Vikan


Vikan - 30.06.1960, Blaðsíða 25

Vikan - 30.06.1960, Blaðsíða 25
bæran hægrihandarleik. ÞaS er einhver innileiki í píanóleik Bengt Hallbergs, sem reyndar naut sín ekki sem skyldi á stað eins og Metropol. En hinn þétti múr aðdáenda, er umkringdi Bengt og norsku hljóðfæraleikarana, er aðstoðuðu hann þarna, virtist komast í rétt samband við það, sem var að fara fram, þó að mörg smáatriði hafi farið fyrir ofan garð og neðan. Og það ætlaði allt um koll að keyra af fagnaðarlátum. Þegar kemur nýr píanóleikari fram á sjónar- sviðið, skoða gagnrýnendur og aðrir áhugamenn það sem skyldu sina að „sálgreina" hann og reyna að finna skyldleika við einhvern áður þekktan pianóleikara. Og Bengt Hallberg var skipað i flokk með Teddy Wilson, Art Tatum og Oscar Peterson — og er þar ekki leiðum að líkjast. Það er til ógrynni af hljómplötum með Bengt Hallberg á markaði á Norðurlöndum, auðvitað langflestar með jazzlögum, en þó hefur Hallberg einnig leikið inn á margar plötur með danshljóm- sveitum, m. a. með hinni þekktu sænsku hljóm- sveit Harry Arnolds, en þar útsetti Bengt einnig alla músíkina. NÝTTÁ MARKAÐNUM /lveg tilvalið í útileguna i sumarfriinu! Prímus cg pottur i litlum plastpoka, mjög einfalt. og gott að eiga við Tvö laus höld fylgja pottinum, hitt fyrir lokið á honum, sem einnig má þá nota fyrir pönnu. Plastpokinn er vatnsheldur, svo nota má hann til að sækja vatnið i. Þessi hentugu matar- gerðaráhöld eru úr léttum málmi, taka mjög lítið rúm í bakpokanum og kosta aðeins kr. 265.00. KVIKMYNDIR Það er búizt við að núna í ár munu koma um 20.000 stúlkur til Hollywood, allar með þá von, að þær verði „uppgötvaðar"! Ca. 200 af þeim munu komast í kvik- myndir eða sjónvarp, en af- gangurinn fær að kenna á vonbrigðunum. Þessi áætlun er gerð af Verzlunarráðinu í Hollywood, eina verzlun- arráðinu í heiminum, sem fær nær eingöngu bréf frá fólki, mönnum, kon- um og börnum, sem vilja komast í kvikmyndir. — Það er sorglegt að hugsa til allra þessara stúlkna, sem leggja leið sina til Hollywood, segir hinn gamalreyndi blaðafulltrúi í Hollywood, Jim Byron, — þvi fæstar hafa meiri möguleika til þess að komast áfram en snjókorn i helviti. Af þessum 20 þúsund stúlkum, sem reiknað er með að munu storma hingað til kvikmyndaborgarinnar á þessu ári, íá kannski nokkur hundruð tækifæri til að reyna sig sem sýningarstúlkur eða statistar, en mikill meirihluti verður að halda heimleiðis aft- ur, án þess að hafa svo mikið sem stigið fæti sínum inn fyrir hlið kvikmyndaversins. Al Corfino, sem hefur með leikararáðningar að gera fyrir MGM-kvikmyndafélagið, segir: —• Nú er sá tími liðinn, ,sem við leitum að nýjum stjörn- um á sjoppum eða veitingahúsum. 