Fréttablaðið - 30.11.2009, Page 2

Fréttablaðið - 30.11.2009, Page 2
2 30. nóvember 2009 MÁNUDAGUR STJÓRNMÁL „Það kom fram skýr vilji til breytinga og það var auð- vitað í takt við það sem ég hafði fundið í aðdragandanum. Þetta var svipuð stemning og á flokks- þinginu í janúar, menn vildu breyt- ingar og fara í meiri sókn,“ segir Einar Skúlason, sem leiðir lista Framsóknarflokksins í Reykja- vík í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Kosið var á milli Einars og Ósk- ars Bergssonar, formanns borg- arráðs. Sigur Einars var nokkuð afgerandi; hann hlaut 62 prósent atkvæða en Óskar 38 prósent. Alls greiddu 488 atkvæði á fundinum. Einar segir ákveðna áherslu- breytingu verða með tilkomu sinni. „Ég lagði mikla áherslu á velferð- armálin í mínum málflutningi og fannst ég fá mjög góðar undirtekt- ir. En auðvitað er það grasrótin sem ræður för og við munum móta áherslurnar á næstunni.“ Einar vann áður fyrir Reykja- víkurlistann, en bendir kjör hans til nýs samstarfs á vinstri væng? „Fyrst og fremst hyggjum við að okkar málum og þetta verður okkar barátta. Svo þarf að koma í ljós hvað kjósendur taka undir það og við skoðum niðurstöðuna eftir kosningar í vor.“ Einar segir flokkinn stefna að því að ná inn tveimur mönnum, en hann hefur einn núna. Guðrún Valdimarsdóttir skipar annað sæti listans og Valgerður Sveinsdóttir þriðja. - kóp Einar Skúlason lagði Óskar Bergsson í oddvitakjöri Framsóknar í Reykjavík: Segir fólk vilja breytingar Jakob, verður klippt og límt í jólaþorpinu? „Jólaskrautið hjá okkur verður að sjálfsögðu bæði klippt, skorið, límt, handmálað og bróderað í anda rammíslenskra jóla.“ Jakob Frímann Magnússon er fram- kvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar. Jóla- þorp Hafnarfjarðar hefur vænt jólaþorp Reykjavíkur um að herma eftir sér og stela hugmyndum. FRAMKVÆMDIR 11,2 milljarða tap var á rekstri Orkuveitu Reykjavíkur fyrstu níu mánuði ársins. Fjárhagsáætlun fyrirtækisins var samþykkt á fundi á föstudag. Líkt og Fréttablaðið greindi frá mun Orkuveitan greiða 800 milljónir í afgjöld til eigenda, en ekki þá 2,3 milljarða sem vonast var eftir. Á næsta ári er fyrirhugað að framkvæmt verði fyrir 18 milljarða króna. Guðlaugur G. Sverris- son, stjórnarformaður fyrirtækisins, segi að ekki verði farið í nýjar framkvæmdir í Hverahlíð fyrr en kaupendur orku eru tryggðir og einnig nægt fjármagn. Þá muni menn komast langt með fimmta áfanga Hellisheiðarvirkjunar, en því verki verði skilað á þriðja ársfjórðungi árið 2011. „Með Hellisheiði 4 og 5 verðUR heitavatnslögn lokið og við eigum nægt heitt vatn fyrir næstu árin og getum annað eftirspurn í töluverðan tíma,“ segir Guðlaugur. Framkvæmdir við fráveitu á Vesturlandi halda áfram og segir Guðlaugur að þær séu á hálfum hraða. Íbúar verði þó ekki varir við hægagang, en einhver dráttur geti orðið á dælubúnaði. „Við reynum að halda uppi eins háu atvinnustigi og við getum. Við vildum gera meira, en því miður leyfir ástandið það ekki.