Vikan - 14.05.1959, Blaðsíða 25
BÖRNIN í HÆTTU
Barnið eltir boita sinn hugsunarlaust út á akbraut.p.a og
auk þess rétt fyrir aftan bifreið, sem stendur kyrr, svn
að ökumenn sjá ekki barnið fyrr cn um seinan. t að eru
1> e s s i viðbrögð barnsins sem valdið hafa flestum slysum.
Það þarf víst eklci að segja ykkur það, að báðir [ ess'r
drongir eru í lífshættu. — Þau böm, sem v.'lja verða lang-
líf, læra umferðareglur og breyta eftir þeim.
Óreiða í umíerð setur ómenningarbrag á bæjarlífið og
eykui' slysahættu.
íramhatd úr síðasta bSaði
Daginn eftir fer strákur aft-
ur með hérana út í skóg, en
þegar hann er að flatmaga á
einum jarðarberjaflákanum,
kemur herbergisþerna kóngsins
allt í einu til hans. Hún hafði
verði send út af örkinni til þess
að komast að því, hvernig strák-
ur færi að hemja hérana.
Hann sýnir henni nú pípuna
og blæs í annan endann á henni,
svo að hérarnir tvístrast sinn
í hverja áttina, og svo blæs
hann aftur í hinn endann, og
koma þá hérarnir allir saman í
einn hóp. Þernan segir, að píp-
an sé allra bezti gripur, og bið-
ur strák að selja sér hana, hún
skuli borga fyrir hana hundrað
dali.
,,Já, þetta er nú pípa í lagi,“
segri Ásbjörn í öskustónni, ,,og
hún er alls ekki föl fyrir pen-
inga. En ef þú vilt láta mig
hafa þessar hundrað krónur og
einn koss með hverri, þá skaltu
fá hana undir eins.“
Þernan sagðist skyldi gera
það, hún skyldi meira að segja
gefa honum tvo kossa með
hverri krónu og þökk í kaup-
bæti.
Svo fær hún pípuna, en þeg-
ar hún kemur heirn í kóngsríki,
er pípan horfin, því strákur
hafði óskað sér, að hún kæmi
til sín aftur. Og þegar líður að
kvöldi, kemur hann heim með
hérana í einum hóp. Kóngur
telur nú og telur, en engan vant-
aði af hérunum.
Þriðja daginn fer kóngsdóttir
af stað og ætlaði nú að ná píp-
unni frá stráksa. Hún gerir sig
svo blíða í málrómnum, sem
getur, og biður hann að selja sér
hana fyrir tvö hundruð krón-
ur og segja sér svo, hvernig hún
eigi að komast heim með hana.
„Já, það er nú pípa í lagi,“
segir Ásbjörn í öskustónni, „og
ekki sel ég hana fyrir peninga.“
En hann segist samt skuli gera
það fyrir hana að selja henni
pípuna, ef hún láti sig fá þessar
tvö hundruð krónur og kyssi
sig í kaupbæti jafnmarga kossa
cg krónurnar eru. En hann
sagði, að hún yrði að geyma
vel pípuna, ef hún ætti ekki að
týna henni, og væri það á henn-
ar ábyrgð.
„Skárra er það nú verðið á
þessari hérapípu,“ segir kóngs-
dóttir, og var eins og hún hugs-
aði sig dálítið um, hvort hún
ætti að kyssa hann. En þar sem
þau voru nú langt úti í skógi,
og enginn sá þau né heyrði, þá
hélt hún samt, að hún yrði að
gera það, því að pípuna þurfti
hún endilega að fá, hvað sem
það kostaði.
Þegar strákur er búinn að
fá pípuna borgaða, fer kóngs-
öótíirin af stað með hana og er
nú með hendina í pilsvasanum
alla leiðina, svo að hún týni
henni ekki, en þegar hún ætlar
að fara að taka hana upp heima
hjá sér, er hún horfin út úr
höndunum á henni.
Næsta dag fór drottning sjálf
af stað til þess að ná pípunni
af Ásbirni í öskustónni og ætl-
aði nú að bera sig að komast
liei mmeð hana. Iiún var ekki
eins ör á skildingana og hinar
og bauð ekki nema fimmtíu
krónur í pípuna fyrst í stað.
En það dugði nú lítið, hún varð
að bæta við, þangað til komnar
voru þrjú hundruð krónur. Ás-
björn sagði, að pípan væri
mesta veltiþing, og það væri í
raun og veru gjafverð, en þar
sem það væri nú drottningin
sjálf, sem langaði að eignast
hana, þá skyldi hann láta hana
hafa pípuna fyrir þessar þrjú
'■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■»■■*■■■■ ■■■■■■!,
\
BRÉF TIL BARNANftA
Kæru lesendur!
Þið eruð nú að verða búin með
skólanámið í vetur og' þá gefst
meiri tími til, að gera það sem
mann langar til.
Með tilliti til þessa hefur Vik-
an beðið með að efna til löngu
f yrirhugaðrar samkeppni um
beztu söguna fyrir barna-síðu
Vikunnar. Lofið okkur líka að
sjá fallegar teikningar eftir ykk-
ur eða ritgerðir. Segið okkur frá
því sem þið ætlið að gera þegar
þið eruð orðin stór. Sendið okkur
myndir af kisu ykkar, hundinum
eða hestinum eða hver veit hvað
þið eigið. Þá þætti okkur vænt
um það.
Þrenn verðlaun verða veitt:
1. verðlaun: Úldregin myndavél.
2. verðlaun: Fjölfrœðibókin.
3. verðlaun: Kassamyndavél.
Keppnin hefst nú þegar og er
lokið 15. ágúst svo að fyrir . þann
tíma verða sögunar að hafa bor-
ist blaðinu.
Utanáskriftin er:
Barnasíða Vikunnar
Tjarnargötu 4,
Reykjavík.
Öllum lesendum barnasíðunnar
frá því þeir byrja að skrifa sögur
og upp að 16 ára aldri er heimilt
að taka þátt í þessari keppni. Sög-
urnar mega vera langar eða
stuttar og um hvaða efni sem er.
Það er aðeins eitt sem við viljum
sérstaklega minna ykkur á, að
setja nafn ykkar, heimiiisfang og
aldur mjög greinilega með því
sem þið sendið oklcur. Sem sagt
að það sé vel merkt.
Með ksérri kveðju.
Ritstj. barnasiðú Vikunnar.
VIKAN
25