Vikan - 28.01.1960, Qupperneq 4
bylíin
bíla
iðnað
A síðastliðnu ári gerðist mesta og
róttækasta bylting í bandarískum
bílaiðnaði, sem sagan kann frá að
greina, allt frá því er Ford gamli setti
„heiminn á hjól“. Að sjálfsögðu geklc sú
bvlting ekki hljóðalaust yfir fremur en
aðrar byltingar, og það er vafamál, hvort
nolckur bylting, sem enn hefur orðið f
heiminum, að rússnesku kommúnistabvlt-
ingunni ekki undanskilinni, hefur fengið
meira rúm í fréttum bæði í blöðum og
útvarpi — að ógleymdu síónvarpinu —
og ekki aðeins f Bandaríkjunum, heldur
og um allan hinn vestræna heim. Enda
mun það ekki heldur hafa verið tilgangur
þeirra, sem að henni stóðu, að henni yrði
beinh'nis haldið leyndri.
Að olíuframleiðslu og olíuverzlun und-
a.nskilinni er engin einstök framleiðslu-
eða verzlunargrein í Bandaríkjunum, sem
„veltir“ jafn-gífurlegum fjárfúlgum og
bílaiðnaðurinn, og allt það, sem gerist á