Vikan


Vikan - 23.06.1960, Síða 35

Vikan - 23.06.1960, Síða 35
Volkswagen- kvartettinn Evrópskir bilaframleiðendur hafa lengi háð mikla baráttu fyrir því að gera bíla sína vinsæla á amerískum bílamarkaði. Og hér er dæmi um það, að þeir hafa ekki til einskis barizt: Nýr söngkvartett í Hollywood gat ekki fundið upp á neinu öðru nafni til að gera sig sem vinsælastan held- ur en ... The Volkswagens! Forseta-tár Sorg — eða? Hér er um dálítið óvenjulega erfis- drykkju að ræða. Syrgjendurnir eru félagar i piparsveinaklúbb í London. Tilefnið er, að klúbburinn hefur misst einn vinsælasta félaga sinn, Anthony Armstrong-Jones. Myndin er tekin við erfis-miðdaginn, og kerta- ljósið logar til minningar um þann, sem féll — í fang prinsessunnar. '&Ií&cJhúl ffo&ky&unnáh Eisenhower er að gráta. Hvað skyldi hafa komið fyrir? O, ekki al- varlegra en það, að lögreglan i Uruguay þurfti að grípa til táragass- ins, þegar hann kom þar við á yfir- reið sinni um Suður-Ameríku fyrir skömmu. Sykur er hættulegur Margar konur gera hvorki sætt kaffi né te i þvi skyni að forðast að innbyrða of margar hitaeiningar. En þær mega ekki gleyma því. að það eru fleiri hættur á ferðinni i sam- bandi við sykurinn, þvi að hann er einn versti óvinur tannanna. Mæður eru aldrei of oft minntar á það að gefa börnunum ekki sætindi. Það er haft fyrir satt, að danskur tannlækn- ir hafi dregið margar tennur úr eins og hálfs árs gömlum dreng, og var sælgætisáti kennt um. Um 15 gr af sykri eru nægilegt magn daglega fyr- ir hvern mann, en flestir nota allt upp í 100 gr að viðbættum sæt- indum! — Ég er orðinn hundleiður á þess- ari heysátu-hárgreiðslu á konunni minni, sagði forstjórinn við hár- greiðslumeistarann. — Síðast, Þegar hún kom frá yður, var hárið á henni eins og trosnaður gluggakústur. Ég vil bylgjur, djúpar og fallegar, — skiljið þér það. — Alveg sjálfsagt herra minn, þér skuluð svo sannarlega fá bylgjur og meira að segja svo djúpar, að þér verið bullandi sjóveikur af að horfa á þær. teœ&steápur 1251»,. H.f. Raftækjaverksmiítjan HAFNARFIRÐI — SlMAR: 50022 OG 50023

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.