Vikan - 23.06.1960, Síða 16
Wfl
BARNAGAMAN
Brosandi
asninn
Hann fteddisl í afar lirörlegn
hesthúsi einhvers staðar í Suður-
Portúgal. Foreldrar hans voru eins
og aðrir asnar, staðir, þrjózkulegir
og mjög mæðulegir á svip. Það var
skinandi gott veður, ]>egar sá litli
sá dagsins Ijós, og himinninn fagur
og blár. Það var dálítil gola, svo að
hitans gætti ekki eins mikið, og
trén breiddu laufskrúð sitt í allar
áttir, sem bærðist léttileg i vind-
inum.
— Það var drengur, hneggjaði i
asnapabba. Hann skalf svolítið eftir
hina æsandi bið. — Það var drengur,
mjög föngulegur og fagur. En þetta
var mikil þiiiiut fyrir konu mína.
Hinir asnárnir hneggjuðu til að
samgleðjast asnapabba og vöknuðu
um granirnar. Ef einhver annar
en asni hefði séð þetta, hefði hann
mátt halda, að eitthvað leiðinlegt
hefði komið fyrir. En þannig sýna
asnarnar gleði sína.
— Hvað á hann að heita? hróp-
uðu þeir svþ hver upp í annan.
Asnapabbi hrukkaði ennið hugsandi
á svip, og eyfíu hans stóðu upp í loft-
ið eins og tvsér gríðarstórar agúrkur.
Asnarnir þyrptust forvitnislegir í
kringum hanp.
í þessu kgm bóndinn á bænum
inn í hesthúsið. Er hann sá hið
nýfædda folald, strauk hann þvi um
hálsinn brosandi og sagði um leið:
— Angelo. Qg það var litli asninn
látinn heita. '
Asnamamman lá og sleikti af-
kvæmi sitt. ,Hún var lítið eitt vot-
eygð og það höfðu setzf flugur i
augu hennar.
Það var eitthvað við hinn ný-
fa;dda asna, sem ekki var svo auð-
velt að skýra, eitthvað sérstakt,
jafnvel þótt þann hefði þessi Iftngu
eyru og værj grár á Jitinn eins og
allir aðrir asnar og hefði hala, lang-
an og mjóan eins og rúllugardínu-
snúru. Og afturfæturna gat hann
rekið niður í moldargólfið, þannig
að ómögulegt væri að mjaka honum
til. Það var fátt, er gat komið ösn-
itnmi* úr jafnvægi, og þrjózkan
fannst þeim vera göfugust allra
kennda. En það var eitthvað yfir
Angelo, sem gat e. t. v. útskýrzt með
orðunum, að liann hefði fæðzt vel
upp alinn. Það voru einkanlega aug-
un, sem vöktu athygli manns. Það
var eins og fælist í þeim einhver
máttur. Og svo var eins og flugur
flögruðu í augnkrókunum á honum.
Dag nokkurn, cr Angelo rölti um
í túninu rekandi nefið ofan i allt,
sem hann sá, og veltandi um mjólk-
urskjólum, heykvíslum og ljám kom
óttalegt fyrir. Langi rúllugardínu-
halinn hans hafnaði ofan i tjöru-
fötu bóndans og síðan veifaði
Angelo halanum í allar áttir með
þeim afleiðingum að hann hafnaði
á hvítkölkuðum veggjum bóndabæj-
arins og varð hann allur útataður
alla vegana skrítnum svörtum
myndum. Bóndinn varð æfareiður,
reifst og skammaðist og hótaði að
lumbra á aumingja litla asnanum.
Hann tútnaði af bræði og varð rauð-
ur i framan sem kvöldsólin og aug-
un ranghvolfdust í honum. Þá brosti
Angelo. Og aldrei höfðu flugurnar
flogið fjörlegar í augnkrókunum á
honum ... í þessu lá falið þetta
undarlega, sem hvorki menn né asn-
ar gátu skilið. Hann virtist ekkert
skammast sin. Aftur á móti virtisf
hann hinn ánægðasti með tilveruna
og brosti bara. — Bannsettur bjálf-
inn þinn, heldurðu að þú getir bara
brosað framan í mig eftir þessi
skemmdarverk þinV hvæsti bóndinn
út úr sér. Hann varð jafnframt ótta-
sleginn og krossaði sig, því asni, sem
gat brosað, var eitthvað óttalegt í
hans augum. Þetta hlaut að vera
einskis nýtt vinnudýr. — En blddu
hægur, kall minn, ég skal kenna þér
til verka, þusaði hann fokreiður, —
og ég skal koma þér í skilning um,
að þér ber að vera þungbúinn og
sorgmæddur á svip.
