
— Vini mínum, Ólafi, þótti hann ágætur'.
VIKAN
5