Vikan


Vikan - 12.11.1959, Blaðsíða 21

Vikan - 12.11.1959, Blaðsíða 21
» Þau voru nú næstum komin á ákvörðunarstað, og ferðin hafði verið atburðasnauð, — en það hafði Margrét af einhverjum ástæðum ekki búizt við, að hún mundi verða. Þegar þau voru komin út úr borginni, hafði hún enn einu sinni tekið upp hinn skelfilega ávana sinn að líta um öxl. Með fárra mínútna millibili leit hún út um afturrúðu bilsins. Var nokkur bíll á eftir þeim? Hún sá, að Hugh gaut til hennar augunum, og reyndi að hætta að líta aftur, en gat ekki ráðið við það. Og um tima leit út fyrir, að bílljós væru á eftir þeim í nokkv ’’’ fjarlægð. Hún vildi ekki fyrir neinn mur giara áliti sínu hjá Nortons-fjölskyldunni, en hú l gat þó ekki á sér setið að segja: — Hugsa sér, ef þeir finna mig á svo eyðilegum stað? Hugh brosti breitt. —■ Það er ekki sennilegt. En svo stirðnaði brosið á vörum hans. — Haldið þér kannski að okkur sé veitt eftirför núna? — Ég, . . . ég veit ekki, hvað halda skal. En það. . . . það er bílj á eftir okkur. Hugh leit í spegilinn í bílnum. Hann jók ferðina. Bílljósin, sem Margrét hafði séð. fylgdu þeim ekki. Það varð stöðugt lengra bil milli bílsins fyrir aftan og þeirra. En Hugh virtist ekki ánægður með þetta, heldur sneri bílnum snöggt in á lítinn stíg, sem lá inn í rjóður, þar sem stóðu jarðföst borð og bekkir fyrir skógargesti. Hann slökjíti á bílljósunum og drap á bilnum. Þau biðu þögul milli trjánna. Sportvagn ók fram hjá, og það var kona við stýrið. Hún var ein í bílnum og ók greitt með aðeins aðra hönd á stýrinu. Vélardynurinn frá vagni hennar dó út lengra upp með veginum. — Mér þykir mjög fyrir þessu, sagði Margrét hrygg á svip. — Gerir ekkert, svaraði Hugh. — En reynið þér nú að hvíla yður. Hann ók vagninum aftur á bak út á veginn. Þegar þau námu staðar fyrir framan sumar- bústað Nortons-fjölskyldunnar skömmu siðar, var Margrét að hugsa um, hvort ótti hennar hefði nú valdið því, sem hún í svipinn taldi mestu hættuna: að Hugh færi aftur að efast um. að saga hennar væri sannleikanum samkvæm. Hún gat ekki lesið neitt úr svip hans, þegar hann sagði: — Jæja, þá erum við komin. Þetta er sumar- höllin yðar næstu dagana, — en aðeins þar til við getum hugsað upp einhverja áhrifameiri að- ferð til þess að losa yður að fullu við þessa óþol- andi tilfinningu um ofsóknir. Hún óskaði þess, að hann hefði ekki notað þetta orð, en þagði. Hann gekk á undan henni í áttina að húsinu —’ En allt í einu nam hún staðar af einskærri undrun. Sumarbústaður, . . . nei, það var ekki rétta nafnið. Þetta var svo stórt, að hún varð næstum óttaslegin. Aðeins ein hæð, en álmur út í allar áttir, og umkringt stórum trjám. en trjákrónurnar sköguðu víða út yfir þakið. Þetta hlaut að vera dásamlegt hús á sóríkum sumardegi, — en núna . . . — Þetta er stórt hús, sagði Hugh. — Pabbi byggði það milli 1920 og 1930, þegar allt var ódýrara en það er nú. En okkur hefur aldrei fundizt það of stórt. Þér hefðuð átt að sjá drengja- hópinn, sem ég bauð hingað á sumrin. Hann gekk upp fá þrepin að aðaldyrunum og leitaði eftir skráargatinu. — Gerið svo vel, Þá erum við komin. Hann kveikti ljósið í anddyrinu. — Þér skuluð líta í kringum yður innan dyra Það eru fimm svefn- herbergi, svo að þér getið valið um. Hann kastaði gráum flókahattinum sinum frá sér á litið borð, en gekk síðan gegnum setustofuna og fór aö fást við olíuofninn og koma ýmsu öðru í lag, meðan Margrét skoðaði sig um. Það var ekki hátt undir loft