Vikan - 30.06.1960, Blaðsíða 6
Hver verður
^LÍKízhjAcídhsZ lÁkuívk^
„Ég ætla bráðum á húsmæðra-
skóla í Danmörku — ekki af því að
ég haldi, að þeir séu betri þar en
hér — en mig langar til þess að
læra að tala rnálið".
V
A
Þær eru ekki beinlínis mjög líkar sú svarta á
forsíðu Vikunnar og Ágústa, sem er mjög ljós
yfirlitum eins og myndirnar sýna. Ágúst kveðst
ávallt Icsa Vikuna og ævinlega fletta fyrst upp á
stjörnuspánni.
Um þessar mundir stóð yfir málverkasýning
Kristjáns Davíðssonar og Ágústa var þar við inn-
ganginn. Kristján hefur svo sem vitað hvað hann
var að gera enda var aðsóknin góð.
V
f haust tók Ágústa þátt í
tízkukabarett Elínar Ing-
varsdóttur og Rúnu Bryn-
jólfs. Hún sýndi þar föt af
ýmsu tagi og stóð sig með
prýði. Hér er hún í bún-
ingsherberginu, albúin þess
að ganga fram á pallinn.
A
Ágústa er dóttir Vesturgötunn-
ar; hún hefur nálega alltaf átt
þar heima. Hún unir sér við að
horfa niður á götuna, þar sem
umferðin er þung eins og ár-
straumur.
— Sjáðu bara hérna út um
gluggann, þegar kvöldsólin skin á
höfnina og bæinn — finnst þér það
ekki fallegt?
— Jú, það er ekki hægt að neita
þvi, en reyndar hefur mér aldred
fundizt Vesturgatan neitt sérlega
skemmtileg né svæðið i kringum
hana.
— Mér finnst Vesturgatan dásam-
leg.
Það var Ágústa Guðmundsdóttir,
sem horfði út um gluggann og dá-
samaði Vesturgötuna. Hún er dóttir
Vesturgötunnar hún Ágústa. Hún
hefur nálega alltaf átt heima þar,
utan tvö fyrstu ár ævi sinnar á
Hverfisgötunni. Hún býr hjá for-
eldrum sínum, Guðmundi Ágústs-
syni skákmanni og bakara í Sveins-
bakarii, og konu hans, Þuriði Þórar-
insdóttur. Ágústa kvaðst eiga eina
yngri systur, tvo eldri bræður og
Anna Guðmundsdóttir, flugfreyja
hjá Flugfélagi íslands, sem kom tví-
vegis við sögu á forsíðu Vikunnar
fyrir skömmu, er líka systir Ágústu.
— Var hún ekki í fegurðarsam-
keppni fyrir nokkrum árum? spurð-
um við Ágústu, þegar hún gekk frá
glugganum, þar sem umferðin á
Vesturgötunni sást renna áfram eins
og þungur straumur.
— Það var fyrir þremur árum,
minnir mig. Hún varð önnur á eftir
henni Bryndísi Schram.
— Þú ætlar kannske að feta í
Framhald á bls. 34.
hérna megin —
segir Ágústa Guðmundsdóttir,
sú fjórða í röðinni af fimm stúlkum,
sem keppa um ofangreindan titil
Hér hafið þið viðtal við Ágústu.
Engar leiklistargrillur