Vikan - 17.03.1960, Blaðsíða 2
0 Ný óöld
# Fljóta sofandi
# Hrottalega ástfangin
# Hver er systir Ólafíu?
FLASKA í VEÐI — BREGÐIST FLJÓTT VIÐ.
Kæra Vika.
Hjálpaðu okkur nú í hvelli. ViS erum hér
þrjú, Diddi, frúin hans og ég. Diddi segir, að
Oliva de Haviland — veit ekki hvernig á að
stafa það — og Jean Leslie séu systur, en ég
og frúin stðndum í þeirri meiningu, að Jean
Fontanie og Oliva séu systur.
Svaraðu nú fljótt. Við lögðum nefnilega flösku
undir, og sú vara kvað hækka mikið í verði á
næstunni.
Fyrirfram þökk.
ísfirzkt trió.
Eins og fyrr, þegar svipað er ástatt, verð
ég að leita á náðir lesendanna varðandi upp-
lýsingar. Ættfræði kvikmyndaleikara er mér
lokuð bók, hef þó hugmynd um að sú fræði-
grein muni vera meinflókin og mörg atriði
óviss, jafnvel svo að niðjatal Skarðs-Nasa
megi teljast óvéfengjanleg vísindi í saman-
burði við hana. En hafi einhver lesenda
vorra skjallegar heimildir — t. d. úr erlend-
um kvikmyndablöðum — fyrir því hver sé
systir hverrar, eru þeir vinsamlega beðnir
að láta okkur vita, og skera úr um það hver
eigi að drekka með hverjum. Dragist það,
skal tríóinu á það bent, svona til huggunar,
að vín fer ekki aðeins hækkandi í verði,
heldur og stórbatnandi með aldrinum.
NÝ ÓÖLD?
Kæri póstur.
„Móralistar“ eru yfirleitt taldir heldur leið-
inlegir og ekki allsendis að ástæðulausu. Mér
kemur ekki heldur til hugar að vera með nein-
ar umvandanir, en ég hef stundum að undan-
förnu verið að velta því fyrir mér, hvort ný
óöld sé að hefjast hér á landi. Maður þarf ekki
að vera neinn sagnfræðingur til þess að hafa
nokkra hugmynd um að slíkar óaldir hafa áður
gengið yfir þjóðina, sem hetur fer með nokkru
millibili, síðast um aldamótin 1800, svo dæmi
sé nefnt. Þá var drykkjuskapur mikill, sviksemi
í viðskiptum, misþyrmingar í ölæði, sukk og
óreiða í opinberu starfi, þjófar óðu uppi — og
loks náði þessi óöld hámarki sinu í ránum,
morðum og brennum, og var aðeins fyrir rögg-
semi og harðfylgi nokkurra sýslumanna, þegar
svo var komið, að tókst að binda endi á þetta
ófremdarástand. Nú finnst mér sækja mjög í
sama horf, þótt vonandi komi ekki til þess,
að óöldin nái aftur svipuðu hámarki áður en
tekið verður i taumana, enda þótt það sé við-
urkennt að sagan endurtaki sig. Væri ekki ráð
að kynna almenningi betur sögu þjóðarinnar
og draga dæmi og aðvaranir af henni, í stað
þess að fjargviðrast yfri því, að aldrei hafi æsk-
an verið jafn gerspillt, og svo framvegis ...
Vinsamlegast.
Þulur.
Eflaust hefur bréfritari mikið til síns máls,
að minnsta kosti finnst mér sjálfsagt að birta
bréf hans, lesendum til umhugsunar. Saga
þjóðarinnar verður alltaf skemmtilegt og
gagnlegt viðfangsefni, sem margan lærdóm
má veita — mun skemmtilegri og liklegri
til gagns en langar og yfirleitt leiðinlegar
vangaveltur, að maður tali nú ekki um for-
dæmingar, einstrengingslegra „móralista",
sem oft verða til þess að espa í stað þess að
draga úr, enda þótt meiningin sé ekki nema
góð.
■ i* :* j
hb*' n
r ^ | 5 # 1 7. ,
IðE 1 j&
Það borgar sig
að Iíta við í SKEIFUNNI áður en þér festið kaup á húsgögnum.
Öll neðsta hæð Kjörgarðsins er þakin í'allegum og vönduðum
SKEIFUHÚSGÖGNUM.
Það er sama hvert litið er, allsstaðar blasir við mikið úrval af form og
Iitfögrum nútíma SKEIFUHÚSGÖGNUM.
Svefnherbergi
Borðstofur
Dagstofur
SKEIFAM
\
KJÖRGARÐI Laugavegi 59
Skólavörðustíg 12.
7