Vikan - 30.06.1960, Blaðsíða 22
Fyrir hverju er draumurinn?
Draumspakur maður ræður drauma fyrir lesendur Viknnnar
Ef yður dreymir þá drauma, að yður leiki forvitni á um þýðingu þeirra, þá skrifið Vikunni,
pósthólf 149 og bréfinu verður komið til draumráðningamannsins. Ráðning á draum kostar 20
krónur, nema menn vilji fá skriflegt svar beint frá draumráðingarmanninum þá kostar ráðn-
ingin 50 krónur.
Kæra Vika.
Ég sendi draumráðningamanninum draum.
Hann var þannig að mig dreymdi Jesúm Krist
á föstudaginn langa, er ég var í Vestmannaey.j-
um í vetur.
Virðingarfyllst.
Magnús Kristjánsson.
Svar til Magnúsar Kristjánssonar:
Draumurinn merkir rólegt andlegt líf og
friðsamt hjá þér. Það er að segja, þú þarft
ekki að kvíða áhyggjum á næstunni.
Til draumráðanda.
Mig dreymdi nýlega að ég svaf í litlu herbergi
með vinkohu minni. Okkur hafði vantað svo
klukku í herbergið, en vorum nú húnar að fá
þrjú úr lítil og ein stóra vekjaraklukku, ljós-
græna.
Hanna.
Svar til Hönnu:
Einhver hefur nánar gætur á þér þessa dag-
ana. Athugaðu því vel gang þinn, þá er þér
viss velgengni í framtíðinni.
Hve glöggur ertu?
Það á að taka í mesta lagi 5 mínútur að finna
þær breytingar, sem gerðar hafa verið á neðri
myndinni, en þær eru sjö. Ráðning á bls. 33.
Svar til Brunirót:
Mér finnst draumurinn vera of viðkvæmur
til þess að birta hann, en ráðningin er sú
að þú eigir í vændum góðar stundir og að
ástardraumar þínir munu brátt rætast.
Kæri draumráðandi.
Mig hefur dreymt sama drauminn þrisvar i
röð, og hann hefur verið næstum því eins í öll
skiptin. Mig dreymdi, að ég væri i rauðri peysu
og sæti uppi á háum stcini. Svo fannst mér, að
strákurinn, sem ég er hrifinn af, kæmi þarna að,
spilandi á saxófón, og væri alltaf að glápa upp
í himininn. Þá fannst mér, að ég væri komin
inn í bíl, sem hróðir minn átti einu sinni, en
er nú ónýtur (eða svo að segja ónýtur), og ég
væri að aka honuin. Loks fannst mér ég vera
komin eitlhvað til útlanda og væri þar að synda
í sundlaug, og við það vaknaði ég. Hvað merkir
þessi draumur?
Ófeig.
Svar til Ófeigar.
Þú munt draga að þér allmikla athygli að-
dáanda þíns, en hætt er við, að hann sé þér
3
Þessi skreyting mun vera í ráðhúsi ein-
hvers bæjar i Noregi, en ekki vitum við
gerla, því miður. Hins vegar finnst okkur
skreytingin vera svo afburðavel heppnuð,
að ástæða sé að gefa henni gaum. Þetta er
tré, — að visu nokkuð stílfært, en það gerir
myndina aðeins áhrifameiri. Það teygir
sprota sína allt til skýja eða hvað það nú
kann að vera. Það skiptir ekki máli, hitt
er aðalatriðið, að myndin hefur magnaða
spennu og fer einstaklega vel á þessum
vegg. Þótt ótrúlegt megi virðast, er þetta
allt skorið út í tré, en það er líka nokkuð,
sem þeir hafa nóg af í Noregi. Kannski er
þetta einmitt sýmból, sem táknar þá bless-
un, sem skógurinn hefur verið Norðmönn-
um. Það verður líklega jafnsnemma, sem
ráðhúsið í Reykjavík kemst upp og Skóg-
ræktin er búin að koma upp nytjaskógi hér
á landi, svo að þá er athugandi fyrir hana
að huga að svona mynd. Bara að „nytja-
skógarnir" verði nú tilkomumeiri en skóg-
urinn við Rauðavatn, því að annars er vafa-
mál að ráðhúsið vilji nokkuð nytja viðinn.
ekki einlægur. Yarastu aiS leggja út í tvísýnu
í fjármálunum fyrst um sinn. Hætt er þér
við smáveikindum á næstunni.
Svar til Stúlkunnar við fjörðinn.
Ráðningin á draumi þínum birtist í þætt-
inum fyrir skömmu.
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi, að ég liti út um glugga hjá kunn-
ingjafólki mínu. Sá ég þá lítinn fugl flögra um
í grjóti neðan við húsið, og var hann ákaflega
fallegur á litinn. Hann var fagurblár, en dökk-
ur á bakinu, með hvitt, langt nef, sem snarbeygði
fremst. Mér fannst ég mega til með að ná hon-
um, af því að mér var ætlað að eiga hann. Hljóp
ég þvi út og ruddi fólki frá, sem ætlaði að taka
hann. Ég náði honum og for með hann inn. Var
liann ómeiddur og svo lítill og mjúkur viðkomu.
Kunningjafólk mitt fór að tína til alls konar
fuglamyndir til þess að sjá, hvaða tegund þetta
væri, og þá vaknaði ég.
Ólöf.
Framhald á bls. 34.
— Hugsaðu þér tíeta, nú er ég trúlofuð í
fjórða sinn.
— Og ég í fimmta, — finnst þér þetta ekki
orðið hversdagslegt?
22
VIKAN