Vikan


Vikan - 30.06.1960, Blaðsíða 15

Vikan - 30.06.1960, Blaðsíða 15
Þrjár verur Siðgæði æskunnar og atómsprengjan eftir Dr. Matthías Jónasson IIEIÐRA SKALTU ... Hið forna boðorð, að börn skuli lieiðra i'öð- ur sinn og móður, svo'að þau sjálf verði farsæl í lifi sinu og athöfnum, tekur grandvart liferni feðra og mæðra sem óvefengjanlega staðreynd. J)ýpri merking boðorðsins er sú, að æskan skuli kosta kapps um að temja sér siðgæði eklri kyn- slóða, aðeins þannig sé tímanlegri og eilífri vel- ferð hennar borgið. Nú þykir viða brugðið út af þessu. Afbrot l>arna og unglinga gegn lögum og siðgæði cru svo tið, að þau eru orðin eitt erfiðasta vanda- mál margra þjóða. Skipulögð glæpastarfsemi unglinga leggur undir sig heil borgariiverfi og heldur íbúum þeirra í járngreip. Bandaríki Norður-Ameriku eru þegar illræmd í þessu efni, og þaðan berast fregnir af glæpastarfsemi ungl- inga iit um allan lieim og verða æskulýð ann- arra jjjóða til eftiröpunar. Með nokkrum ugg finnur eldri kynslóðin, að æskan er að villast af þeirri dygðabraut, sem eldri kynslóðir vildu marka. Hin hefðgróna lotn- ing fyrir föður og móður dvínar óðfluga, en af- brotáhneigð brýzt fram hjá svívaxandi fjölda unglinga. Var kynslóð feðranna e. t. v. ekki heit og einhuga í siðgæði sínu? Gróf hún með eigin verknaði undan þeirri lotningu, sem hún krafðist af börnum sínum? Alda unglingaafbrotanna hefur risið uggvæn- tega eftir síðari heimsstyrjöld og virðist nú ó- stöðvandi. f ])eirri styrjöld var beitt meiri grimmd en dæmi eru til í hinni blóðugu styrj- aldasögu mannkynsins. Og í einhverju formi hafa börn og unglingar verið þátttakendur í þessum ægilega leik. Þau flýðu úr hrynjandi húsum, úr brennandi borg, undan sprengjuregni. Þau lcsa lirífandi frásagnir af hetjudáð flug- kappans, sem sáldraði úr flugvél sinni logandi brennisteini yfir leikandi börn og stritandi mæður. Þau Iieyra frásagnir af pyndingum, þrælkun og múgmorðum. Getum við vænzt þess, að ógnir styrjaldar, sem gerðust þannig fyrir augum æskunnar og end- urtaka sig í huga hennar, láti siðgæðisvitund hennar ósnortna? TVÖFELDNI SIÐGÆÐISINS. í slíkri reynslu verður æskunni ])að ljóst, að siðgæði eldri kynslóðarinnar er gegnsýrl af tvö- feldni. Þegar eiginhagsmunir kalla að, vörpum við siðareglunum fyrir l)orð og stýrum eftir stundarliagnaði. í nafni rikis- og þjóðarnauð- synjar eru livers konar glæpaverk réttlætt og jafnvel upphafin sem dyggðir. Slík réttlæting er handhæg yfirbreiðsla, einnig yfir persónu- legar ávirðingar og ódæðisverk. En þó að reynt sé að dylja þá spillingu, sem þróast ]>annig undir verndarvæng valds og samábyrgðar, verður hún öllum almenningi sýnileg. Spurning nútimans i siðgæðisefnum er því sú, hvort takast megi að halda uppi tvenns konar siðgæði: tækifær- issiðgæði, sem fylgi valdaaðstÖðunni og þoki jafnan fyrir stundarhagnaði valdhafans og sam- herja hans, og algilt siðgæði, sem gildi óskorað fyrir hinn valdalausa, auðsveipa múgamann. Á þessu verða sýnilega nokkrir erfiðleikar. Sú forna trú hefur rénað mjög, að það væru forréttindi ákveðinna stétta að vera hafnar yfir boð siðgæðisins. Það, sem einn leyfir sér í skjóli valdsins og undir yfirskini almennrar velferð- ar, tekur annar sér til eftirbreytni og telur sinn rétt, eins og segir í hinu raunsæja spakmæli séra Hallgrims: „Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir meina sér leyfist það“. Þessi brotalöm i siðgæði er ekki ný. Bilið milli þess, sem er, og þess, scm ætti að vera, Framhald á bls. 34. Framhald af bls. 14. hluta lestarinnar, sátu tvær konur hvor andspænis annarri. Hin ynári var búin að vera nokkrar klukku- stundir i lestinni. Hún hét Suzy Templeton og var undir vcnjulegum kringumstæðum mjög lagleg stúlka, 23 ára gömul. En nii var brúna, gljáandi hárið úfið, og bláu augun voru daufleg af þreytu. Ilún skrifaði uppliafsstafi sína S. T. i móðuna á rúðunni. Eldri konan var nýkomin í lestina. Það var þreytusvipur á kringluleitu andlitinu. Hún leit iit fyrir að vera 55—60 ára gömul. Hún var í litlausum fötum og var að prjóna eitthvað dökkbrúnt. Hún liét Ellinor Lewis. Hún var á heimleið frá Washington til New York. í höfuðstaðnum hafði hún sótt fund lfknarstofnana, en fór, áður en hon- um var lokið, þar sem henni fannst hún ekki ciga þar heima. „Hafið þér setið lengi i lestinni?“ spurði hún stúlkuna. — „Þriár klukkustundir.“ — „Hamingjan hjálpi mér. Komið þér beint frá Washington?“ — „Nei,“ sagði Snzy hljómlausri röddu, „ég kem frá Florida. Flugvélin, sem ég kom i, varð að lenda hérna, þar sem hún komst ekki lengra.“ Suzy reyndi að stilla sig. „Ég vildi bara, að við gætum farið að leggja af stað. Mér finnst svona tafir ættu ekki að koma fyrir nú á dögum.“ Frú Lewis hristi höfuðið. — Nú á dögum. Unga fólkið er svo hugfangið af eldflaug- um og rafeindum og öðrum slikum furðuverkum, að allt iinnað verður að víkja. Allt þetta þvaður um sam- heldni og gott viðmót manna i milli nú á dögum. Þessar eirðarlausu, uppivöðslusömu stiilkur eru eitt dæmið um, hvernig þetta er i raun- inni. „Kannski fer hún bráðum,“ sagði hún kuldalega. Það glamraði í prjónunum. Hún byrjaði á nýrri umferð. Suzy teiknaði þrihyrning á rúð- una. — Þetta er táknrænt, liugsáði luin. Það er alltaf sama, gamla sag- an. Kvæntur maður og ung stúlka elska hvort annað. Iíona hans þjá- ist af ólæknandi sjúkdómi. Þau hafa slitið samvistir fyrir nokkrum ár- um. Þau eiga fimrn ára gamlan son, lítinn, alvörugefinn dreng, sem hún ])orir ekki einu sinni að rétta hönd- ina. „Við vildum ekki láta hann verða fyrir neinni truflun,“ hafði Paul sagt, „svo að við létum hann fara til ömmu sinnar.“ Amman hafði horft forvitnislega út um dyrnar til að sjá þessa tælidrós frá New York, sem Paul eyddi tímanum með, með- an aumingja konan hans lá veik á heilsuhæli ... Iivernig hafði þetta gctað hent hana, Suzy Templeton? Hún, sem hafði alltaf verið svo sómakær? Elskaði hann hana i raun og veru, þessi maður, sem hafði kvatt hana á flugvellinum? „Þú veizt það, Suzy, að ég hef engu lofað þér. Ef ])ú treystir mér ekki til aC útkljá þetta mál þannig, að við ge-tum litið björtum augum til framtiðarinnar, skaltu gleyma þessu öllu saman.“ — Augu hennar fylltust tárum ang- urs og reiði. Þegar hún hafði ákveð- Framhald á bls. 28. 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.