Vikan


Vikan - 03.03.1960, Blaðsíða 8

Vikan - 03.03.1960, Blaðsíða 8
SMÁSAGA Mánudagur. Elsku Rut mín. MÉR er það enn hulin ráðgáta, hvernig ég á að fara að því að gera skil tveimur verkefnum í senn, bæði að fylgjast með í skólanum og að gæta hins elskaða unnusta þins, Friðriks. Ef ég þyrfti ekki svo nauðsynlega að halda á þessum tuttugu krónum, sem þú ert búin að lofa mér sem dagskaupi fyrir njósnarastarfsemi mina, vildi ég helzt segja Þessum samningi okkar upp. Að þú skulir láta þér detta í hug að láta hana litlu svstur þína gæta þess manns, sem þú elskar? Hefði ekki verið skynsamlegra að rífast ekki síð- asta kvöld'ð eða að minnsta kosti að sættast við hann, áður en þú fórst í tveggja vikna ferða- lag? Hér koma þá fvrstu fréttirnar. — fyrst þú ert að borga mér fyrir þær. — Þú manst eftir mynd- inni af honum, sem bú lézt mig hafa, af því að ég þekkti hann ekki? Með hana í hendinni beið ég í dag eftir honum fyrir framan háskólann, þangað til hann kom út. Ég kannaðist strax við hann. Hann iít.ur fvrirtaks út. Reyndar er hann ekki alveg eins laglegur og á mvndinni, en ég skil, að bú ert hrifin af honum. En mér finnst bara Þetta að honum: Hann ætti að láta klippa hárið á sér. Nú á dögum hlevpur enginn sæmi- legur piltur lengur um göturnar með slíka lista- mannalokka. F.ftir að ég hafði fundið hann, elti ég hann auðvitað. var allt.af á hælunum á honum. Hann fór mður eftir L-stræti ng nam staðar fvrir fram- an bíó’ð. l»it sem snöggvast á úrið sitt og fór inn fvrir. Hvað átti ég að gera t.il að missa ekki af hnnum? Ég varð siálfsagt líka að fara í bWð. Og það var gott ég gerði Það, því að við miða- snluna beið ung stúlka eftir honum. Augsvnilega hntf5u þau bar stefnumót. Því að mér þykir mjög ólíkleet. að þau hittnst. þar af tilviljun. Hún var allt of lagleg og aðlaðandi til þess. — kannski aðeins of þroskuð, en þetta er nú einmitt tízkan nú á timúm Ég fór á eftir þeim og settist á bekkinn fvrir aftan þau. 1 bvriun var hegðun þeirra góð. Myndin var stórkostleg. — hönnuð unglingum innan átján ára. Hugsaðu þér, — ég. sem bara er sautján! Ég var svo hugfangin, að ég gleymdi alveg að fyigjast með þeim. Þegar myndin var búin, voru þau á brott. Mér leiddist þetta auðvitað mikið. Ég á eftir að læra töluvert, þangað til ég verð góður levnilögreglumaður. Otgjöldin. sem þú þarft að endurgreiða mér, eru þessi: bíómiði 15 krónur, strætó 3 kr. Ætli bú endurgreiðir mér einnig þær 5 kr.. sem ég kevpti mér gott fyrir í bíó? í Ég verð að hætta núna Meira á morgun. Þúsund kossar frá þinni þig elskandi systur og leynilögreglukonu Sallý. ÞriÖjudagur. Elsku Rut mín. í dag tókst allt miklu betur. Nú er ég búin að fá dálitla æfingu sem leynilögreglumaður. Ég hef setið um hann Friðrik þinn fyrir framan há- skólann. 1 þetta skipti fór hann rakleitt inn 5 kaffihús. Auðvitað sat hún þarna, þessi sæta. Hún var i voða flottri dragt, i mjög þröngu pilsi, á háum hælum. Ég er viss um, að hún stendur heima hjá sér tímum saman fyrir framan spegil- inn til að laga sig til. Að framan lítur hún út eins og hún Gína Lollobrigida, en ég trúi ekki, að þetta skuli allt vera ekta. Ég fékk mér sæti við hliðarborðið og pantaði mér ístertu, — mátti ég það ekki sem leynilögreglumaður þinn? Hann Friðrik þinn leit nokkur skipti til min, og ég svaraði honum með mjög ströngu augna- ráði, þú mátt trúa því. Því að hvers konar maður er þetta, sem fer með annarri stúlku í kaffihús, varla að þú ert farin í burtu? Og sjáðu nú til, hvað hann er frekur: Ég lézt lesa í dagblaði, meðan ég hlustaði á samtal þeirra. Þá stendur

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.