Vikan - 23.06.1960, Qupperneq 23
Ritstjóri:
Gísli Sigurðsson (ábnu)
AuglýsiuKastjóri:
Ásbjörn Magnússon
Framk vœmdastj óri;
Hiiroar A. Kristjánsson
il: H.F.
Hitstjórn og auglýsijagar;
Skipholti 33.
Símar: 35320, 35321, 35322.
Pósthólf 149.
Afgreiðsla og dreifingr
Blaðadreifing, Miklubraut 15, sími 15017
Verð í lausasölu kr. 15. Áskriflarverð er Prentun: Hilmir h.f.
200 kr, ársþriðjungslega, greiðist fyrírfram Myndamót: Myndamót h.f.
Þið fáið Vikuna / hverri viku
í næsta blaði verður
meðal annars:
♦ Komir þú á Grænlands grund. — Grein um Græn-
land og Grænlendinga — ríkulega myndskreytt.
♦ Sumarstúlka Vikunnar 1960. — Sú. f jórða í röðinni:
Ágústa Guðmundsdóttir, forsíðumynd og ein síða
með viðtali og myndum.
♦ Verðlaunakeppnin — 2. þáttur. Þrenn glæsileg verð-
laun.
♦ Benni var erfiður. — Viðtal við Ævar R. Kvaran
leikara.
♦ Brúðkaupsdagur unga mannsins, — smásaga.
♦ Siðgæði æskunnar og atómsprengjan. — Eftir
Dr. Matthías Jónasson.
♦ Þrjár verur í einum klefa — saga.
*
f I V
— Þetta hefði nú verið kölluð hryggspenna í mínu ungdæmi.
V I K A N
Hrúts.nerkið (21. marz—20. apr.): Reyndu að vera
sem bezt búinn undir þá breytingu, sem þú átt i
vændum, annars getur illa farið. Undanfarnar vikur
hafa kunningjar þínir verið með dálítið einkennilegt
á prjónunum, án þess að þú hefðir hugmynd um, en
nú mun ráðabrugg þeirra loks bera ávöxt, og nýtur þú góðs af.
Sunnudagurinn verður konum til mikilla heilla.
NautsmerkiÖ (21. apr.—21. maí): Þú færist nokkuð
rnikið i fang í vikunni, og þú mátt ekki fyllast óþol-
inmæði, þótt þú getir ekki framkvæmt allt í einu.
Orðrómur gæti komið illindum af stað, ef þú reynir
ekki að komast að hinu sanna í málinu. Líklega
rætist ein ósk þin um eða eftir helgina, og átt þú það ein-
göngu einum í fjölskyldunni að þakka.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní): Það er sannar-
lega brevtinga þörf á högum þínum, og ætti það að
vera þér hægðarleikur, þótt ekki líti það þannig út.
Gamall kunningi þinn veldur því, að nokkur breyt-
ing verður á áformum þínum, en líklega máttu vel
við una. Þú munt þurfa að velja milli tveggja kosta í vikunni,
og skaltu hugsa þig vel um, áður en þú tekur nokkra ákvörðun
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þú hefur farið
rétt af stað í máli, sem þér er mjög annt um, en hætt
er við að einhver komi þér af réttri braut, ef Þú gáir
ekki vel að þér. Þú munt lifa margar ánægjustundir
á vinnustað. Lofaðu ekki meiru en unnt er að efna,
ef einhver biður þig um aðstoð. Þú munt skemmta þér talsvert
miklu meira í þessari viku en undanfarnar vikur.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þú ert allt of hlé-
drægur og vantreystir sjálfum þér til svo mikilla
muna, að þegar þér berst ómetanlegt tilboð í vik-
unni, er hætt við að þú hafnir því einungis sakir
þessa. Hér er sannarlega breytinga þörf. Á miðviku-
dag ferð þú á stað, sem þú hefur aldrei komið á áður og kemur
um leið viðkomandi þægilega á óvart.
Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Þótt þér sé um-
hugað um að ná marki því sem þú hefur sett þér,
verður þú að muna, að frístundir þinar eru þér
bráðnauðsynlegar og ekki ætlaðar til strits. Maður,
sem veit ekki hvað hann á að gera við tíma sinn
getur orðið þér til ama, og skaltu reyna að bægja honum frá
þér með kænsku, án þess þó að hann móðgist. Heillatala 4.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): 1 vikunni verða
gerðar miklar kröfur til þin, og bendir allt til þess
að þú standist þær kröfur. Þú munt komast að þvi
áþreifanlega í vikunni, að þú átt bæði vini og óvini,
en til allrar hamingju eru vinirnir yfirsterkari. Eftir
helgina ferð þú í heimsókn, og þá er hætt við að þú lendir i
einhverjum erjum, en kunningi þinn getur einn komið á sætt-
um. Heillatala 6. Heillalitur blátt.
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Þú gætir notið
lífsins miklu betur, ef þú lærðir að koma auga á
hinar jákvæðu hliðar þess í stað þess að þrá í sífellu
löngu liðnar gleðistundir. Gerðu strax áætlanir um
framtið þina og reyndu að gera kröfurnar sem
strangastar, þá blessast allt. Kvöldin verða með allt öðrum
blæ en undanfarið, og kvöld eitt eftir helgina ferð þú þangað,
sem þig hefur lengi langað til að komast.
BogmaÖurinn (23. nóv,—21. des.): Þú verður að fara
að öllu með gát í vikunni, því að eitt lítið víxlspor
gæti komið þér illilega í koll. Þetta gildir á vinnu-
stað jafnt sem heima við. Kunningi þinn, sem í fyrri
viku gerði þér rangt til vill reyna að bæta þér þetta,
þess vegna skaltu ekki sýna honum þennan kulda. Bréf, sem
þér eða einhverjum í fjölskyldunni berst, getur skipt framtið
þína miklu.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þú munt þurfa að
gera breytingu á vinnuaðferðum þínum, því að þú
ert orðinn allt of vélrænn við vinnu þína. Reyndu að
fá sem mest út úr vinnu þinni og skapa þér eins
mikla tilbreytingu og þér er unnt, annars getur svo
farið að þú færð andstyggð á vinnu þinni, og er það miður. Þú
ert allt oí hirðulaus i peningamálum.
VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.): Þú ert að verða
allt of þröngsýnn og átt orðið erfitt með að vega og
meta skoðanir annarra. Þú Þarft á umhverfisbreyt-
ingu að halda, þvi að dapur hversdagsleikinn er far-
inn að skilja eftir sig leiðinlega drætti í lunderni
þínu. Laugardagur verður konum til heilla en mánudagur körl-
um. 1 sambandi við trúlofun kemst allt á annan endann.
Fiskmerköi (20. feb.—20. marz): Þessi bölsvni er al-
ElTo(J| gerlega óþörf. Reyndu að lita á meðbræður þína.
Ekki eru þeir neitt. betur settir en þú. Þú verður að
Tir læra að gera þér mat úr þeim gleðistundum, sem
dagurinn hefur upp á að bjóða. Þú hefðir gott af því
að fara í ferðalag, og skaltu nota fyrsta tækifæri til þess. Seinni
hluta vikunnar munt þú finna mikla gleði, ef þú sýnir sjálf-
stjórn. Heillalitur karla rautt en kvenna gult.
*v!vlv!v*vlv5v!**v!v%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
«♦%%%: