Vikan


Vikan - 12.11.1959, Blaðsíða 30

Vikan - 12.11.1959, Blaðsíða 30
SINDRA- húsflögnin vekja hvarvetna athygli: Á sýningu Norðurlandanna „Formes Scandinaves“ í París og nú síðast á „Svenska Mássan í Gautaborg hlutu þau góða dóma. IDRfl-iijöíÉ í Eldús Borðkróka Borðstofur Setustofur Biðstofur Skrifstofur Fundarsali Veitingastofur Félagsheimili Gistihús Borðin eru fáanleg með Teak eða Plast-plötu. Stólar, borðfætur og grindur eru úr gljábrenndu stáli. SINDRASMIÐJAN H.F. HVERFISGÖTU 42. Sölusiaðir: ReykjaTÍk: Sindrasmiðjan h.f., Hverfisgötu 42. Húsgagnaverzl. Austurbæjar Skólavörðustíg 16. Helgi Magnússon & Co. h.f., Hafnarstræti 19. Akranesi: Benedikt Hermannsson. Stykkishólmi: Sigurður Ágústsson. ísafirði: Valbjörk. Sauðárkróki: Steingrímur Arason. Siglufirði: Haukur Jónasson. Akureyri: Bólstruð Húsgögn. Egilsstöðum: Sigurbjörn Brynjólfsson. Vestmannaeyjum. Marinó Guðmundsson. Keflavík: Gunnar Sigurfinnsson. Ef einhver skjólstæðingur minn sæti fyrir fram- an mig og reyndi að segja mér þetta, mundi ég áreiðanlega taka fram í fyrir honum: — Haldið yður við staðreyndirnar. En úr því að ég fór að nefna þetta, er bezt að segja hér sögu. Andrieu málfærslumaður, fyrsti og reyndar eini húsbóndi minn — og fyrri maður Viviane, var einn af fáum lögmönnum í París, sem létu einkennisklæddan bílstjóra aka sér til Dómshallarinnar. Það bendir til þess, að ég vilji líkja eftir honum, að mér finnist ég þurfa að sanna fyrir konu minni . . . Þegar við vorum að byrja og bjuggum við Denfert Rochereautorg, var ég vanur að taka neðanjarðarlestina. Það stóð þó ekki lengi, og að ári liðnu hafði ég efni á að taka leigubíla. Við flýttum okkur að kaupa notaðan bíl, og Viviane hafði bílpróf, — en ég stóðst ekki prófið. Mig skortir alla tæknilega hæfileika og ef til vill skynj- un lika. Við stýrið er ég svo yfirspenntur, svo viss um, að stórslys sé óhjákvæmilegt, að próf- dómarinn sagði við mig: — Það væri skynsamlegra fyrir yður að gefast upp, herra Gobillot. Þér eruð ekki eini maðurinn, sem svona er ástatt um, og oftast eru bað menn með meira en meðalgáfur. Ef þér farið í prófið tvisvar eða þrisvar í viðbót. munuð þér að lokum ná því, en fyrr eða síðar mun yður henda slys. Annað hæfir yður betur. Ég minnist virðingarinnar, sem hann lagði í sið- ustu orðin, því að um þetta leyti var ég farinn að komast í nokkurt álit. 1 nokkur ár — eða þar til við fluttumst til Saint Louiseyjar, var Viviane bílstjóri minn. Hún ók mér til Dómshallarinnar og beið eftir mér á kvöldin, og það var ekki fyrr en sonur garð- yrkjumannsins okkar í Sully, Albert.að nafni, kom úr herþjónustu og var að leita sér vinnu, að okkur datt í hug að ráða hann til starfans. Þá var starf okkar beggja orðið umfangsmeira og skyldurnar fleiri. Fólki fannst Það undarlegt, að við Viviane skyld- um ekki vera óaðskiljanleg lengur, en það var orðið munnmælasaga, sem allir höfðu heyrt, og ég er viss um, að enn halda sumir, að Viviane hjálpi mér að undirbúa varnarræður mínar. „8taÖreyndir!“ Ég er ekki stoltur í þeirri merkingu, sem starfs- félagar mínir leggja í það orð, og ef . . . Hvers vegna kem ég alltaf aftur að sunnudags- kvöldinu, sem leið, enda þótt ekkert sérstakt hafi gerzt þá? 1 dag er þriðjudagur. Ég bjóst ekki við, að ég hefði löngun til að sökkva mér ofan í skýrsl- una mína svo fljótt aftur. Albert ók mér sem sagt i Saint Dominique- stræti, og þar sá ég bláa bílinn konunnar minnar í garðinum, svo að ég sagði Albert að bíða ekki eftir mér. Heima hjá Corinu de Langelle voru um það bil tíu manns saman komnir í einni setu- stofunni, og þrír eða fjórir gestir stóðu í litlu afherbergi, sem hafði verið búið út sem bar, en þar var húsmóðirin sjálf miðdepillinn. Framhald í næsta blaSi. Framh. af bls. S. hengja upp hjá sér málverk, sem manni sjálfum þykir ljótt, bara af Því að einhverjir, sem telja sig hafa vit á, segja hið gagnstæða? Og er það ekki eiginlega þetta, sem felst í erlendu orðunum „snobb“ og „snobberí“? Ein af eldri kynslóðinni. Ekki get ég kennt neitt ráð til þess að þekkja listaverk, hvorki abstrakt né hlutrænt og hvort sem það er í litum, línum, tónum eða orði, annað en það, að maður fari eftir sinum eigin þroska og smekk, og gildir þá sá úrskurður aðeins fyrir mann sjálfan. Fari maður að móta úrskurð sinn eftir annarra dómi, jafnvel sérlærðra manna, hefst ekki annað upp úr því en maður lítillækkar sína eigin dómgreind og gerir sig skoðanalega öðrum háðan. Geti maður ekki notið lista- verksins af eigin rammleik, þá nýtur maður þess alls ekki, hvað svo sem aðrir hafa um það að segja. Og svo er það hin meginspurn- ingin, — hvort þið eigið að hengja málverk þetta upp. Nei, alls ekki. Hver maður verður að móta híbýlasvip sinn eftir eigin smekk, þar sem hann á sjálfur við hann að búa. Fari hann að móta þann svip að forsögn annarra og aðeins til þess að geðjast öðrum eða vinna sér álit meðal annarra, — þá er það einmitt það, sem felst í erlendu orðun- um, sem þér minntuzt. á. Hvort þó í . . . Kæra Vika. Er það kurteisisbrot að bölva á almannafæri? Gagnfræðaskólanemi. Jú, það er það. Þó ræður það nokkuð um óviðurkvæmi brotsins, hverju er bölvað, og einkum, hvernig er bölvað. Til eru nefnilega menn, sem bölva svo fagurlega að nálgast list, öldungis eins og til eru menn, sem geta leikið svo meinlausustu og jafnvel hæversk- ustu orð í munni sér, að þau láti í eyrum sem argasti ruddaskapur. Einnig verður mað- ur að viðurkenna, að þær aðstæður geti orð- ið, að það hljóti að teljast afsakanlegt kurteis- isbrot, þótt manni verði á að taka hressilega upp i sig. En kurteisisbrot er það vitanlega engu að síður eðli sínu samkvæmt. Þó er ekkert Iciðara en meiningarlaus ávani, og á það ekki sízt við um blót og ragn. Þess vegna ættu unglingar að forðast að leggja það í vana sinn. Að blóta og ragna að ástæðu- lausu og án þess að meina nokkuð með því, — það er kurteisisbrot, sem á sér ekki neina afsökun. PÓSTURINN 30 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.