í stofunni, en teppi á veggj- l*» um og bæði sófum og djúpum stólum komið fyrir framan við arininn. Þetta hús var áreiðan- lega betur búið húsgögnum en mörg þau, sem notuð voru til íveru allt árið um kring. Það voru dyr úr setustofunni í allar áttir, — Margréti fannst það hlióta að vera allt að því ein tylft dyra. Hugh opnaði einar dyrnar, og kom i ljós, að þar var gengið fram i borðstofuna. Margrét gekk á eftir honura gegnum borðstofuna fram í eldhús- ið. Það var ekki stórt, en eins og frú Norton hafði sagt, nægilega búið vistum til að fæða heilan her. — Hér virðist vera allt, sem bér þurfið. — Já, svaraði Margrét Rödd hennar skalf. Hann horfði á hana, og það var meðaumkun í augnarAðinu. — Ég held, að þetta sé hið bezta fvrir yður, sagði hann. — Ég er alveg viss um það. En iafn- vel hmn öruggasti stnður getur virzt dálit'ð draugnlegur. begar maður bekkir hann ekki. Viljið þér kan"=ki koma aftur til borgarinnar með mér? Hún tók sig á. — Nei. — Ágætt sagði hann og rétti benni litinn bnéf- poka. — Hér eru nokkrar töflur handa yður. Dyrnar inn í borðstof- una opnuðust og litli mað- urinn með glæra andlitið kom í ljós. Hún snéri sér við og leit í áttina að aðal- dyrunum. Úr svefnherberg- inu, sem hún var að enda við að yfirgefa, kom há- vaxni maðurinn með ýsu- augun. Takið tvær, áður en þér farið í rúmið, — ekki eina, heldur tvær. Það er áriðandi, að þér sofið vel í nótt, og það munuð þér ekki gera, ef þér liggið fyrst og hugsið . . . eða farið að heyra undarleg hljóð. Það eru áreiðanlega mörg hljóð hér, sem þér eigið ekki að ven.iast og koma yður því kynlega fyrir. Ætlið þér að gera eins og ég segi? Hún kinkaði kolli. — Já. ég skal taka tvær töflur. Og svo þakka ég yður . . . fyrir allt. —- Þakkið foreldrum yðar fyrir að hafa stuðl- að að komu svo fallegrar stúlku í heiminn. Og mun;ð svo eftir símanum, ef svo færi, að þér yrðuð af einhverjum ástæðum mjög hrædd. En verið fyrst viss um, að góð og gild ástæða sé til að óttast — Já. Eruð þér að fara? — Já, en ég hringi til yðar annað kvöld — um áttaleytið — og þar næsta kvöld aftur á sama tíma, — nema því aðeins, að við höfum fundið eitthvað betra fyrir yður, þegar þar að kemur. Hann strauk henni lauslega um kinn, en svo var hann farinn. Hún heyrði vélarhlióð'ð frá bilnum, þegar hann ók rólega niður krókóttan veginn, og hún sá bjarmann af bílljósunum. En eftir stundarkorn var ekkert að sjá né heyra framar. Hún var ein síns liðs. Það leið ekki á iöngu. áður en óttinn gagntók hana að nýju. og þóti hún berðist á móti því, gat hún ekki að sér gert að gruna Nortons-fólkið, — því að nú, Þegar hún var orðin ein eftir i þessu afskekkta húsi, fannst henni Það æ undarlegra, að þau skyldu flvtja hana einmitt hingað. Því meira sem hún hugsað' um það, þeim mun örugg- ari varð hún með sjáifri sér um, að einhver illur tilgangur hlyti að iiggja að baki. En hún skamm- aðist sin fyrir þennan grun og reyndi að bæla hann ‘niður. Gat hún verið örugg um sig hér? Ef til vill. Nortons-fjölskyldan hafði fullvissað hana um það. En þegar hún hafði verið falin hér nokkurn tíma. . . . hvað þá? Jafnvel þó að maður gerði ráð fvrir, að Norton gerði þetta i bezta skyni og vildi hjálpa henni og ekki gera henni neitt illt, — hvað þá síðar meir? Hvert átti hún að fara þá? Hún gat ekki búið hér lengi. og Það hafði komið í ljós, að henni tókst ekki að gabha ofsóknara Framh. á hls. 26. V I K A N 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.