Vikan - 11.02.1960, Qupperneq 18
)fauifL*a%
se$i
ari
vj
t
Hrútsmerkið (21. marz—20. apr.): Vinur
ESsB þinn mun verða þér að ómetanlegu liði
tjfulfUt í vikunni, og ber þér að votta honum
gjlgQ þakklæti þitt eftir megni. Miðvikudagur
verður honum til mikilla heilla, en þær
ættu að vara sig á föstudeginum. E’inhver hlutur,
sem er þér ákaflega hjartfólginn mun týnast.
NautsmerkiÖ (21. apr.—21. maí): Þér
mun græðast fé í vikunni, en varaðu
þig að sóa því ekki öllu í fánýta hiuti.
Um helgina mun þér boðið i samkvæmi,
sem gæti farið algerlega út um þúfur,
ef þú reynir ekki að halda uppi fjörugum sam-
ræðum.
Tvíburamerkið (22. mai—21. júní): Þú
munt fara í skemmtilegt eins eða
tveggja daga ferðalag, og þar kynnistu
manni eða konu, sem vafasamt er að
treysta of mikið. Eftir helgina munt
þú lenda í einhverjum peningavandræðum, en góð-
kunningi þinn verður til þess að bjarga því við.
KrabbamerkiÖ (22. júní—23. júlí): Mikil
breyting verður á lifnaðarháttum þín-
um í vikunni, og hún til bóta, því að
tilbreytingarleysið undanfarið hefur
drepið í þér allan vilja og lífsþrótt. Með
kænsku átt þú tækifæri til þess að komast í þægi-
legri stöðu, en varaðu þig á því að það bitni ekki
á öðrum. Heillatala 8.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23.ág.): Ef þér
berst bréf í vikunni, skaltu svara því um
hæl, en kastaðu ekki til Þess höndunum,
því að mikið er í húfi. Varaðu þig á
laugardeginum, því að þá verða freist-
ingarnar miklar, og þú getur lent í mestu vand-
ræðum, ef ekki er farið að öllu með gát.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Vikan
verður ákaflega rómantísk, líkiega
munu margir bindast traustum vináttu-
böndum í vikunni, jafnvel fara að und-
irbúa giftingu. Helgin verður þó fremur
leiðinleg, ef þú ætlast til þess að allt sé fært upp
í hendurnar á þér. Heillatala 7.
Vor/armerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Vikan
verður fremur leiðinleg og tilbreyting-
arlítil, en láttu ekki hugfallast, því að
miklir og mikilvægir atburðir eru í
nánd. Miðvikudagurinn verður þó eink-
ar skemmtilegur, því að þá mun ein af óskum
þínum loksins rætast, og varpar þessi atburður
Ijósj á bað sem eftir er vikunnar.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú
verður mikið heima við I vikunni. Ö-
væntur gestur mun koma í heimsókn
og færa þér og fjölskvldu þinni kær-
komnar fréttir. Gamall kunningi þinn,
sem Jftið hefur komið við sögu undanfarið. mun
skyndilega hafa talsverð áhrif á gang málanna.
Boctmaöurinn (23. nóv.—21. des.): Vin-
ur binn mun koma með skemmtilega
uoDástungu í vikunni, sem snertir þig
talsvert, ef þú ræðst í þau stórræði, sem
hann hefur á prjónunum. Þú skalt samt
hugsa þig um vandlega, áður en þú ræðst i nokkuð.
Þú verður fremur uppstökkur í vikunni, en á
mánudag mun sannarlega úr því rætast
GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Sköp-
unargáfa þín fær að njóta sín í vikunni
og getur iafvel orðið til þess, að þér
bvðst tækifæri, sem bú hefur lengi
verið að bíða eftir. Þú munt líklega
koma fram opinberlega í vikunni og standa þig
með prýði. Varaðu þig á tölunni 5.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. febr.):
Einhver breyting verður á högum þín-
um i vikunni, en ekki segja stjörnurnar
neitt um það, hvort hún verður til bóta.
Þú munt skemmta þér óvenjumlkið í
vikunni, og er það vel, því að þú hefur verið ein-
um of þunglyndur undanfarið.
______ FiskamerkiÖ (20. febr.—20. marz): Þessi
vika verður ákaflega viðburðarik. Hver
atburðurinn mun reka annan, og óhætt
er að segja, að þú verðir í s.jöunda hirrni.
Sem sagt, allt virðist leika við þig.
Lá‘*u samt ekki gleði þína og velgengni stíga þér
til höfuðs.
0
G
©
Nálægt miðjum Laugavegi hafa tveir
iðnaðarmenn af gamla skólan-
um aðsetur sitt. Þeir eru vist
nólega iiinir einu, sem stunda þessa
iðn í höfuðstaðnum, svo að ætla mætti,
að samkeppnin væri hörð. Þeir voru
einu sinni álika mikilvægir i þjóðfélag-
inu og bílaverkstæði eru nú á dögum,
en tímarnir hafa breytzt, og þá hefur
nær dagað uppi með iðn sina. Við
litum inn til þeirra beggja á dögunum;
okkur fannst ekki réttmætt, að öðrum
yrði hampað, en hins ekki getið, þvi
að báðir eru þeir góðir iðnaðarmenn og
virðulegir borgarar.