1 dag er þess krafizt, aö umsækjandi hafi komið opinberlega fram á þekktum skemmtistöðum, •— Broadway eða í útvarpi. Kvikmynda-,,bransinn“ verður harð- ari með hverju árinu sem líður, það eru miklar íjárupphæðir i veði — og þess vegna kaupum við nú aðeins hæfileikafólK, ekki bara „kroppa". Zsa Zsa Gabor hefur nú skrifaG ævisögu sína og selt hana amerísku tímariti fyrir „aðeins“ 100.000 dali. Gabor liefur lengi verið ein umtal- aðasta konan í kvikmyndaheirninúm, og mið- punkturinn í flestum „liasa“fregnum þar vestra. SKAK Á taflborðinu eru 64 fer- hyrningsreitir og annar hver reitur er hvitur en hinn er svartur. Þeim hefur öllum verið gefið nafn og eru þeir nefndir með bók- stófum og tölustöfum. Nauð- synlegt er fyrir hvern þann, sem ætlar sér að læra skák, að vera vel leikinn í reita- nöfnunum, helzt svo, að hann geti ráðið 2—3 leikja taflþrautir án þess að nota taflborð eða menn. Væri ekki til dæmis gaman að geta teflt blind- skák við vin sinn, ef ekkert skákborð væri við he.U.nar i'ms ..íerki og tákn eru notuð, þegar sk.,i; er rituö niður. T. d.: K merkir kóngur, D merkir drottning o. s. frv. E'xtt strik, — þýðir færður til, 0- 0 inerkir stutt hrókfæring, 0—-0—0 . j. .ar löng hrókfæring. Ef settur er kross, f þá þjð.r það skák og ei s'ettir eru tveir krossar, ff, þá þýðir það tvískák. Upphrópunarmerki táknar góðan leik, ! og tvö upplirópunarmerki, !! er sér- lega góður leikur. Spurningarmerki, ? er slæmur lexixur eða vafasamur og tvó spurningarmerki, ?? tákna mjóg slæmur leikur. X merkir svo að maður eða peð sé drepið. Hér kemur svo stutt skák til að glíma við, það er snjöll drottningarfórn hjá hvítum sem gerir út ur.i skáltina. 1. e'2~ e!t e7—eS 2. Rgl—f3 Rb8—c6 3. d‘2 dli d7—d6 !,■ Bfl—cl, h7—h6 ? 5. Rbl—cS Bc8—gJ, 6. d!,xeS Rc6xe5 ? (Betra var 6. — d6xe5) 7. R.f3xRe5 !! Bg/,xDdl 8. Bc/,xf7 t Ke8—e7 9. Rc3—d5 mát. TEXTINN Hér kemur einn splunkunýr texti, sem Öðinn Vaidemarsson syngur á nýrri hljómplötu, sem lie.iiur á markaðinn eftir nokkrar vikur. íslenzkir tónar gefa plötuna út, undirleik annast KK- sextettinn, en textann gerði Jón Sigurðsson. ÉG KEM HEIM. (The world laughs on). Er völlur grær og vetur flýr og vermir sólin grund, kem ég heim og hitti þig, verð hjá þér alla stund. Við byggjum saman bæ í sveit sem blasir móti sól. Þar ungu lífi landið mitt mun ljá og veita skjól. Sól slær silfri á voga, sjáðu jökulinn loga. Allt er bjart fyrir okkur tveim, því ég er kominn heim. Að ferðalokum finn ég þig, sem mér fagnar höndum tveim. Ég er kominn heim, já, ég er kominn heim. ÓSKAMYNDIN ÓÐINN YALDEM ARSSON Fyrsta óskamyndin er af Öðni Valdemarssyni, sem hefur starfað sem dægurlagasöngvari með KK-sextettinum i tæp tvö ár. Óðinn hóf söngferil sinn í Barnakór Akureyrar, þá 10 ára gamall, og gat sér þar það helzt til frægðar að vera eini strúkurinn, sem söng efstu röddina. S’ðan þá hef- ur Óðinn sungið með fjöldamörgum hljómsveitum norðanlands, veilö við prentnám i Prentsmiðju Cdds Björnssonar á Akureyri —• beztu og full- komnustu prentsmiðju landsins, segir hann sjálf- ur -— og sungið inn á margar hljómplötur, bæði með Atlantic-kvartettinum og KK-sextettinum. Margar þeirra hafa orðið feiknavinsælar, svo sem eins og lögin: Einsi káldi úr Eyjunum, Magga, Út- laginn, í kjallaranum og mörg fleiri. Óðinn segir að sér finnist menningin standa á hærra stigi á Akureyri heldur en sunnanlands (hann er Akur- eyringur!), segist aldrei hafa farið í mútur og þykja mjög gaman af því að veiða silung. VI K A N 25

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.