Vikan - 23.06.1960, Page 25
„Beizk uppskera*' yar fyrsta kvikmynd Silvönu.
Ilér er hún að dansa við Vittorio Gasaman.
tíð verða fátæka en lífsglaða hrísgrjónastúlkan frá sléttum
Norður-Ítalíu — klædd í stutl pils og háa svarta sokka.
Silvana varð þrjátíu ára nú fyrir skömmu — það var hinn 23.
apríl 1930 að hún sá dagsins ljós í Rómaborg, Þegar hún var
fjórtán ára fór hún í dansskóla. Henni sóttist námið mjög vel,
enda tók hún það alvarlega eins og raunar allt annað, sem liún
tekur sér fyrir hendur. Og í „Beizk uppskera“ mátti sjá, að liún
hafði einhvern tíma áður stigið dansspor.
Og Silvana liefði áreiðanlega getað orðið dansmær á heims-
mælikvarða hefði hún haldið áfram á þeirri Ijraut. En árið 1947
fengu nokkrir kunningjar hana til þess að taka þátt í keppni um
titilinn „Ungfrú Róm“. Silvana bar sigur úr býtum, þótt keppnin
væri geysihörð. Einn harðasti keppinauturinn var dökkhærð
stúlka að nafni Gina Lollobrigida ... En þegar átti að fara að
velja „Ungfrú Ítalíu“, dró Silvana sig til baka, — lnin hafði ekki
meiri áhuga á fegurðarsamkeppnum.
Þess ístað lau khún við dansskólann og starfaði um skeið sem
sýningarstúlka. Hún fékk einnig nokkur smáhlutverk i fræðslu-
kvikmyndum, sem amariska lijálparstofnunin C.A.E.E. y'crði.
ÞAÐ var um þetta leyti sem ítalski leikstjórinn Giuscppe De
Santis var að leita með logandi ljósi að stúlku til að leika
aðalhlutvrekið i kvikmyndinni „Beizk uppskera'*. Honum
voru sýndar nokkrar myndir af Silvönu og þar með var
málið leyst. Silvana var ráðin á stundinni. Og hvorki hún eða
De Santis hafa þurft að sjá eftir því!
Eftir sigurinn i „Beizk uppskera“, streymdu auðvitað kvik-
myndatilboðin úr öllum áttum til Silvönu. Hún gerði margra ára
samning við „Lux film“. Af þeim myndum sem Silvana lék í næstu
árin munum við bezt eftir „Önnu“, en þar þurfti Silvana á allri
sinni dans- og söngkunnáttu að halda. Meðan verið var að taka
kvikmyndina hitti Silvana ungan kvikmyndafram.eiðanda, Dino
De Laurentiis að nafni. Og 7. júlí 1949 gengu þau í heilagt hjóna-
band.
De Laurentiis vildi auðvitað reyna að finna hlutverk, sem hæfði
hinni ungu og fögru konu sinni, í sínum eigin kvikmyndum, og
það fann hann i myndinni „Sjóhetjan" (Ulysses). Þar leikur
Silvana tvö lilutverk — leikur bæði hina lokkandi seiðkonu Circe
og hina tryggu eiginkonu Ulysses, Penelope. Silvana skilaði báð-
um þessum verkefnum með ágætum.
Áður cn hún tók til við næstu mynd sína, „Mambo“, fór hún
á fimm mánaða dansnámskeið til liinnar þekktu danskonu
Katherine Dunham. Eftir það fannst hcnni lnin geta tekið við
hlutverkinu — stúlkan sem var „fædd til að dansa“.
SILVANA hefur komist lijá því að lenda í ákveðnum „hlut-
verkabás", eins og oft vill koma fyrir leikkonur, sem verða
snögglega frægar. Hún hefur liaft til meðferðar hin ólíkustu
hlutverk. í mynd Vittorio de Sicas, „Gold of Naples", lék hún
t. d. litið, en mjög erfitt hlutverk. En meðferð Silvönu á því hlut-
verki skipaði henni í fremstu röð ítalskra skapgerðarleikkvenna.
í myndinni „Menn og úlfar“ leikur lnin á móti Yves Mortand
hinum franska, á móti Antony Perkins í „Heitu árin“, og í „Hið
• mikla stríð“ á móti Vittorio Gassman. Hún hefur einnig verið
driffjöður i kvikmyndaiðnaði eiginmanns síns og gert margar
hans myndir heimsfrægar. Ein af þeim, „Dóttir hershöfðingjans“,
verður sýnd í Tjarnarbíó núna á næstunni og er stuttur efnis-
úrdráttur úr myndinni á bls. 34 hérna i blaðinu.
Þrátt fyrir alla sína leiksigra vill Silvana alls ekki láta kalla
sig „stjörnu“. Ég er aðeins leikkona, segir hún. Henni finnst allir
ljósmyndarar — utan kvikmyndaversins — vera plága og neitar
að stilla sér upp fyrir framan myndavélar þeirra. Svo þeir verða
að hafa fyrir þvi að ná myndum af lienni án hennar hjálpar. Hún
liatar einnig að sýna sig sérstaklega á opinberum stöðum, og að
taka þátt i veizlum „fina fólksins".
Fram yfir allt annað tekur Silvana heimilislífið. Hún er mjög
lieimakær og miðpunktur tilveru hennar eru jjau Dino, Rafaella.
Veronica og Frederico.
— Mér þykir mjög gaman að leika, segir Silvana. — En ég álít
að staður konunnar sé fyrst og fremst heimilið og uppeldi barna
hennar sé stærsta verkefnið. Ég læt starfið við kvikmyndirnar
aldrei ganga út yfir börnin mín. Mitt stærsta hlutverk mun ávallt
verða hlutverk móðurinnar. ★
Silvana fórnaði sínu fagra hóri, er hún tók við nðalhlutverkinu
í „Jovanka“, sem er áhrifamikil kvikmynd um skæruhernað í
Júgóslavíu.