Vikan - 17.03.1960, Qupperneq 17
Einkum
fyrir Reykvíkinga
KUNNUGUR
BÆNUM?
]>eir, sem hafa biiiíi í Heykjavík
árlangt e?Sa lengur og haft
taikifæri til þess að korna lit fyrir
hússins dyr, munu hafa
séð þessi liús og þessar götur
nægilega oft til þess að þekkja
af myndum, ef eftirtektin hefur
verið einhver. I>eir, sem eru
uppkomnir og fæddir i Reykjavík,
hafa vafalaust séð þessa
staði mðrg hundruð sinnum. Og
þá kemur hin svivirðilega spurn
ing: Gangið þið blindandi um
bæinn ykkar, góðir hálsarV
Það er varia þess virði að hrósa
ykkur, þótt þið þekkið ailar
myndirnar, en ef það kæmi nú
upp úr kafinu, að allmikið vantaði
þar á, J>á viljum við benda
á, að sá nýtur lifsins
ekki í fullum mæli, sem gefur
sér ekki tima til að virða fyrir sér
umhverfið.
Svör á bls. 3
Myndin til hægri:
Þvílíkar andstæður: braggi, gadda-
vír og dýrindis íbúðarhús. Við höf-
um heyrt þetta hús kallað Kristjáns-
borgarhöll, — seljum það ekki dýr-
ar en keyptum og vitum ekki, hvort
það er fyrir lotningu eða öfund. —
Það er íbúðarhúsið, en ekki bragg-
inn, scm við eigum við. Spurningin
hljóðar svo: Við hvaða götu stend-
ur íbúðarhúsið?
Við höldum því eindregið fram, að þetta hús sé eitt hið fallegasta, sem til er í gamla
bænum. Aðeins örfá hús i Reykjavík eru by Tgð með þessu lagi, en aftur á móti er það
mjög nlgengt á Eyrarbakka og er líklega af dönskum uppruna. Þetta gamla hús stendur
á stórri lóð og sést víða að. Það býr yfir sér tennilegri, myndrænni fegurð, sem þú hlýtur
að hafa tekið eftir. En við spyrjum aðeins: Við hvaða götu stendur húsið?
Nei, þetta er hvorki Grindavík né Stokkseyrarbakki. Það er ein-
ungis Reykjavík. Grásleppuútgerðin næst og afar „fínt“ íbúðar-
hverfi í baksýn. Við viljum fá að vita, hvað gatan heitir, sem íbúðar-
húsin standa við.
Þeir munu þekkja sig þarna, sem ólust upp í Reykjavík um alda-
mótin og upp úr þeim. Þá var líf og fjör í þessum bæjarhluta, en
nú er hann hrumur af elli. Eftir malargötunni ganga þreyttir verka-
menn og virða fyrir sér hvfta fótleggi, — ekki dauðir úr öllium
æðum. En hvað ætli gatan heiti?