Jón Þorsteinsson kallar sig söðla-
smið, en smíðar þó enga söðla og hef-
ur ekki gert árum saman. Hann hefur
aðsetur i gömlu, bárujárnsklæddu húsi,
sem snýr út að Laugavegi. Jón hefur
lifað 85 ár, og 60 ár hefur hann stund-
að iðn sina. Hann fór suður aldamóta-
árið frá Breiðabólsstað í Fljótshlíð, þar
sem hann hafði alizt upp, og lærði lijá
Andrési Bjarnasyni. Þá voru söðlarnir
í algleymingi, og söðlasmiðir báru nafn
með rentu. Hestvagnar voru þá að ryðja
sér til rúms, og þá skapaðist atvinna
við aktygjasmíði. Nú heyra hins vegar
bæði söðlar og aktygi sögunni til, og
einu verkefnin eru hnakkar og beizli
og fer þó sífellt xninnkandi. Jón segir
meiri hnakkasmíði fyrir utanbæjar-
Framhald á bls. 21.
Baldvin aktygjasmiður er ögn
innar við Laugaveg en
kollega hans, Jón. Hann
liefur víst aldrei verið kallaður
söðlasmiður, en þjóðkunnur fyr-
ir aktygjasmið sína. Þó er það
svo, að aktygi sjást ekki á vinnu-
stofu hans.
Það er öllu meiri hisnis-svip-
ur á fyrirtæki Baldvins; hann
stillir hnökkum og beizlum út i
glugga og hefur afgreiðsluborð.
Bak við það hanga kippur af
svörtum og brúnum rciðbeizl-
um með sldnandi stöngum og
keðjum.
Baldvin var byrjaður að læra
iðnina fjórum úrum fyrir alda-
mótin og er nú 84 óra. Hann er
farinn að bogna í baki af sex
áiatuga viðureign við leðrið, en
er þeim mun yngri i anda.
— Tímarnir nú eða upp úr
aldamótum, — það er eins og
dagur og nótt, segir Baldvin.
Okkur dettur i hug, að nú komi
fyrirlestur um hugsjónir alda-
mótanna og spillingu nútímans.
En .Baldvin hefur aðrar skoðan-
ir en margir ó hans aldri.
— Þetta er allt i framför. Ég
sé ekki, að ungdómurinn sé
gjálífur og spilltur. Auðvitað er
mörgu ábóta vant, en ég held, að
fólkið sé miklu fallegra og
skemmtilegra en var á þeim
tíma, enda líður öllum betur.
Það er auðvitað alltaf einhver
sori með. Það verður aldrei hægt
að komast hjá því. En það er
ólikt að sjá ungdóminn, þið
megið trúa þvi.
Baldvin kom austan úr Rang-
árvallasýslu eins og Jón Þor-
steinsson. Hann átti heima á
Herriðarhóli á bökkum Þjórsár,
en hóf síðan nám hjá Ólafi
Eiríkssyni á Vesturgötu. Þeg-
ar hestvagnarnir fóru að koma,
var Baldvin framsýnn og brá
sér til Noregs og lærði aktygja-
smiði. Þegar hann kom frá þvi
námi, var hann eini maður hér-
lendur, sem kunni það verk, og
liafði mikið að gera. Upp lir
1930 fór heldur að draga úr
aktygjasmíði, og það hefur ver-
ið hjá honum eins og Jóni hin
síðari ár: Aðalverkefnin eru
hnakkar og beizli, en þar að
auki ýmiss konar viðgerðir á
ieðurmunum. Baldvin segist nú
orðið vera skamman tima á
degi hverjum við vinnu, en
hann hefur mann með sér, sem
hann hefur gert að meðeiganda,
og fyrirtækið lieitir fullu nafni
Baldvin og Þorvaldur.
Baldvin ijáði okkur, að liann
vissi eJdyi J.il þess, að einn ein-
Framhald á bls. 21.
- Þetta er allt í framför
segir Baldvin aktýgjasmiður ••
b'yrir þremur mánuöum eöa svo var þessi unga
stúlka viö nám í París, og heímurinn vissi ekki um
tilveru Hiennar. Nú er hún oröin keisaradrottning
í Persíu, hefur þjóna og þernur á hverjum fingri
og yfirleitt allt, sem hugurinn girnist. Þannig gerast
ævintýrin enn i dag. Hún heitir Farah Díba og er
mjög fögur stúlka. Heimurinn hefur sannarlega feng-
ið aö vita af tilveru hennar upp á síökastiö, því aö
þetta nútímaævintýr hefur veriö ákjósanlegur frétta-
matur fyrir blööin. Og nú er bara, aö hún ali shahin-
um barn. Á því veltur framtiö hennar í keisarahöll-
inni í Teheran.
Það er frumsýning og aristókraiíið er á leiðinni í
leikhúsið til þess að sýna fínu fötin sín. Þessar dömur,
sem eru í þann veginn að ganga fram hjá okkur, eru
raunar konungbornar, en skorpnar og gamlar fyrir
aldur fram af óheilbrigðu líferni- Utan yfir flauels-
kjólunum bera þær kápur úr hermelíni, og heill jarð-
arfararkrans af orkídeum liggur yfir öxl hinnar
fremri. Glysgirni þeirra á sér engin takmörk: Þver-
handarbreið gimsteinaarmhönd prýða skrælnaðar
kjúkurnar, og niður magra bringuna lafir heilt tjóður-
band af perlufestum. En andlit þeirra Ijóma af góð-
mennsku, og ef til vill slá göfug hjörtu innan undir
skartinu.
Svo er það áhorfandinn. Hún er ein af þeim, sem
telur sig hafa orðið fyrir barðinu á lífinu, og kennir
þjóðfélaginu um það. Þess vegna mun hún í nánu vin-
fengi við þá fyrir „austan tjald". Hún tekur sér stöðu
við leikhússdyrnar til þess að geta virt fyrir sér þetta
„helvítis pakk“, sem henni finnst, að eigi sök á öllu
sínu volæði. / i j #!^EP
Tve/V af gamla skólanum