Vikan - 23.06.1960, Qupperneq 2
O. JOHNSON & KAABER
kaffibílarnir aka daglega í allar mat-
vöruverzlanir bæjarins með ilmandi
Johnson & Kaaber kaffi nýkomið
úr vélunum — Allar flutningaferðir
út á land flytja ný brennt og
malað Johnson & Kaaber kaffi
— Þannig er það alltaf öruggt
að......
.....ilmurinn er indæll
og bragðið eftir því
KAFFIBRENNSLA
I
. JOHNSON & KAABER %
• Pési um bíla
• Aldarspegillinn
• Lokað vegna sumar-
leyfa
• Nýr útvarpsþáttur
Á BÓKSTAFLBGA AÐ ÆRA MANN ...
Kæri póstur.
Ætli það hafi nokkurntíma tíðkast á meðan
höðlar voru og hétu, að fólk hafi verið látið
borga þeim — og það ríflega — fyrir flenging-
ulia. Ekki skil ég i að neinn hefði gert það
með glöðu geði.
Mér finnst að svona sé það þó með útvarpið.
Við eigum að borga því fyrir að æra úr okkur
allt vit með látlausum glymjanda allan daginn.
I>að er þýðingarlaust fyrir litvarpsstjóra að hafa
]>að i svari sínu, að maður geti bara lokað fyrir.
Á vinnustöðum eru alltaf einhverjir — sérstak-
lega taugabilaðar stútungskerlingar — sem vilja
liafa þennan glymjanda i eyrunum sí og æ, og
útvarpið styður þessa kröfu þeirra með því að
kalla þetta garg: „í vinnutímanum“. Og svo er
farið að vilja minnihlutans, því að ekki má
kúga hann.
Á hókstaflega að æra mann eða hvað? Og á
maður svo að horga höðlinum fyrir hýðinguna?
Vinsamlegast.
Músikalskur.
Mér fannst það fyrst í stað dálítil mótsögn,
að höfundur bréfsins skyldi velja sér þetta
dulnefni. En sennilega cr það einmitt þvert
á móti. I>að eru einmitt þeir músikölsku,
sem ekki þola að heyra tónlistinni misþyrmt,
en ekki getur öllu verri niisþyrmingu á tón-
list en þá, að láta hana sífellt glymja í eyr-
um manns um misjöfn tæki, og við hin lök-
ustu hljómburðarskilyrði, eins og eru á
mörgum vinnustöðum. Ég hef einu sinni
sem gestur heyrt Panus Angelikus Cesars
Franks glymja öllu hærra í vélasal, þar sem
ekki heyrðist mannsins mál fyrir skrölti og
skrattagangi. Hefði C. Frank heyrt það ...
Ég er bréfritara sammála. Ég er honum líka
sammála hvað snertir að það sé taugabilun
að vilja hafa útvarpstónlist sí og æ í eyr-
unum, við hvaða verk sem er. Ég held að
það yrði vel þegið af hlustendum yfirleitt,
að útvarpið drægi úr tónlistarhellingi sín-
um — jafnvel þótt gjaldið yrði ekki lækkað
þar fyrir.
UM BÍLA.
Kæra Vika.
Ég las einhversstaðar um daginn, að það væri
hægt að fá lítinn pésa, sem fjallaði um híla, og
var öllum, sem ætluðu að kaupa bil, ráðlagt
að verða sér úti um hann, ef þeir hefðu sjálfir
takmarkað vit á bilum. Getur þú sagt mér livar
hægt er að l'á þennan pésa og hvað hann kostar.
Með fyrirfram þökk.
Dedda.
P. s. Geturðu sagt mér hvað ökupróf kostar
allt í allt?
Þarna mun vera átt við pésa þann um bíla,
sem Neytendasamtökin gáfu út ekki alls fyr-
VIKAN