Vikan - 23.06.1960, Blaðsíða 33
Sumarstúlka
Framh. af bls. 6.
kannski segja, að það sé að \era í
sveit, að vera í skóla á Núpi í Dýra-
firði. Það er að minnsta kosti ekki
í kaupstað.
— Hefur þú auðgað anda þinn
þar vestra?
— Ég var þar i vetur og lauk það-
an gagnfræðaprófi.
— Og síðan hefur þú verið í Holts
Apóteki?
— Ég gerði námssamning við
apótekið og ætla mér að Ijúka þess-
um þriggja ára námstima, sem þarf
til þess að verða defektrice, eins og
það heitir á fagmáli.
— Hvaða róttindi veitir þetta
náai?
— Þá hefur maður réttindi til
þess að afgreiða í lyfjabúðum.
— Er þá ekki liægt að ráða sig
til afgreiðslustarfa í apóteki án
þess að hafa þetta próf, eins og í
öðrum búðum?
— Jú, það er hægt, en það eru
betri kjör fyrir þá, sem hafa lokið
þessu námi.
— Svo þegar starfsdeginum er
lokið — hvað gerir þú þá við tim-
ann?
— Ja, þaö veit ég eiginlega ekki,
ekkert sérstakt held ég. Stundum er
ég í skapi til að lesa og þá les ég,
ef ég hef einhver skemmtileg tíma-
rit við höndina — eða Vikuna. Já,
stundum les maður hana.
— Ekkert annað lesefni?
— Jú, skáldsögur, sérstaklega
ástarsögur.
— Þar sem elskendurnir ná sam-
an i lokin og allt fer vel ...
— Já, endilega þannig.
Aukið blæfegurð liársins . ..
með hinu undraverða
WHITE RAIN fegrandi Shampoo . . . þetta
undraverða shampoo, sem gefur hárinu
silkimjúka og blæfagra áferð.
petta ilmríka WIIITE RAIN shampoo . . .
gerir hár yðar hæft fyrir eftirlætis hár-
greiðslu yðar.
petta frábæra WHITE RAIN shampoo
. . . lætur æskublæ hársins njóta sín og
slær töfraljóma á það.
Hvítt fyrir venjulegt hár —
Blátt fyrir þurrt hár —
Bleikt fyrir feitt hár.
WHITE RAIN shampoo-hæhr yðar hári.
HEILDVERZLUNIN HEKLA H.F.
Hverfisgótu 103 —- Simi 11275.
— En ekki liggurðu alltaf yfir
lestri.
— Nei, svo sannarlega. Stundum
fer ég í bió, sérstaklega ef það eru
góðar dans- og söngvamyndir og
fínar myndir, sem fara vel.
— Það sýnir gott innræti, að þú
vilt láta sögur og myndir fara vel.
— Geturðu nefnt mér einhvern
uppáhaldssöngvara, sem þú vilt
ógjarna missa af.
— Ég er nú hrædd um það.
Presley er sá eini, hann er alveg
kóngur.
— Jæja, er það svo. Þú spilar
kannski á gitar eins og hann.
— Ja, ég spila á gitar já.
— Og stendurðu þá gleitt eins og
Presley og tekur bakföll?
— Nei, ertu frá þér. Ekki svo að
skilja, að ég hafi ekki gaman af
klassiskri músik líka — jafnvel
fúgum og prelódium.
— Ertu eina barnið á bænum?
— Ég á tvo bræður, einn eldri
og annan yngri.
— En enga systur?
— Nei.
— Svo þú hefur þá euga til að
rífast við.
— Jæja, mér finnst nú vera liægt
að rífast við l)ræður sína.
— En það gerir þú auðvitað ekki.
Svo er annað, sem mig langar til
að spyrja um, því að allir vilja
örugglega vita það: Ertu trúlofuð
eða nokkuð í þá átt?
— Eg kann ekki við að svara því.
— Þú veizt kannski ekki, hverju
þú mátt svara?
— Nei.
—■' Gæti verið ábyrgðarhluti að
segja eitthvað?
— KannskP já. Við skulum alveg
sleppa því.
Svo þurfti hún að fara út og mátti
ekki vera að þvi að tala meira við
okkur. Það var líka föstudagskvöld
og vor i loftinu og liann búinn að
marghringja meðan á samtalinu
stóð. Hún ætlaði út að dansa —
sagðist þó ekkert hafa neitt óskap-
lega gaman af þvi, en færi eftir þvi
við hvern lnin dansaði. Hún sagðist
helzt fara í Þórskaffi þegar KK-
sextettinn skemmti þar og í Sjálf-
stæðishúsið. Og með það var hún
farin ... ★
— Ég tek kökukeflið með mér —
að öðrum kosti verður maðurinn
yð’ar nvefi sífclldan beilaJuútiatf.
— Þú færð tvo gúmifiska með stöng-
inni þá þarft þú ekki at koma tóm-
hentur heim. —
Okkar á milli
sagt
Aldis mín.
Ég hef þá raunasögu að segja að
sannleikurinn er ekki alltaf sagna
beztur, þvi að það lítur út fyrir að
illa muni fari fyrir mér af því að
ég var svo vitlaus að vera hrein-
skilin og segja sannleikann.
Þannig er að ég er trúlofuð inanni
sem ég elska heitt og innilega og
vegna þess að mér fannst að allt
yrði að vera hreint og beint okkar
á milli þá sagði ég honum frá ástar-
ævintýri sem ég lenti í fyrir löngu
og sem var einskis virði. Hann tók
þvi ekkert illa í byrjun, sagði að það
hefði ekkert að segja en svo breytt-
ist hann, kom með alls konar dylgj-
ur og fór að kalla mig ýmsum ónöfn-
um. Þrátt fyrir allt þetta vill hann
ennþá giftast mér, en ég er hrædd
við framtíðina og er að velta því
fyrir mér hvort þetta geti nokkurn
tíma blessast með okkur ef hann
getur ekki gleymt þessu. Ef ég að-
eins hefði þagað þá hefðum við ver-
ið alsæl í dag. Það er kannske ekki
fallegt af mér að segja það, en min
reynsla er sú að það er ekki ein-
hlitt að segja alltaf sannleikann.
Þín einlæg,
S. J.
Kæra S. J.
Oft má satt kyrrt liggja, eins og
þar stendur, en þér fannst rétt að
segja frá þessu og það sýnir ekki
svo lítið hugrekki. Viðbrögð hans og
framkoma eru hins vegar heldur
lítilfjörleg, þó hlýtur hann að skilja
að þetta er grafið og gleyrnt af þinni
hálfu, en það er eins og stolt hans
sé sært og þess vegna reynir hann
að særa þig.
Mér finnst að þú ættir að segja
honum að þú giftist honum ekki eins
og allt er í pottinn búið, því að þótt
þið séuð ástfangin, þá er það ekki
nóg til að byggja hjónaband á held-
ur kemur þar til ýmislegt fleira svo
sem góðvild.. vinátta og traust.
Ef hann getur ekki látið af þessu
nöldri um fortíð þína þá er bezt
fyrir ykkur að slíta kunningsskapn-
um strax.
Beztu kveðjur,
ÁMfe.
33
VIKAN