Nú l'ór í hönd erfiður tfmi fyrir
Angelo. Eldsnemma morguns var
hann drifinn upp og rekinn út úr
stallinum sínum. Mamma hans
horfði eftir honum sorgmæddum
augum. Svona snenuna fóru ekki
asnar á fælur. f túnjaðrinum var
Angelo siðan hlaðinn með níðþung-
um sekkjum. Siðan var hann rekinn
af stað og leiðin var afar löng og
erfið, sem haiin varð að ganga.
Sjálfur sat bón.iinn á efsta pokan-
um á baki hans og danglaði, eða
Framliald í næsta blaði.
Ráð sem duga
Þvottapoki
Hér kemur mjög
skemmtilegur þvottapoki,
sem er tilbreytni frá þeim
venjulega.
Efnið er meðalgróft
bómullargarn, sem má
vera í hvaða lit sem fyr-
ir hendi er, gjarnan má
vinda saman tvo liti.
Prjónar nr. 4—5.
Viljum við hafa þvottapokann grófan, vindum við saman 4
þræði, þá er stærðin á 6—8 ára og 12—14 ára.
Byrjið neðst og fitjið upp 45 (60) I. og prjónið með garðaprjóni
30 umf. Prjónið næstu umferð þannig að prjóna fyrstu 30 (40)
1., en snúa síðan við og prjóna til baka yfir þessar 30 (40) 1., 24
(30) umferðir.
í næstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar saman tvær og tvær
um leið og þær eru felldar af.
Dragið nú garnið i gegn um lykkjurnar, sem eftir eru og gangið
frá endanum. j
Prjónið nú áfram lykkjurnar, sem geymdar voru, 34 (40) 1.
(frá þumalfingri).
Fellið af, gangið frá á sama hátt og saumið pokann saman
á röngu.
Afjjurrkunarklútarnir. — Næst þegar þér þvoið afþurrkunar-
klútana, skuluð þér setja 2 matsk. glyserin í 1 líter af vatni
og skola klútana upp úr. Þegar þeir eru orðnir þurrir er mjög
gott að nota þá, því þeir sjúga rykið svo vel 1 sig.
Baðkör. — Emaleruð baðkör sem eru orðin blettótt og Ijót,
er auðvelt að hreinsa vel upp úr trinatriumfosfati. Setjið það
á bursta eða votan klút, eins og um skúriduft væri að ræða.
Venjulegt skúriduft má aldrei nota á emaleraða hluti.
Salatblöð. — Græn salaíblöð haldast mikið lengur fersk, ef
þér geymið þau i loftþéttri niðursuðukrukku án þess að
þvo þau.
Smjörrúllur. - Ef þér hafið ekki rifflaða tréskeið til þess að
búa til smjörrúllurnar, |iá getið þér auðveldlega notað osta
hefilinn, svo framarlega sem smjörið er ekki of lint.
Suða á mjólk. — Næsl þegar þér sjóðið mjólk skuluð þér prófa
að strá muldum sykri yfir mjólkina um leið og þér setjið
pottinn yfir. Það má ekki hræra í mjólkinni fyrr en grjónin
eru sett út i. Þessi aðferð útilokar að mjólkin brenni við.
Ef neglurnar
vilja brotna
ÁÖur fyrr voru neglurnar á
mér svo brothættar, að þær
þoldu ekld einu sinni að það
væri horft á þær. En núna er
þetta liðin tíð — þökk sé
þessum góðu ráðum, sem ég
hef fylgt af mikiili nákvæmni:
1) Lakkið neglurnar aldrei al-
veg út í kantana, skiljið
mjóa rönd eftir. Annars geta
þær ekki „andað“.
2) Notið sem minnst naglalakk,
ef nöglunum hættir til að
brotna langsum.
3) Smyrjið alltaf feitu og nær-
andi kremi á neglurnar, þeg-
ar þér hafið notað nagla-
lakkseyði, því hann þurrkar
svo neglurnar.
4) Kaupið hin nýju vítamín-
naglakrem, sem komin eru
á markaðinn. Þau eru að
visu dýr, en það borgar sig,
neglurnar vaxa svo fallega,
»f þau «ru notuð.