“ - kóp Orkuveita Reykjavíkur framkvæmir fyrir 18 milljarða á næsta ári: 11 milljarða tap hjá Orkuveitu HELLISHEIÐARVIRKJUN Haldið verður áfram með fimmta áfanga virkjunarinnar en honum á að vera lokið á þriðja árs- fjórðungi 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SVISS, AP Svisslendingar sam- þykktu í gær bann við byggingu fleiri múslimskra bænaturna í landinu. Alls 59 prósent kjósenda kusu með banninu í þjóðarat- kvæðagreiðslu. Svissneski Þjóðarflokkur- inn stóð að baki þjóðaratkvæða- greiðslunni en svissneska stjórnin hafði mælst til þess að almenningur greiddi atkvæði gegn banninu. Um 400 þúsund múslimar búa í Sviss, flestir frá ríkjum fyrri Júgóslavíu. Aðeins eru fjórir bænaturnar í landinu og lög gegn hávaða á almannafæri koma í veg fyrir að þeir séu notaðir. - þeb Þjóðaratkvæðagreiðsla í Sviss: Bygging bæna- turna bönnuð NÝR ODDVITI Einar lagði sitjandi borgar- fulltrúa, Óskar Bergsson, í kosningum um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LÖGREGLUMÁL Fíkniefnadeild Lögreglu höfuðborgarsvæðis- ins tók hálft kíló af kókaíni og 300 grömm af amfetamíni síð- astliðinn fimmtudag í húsnæði í Grafarvogi. Maður og kona voru handtekin og úrskurðuð í gæslu- varðhald fram á miðvikudag. Samkvæmt upplýsi ngum Fréttablaðsins var kókaínið sem fannst mjög sterkt. Gert er ráð fyrir að söluandvirði þess hefði numið um 30 milljónum króna í götusölu. Lögreglan hafði fylgst með þakíbúð í Staðarhverfi í Graf- arvogi vegna gruns um að hús- ráðendur stæðu í innflutningi á sterkum fíkniefnum. Það var svo um hádegisbil á fimmtudag sem átta lögreglumenn fóru í húsleit að fengnum dómsúrskurði. Húsráðandi, karlmaður um fer- tugt, kom út í flasið á þeim þegar þeir komu að húsinu og var sam- stundis handtekinn. Sambýliskona hans, sem er rúmlega tvítug, var einnig handtekin þegar hún kom út úr íbúðinni skömmu síðar. Fíkniefnalögreglan fékk tvo fíkniefnaleitarhunda og starfs- menn frá tollinum lánaða til leit- arinnar. Tollverðirnir voru að gera úttekt á hundunum, sem báðir eru nýþjálfaðir, og sjá hvernig þeir reyndust í verkefn- inu. Í húsinu fundust samtals 800 grömm af fíkniefnum, vandlega falin. Húsleitin var með þeim lengri sem gerðar hafa verið. Húsnæðið er stórt, en einnig er húsráðandi sagður reyndur í fíkniefnaheiminum og kunni að fela efnin. Það vafðist ekki fyrir hundunum, sem fundu svo til öll fíkniefnin sem falin voru í húsinu. Óvíst er að meira en brot af efn- unum hefðu fundist hefði hund- anna ekki notið við. Húsleitin skilaði meiru en fíkni- efnunum einum, því út frá umbúð- um sem fundust á staðnum áttuðu lögreglumenn sig á innflutnings- leið eigenda efnanna. Umræddur karlmaður hefur lengi verið undir smásjá lögreglu vegna fíkniefnamála, en hefur ekki náðst fyrr en nú. Á föstudag fór fíkniefnalög- reglan ásamt sérsveit ríkislög- reglustjóra í húsleit í Vogahverfi í Reykjavík, í framhaldi af hús- leitinni í Grafarvogi. Þar fundust um 50 grömm af amfetamíni. Þar var par handtekið og yfirheyrt, karlmaður á fertugsaldri og rúm- lega tvítug kona. Þeim var sleppt að yfirheyrslum loknum, en bæði hafa komið við sögu hjá lögreglu. Samtals tók lögreglan rúmlega kíló af kókaíni og amfetamíni, og kíló af kannabisefnum í vikunni sem leið. jss@frettabladid.is Tóku um 800 grömm af sterkum efnum Tvennt situr í gæsluvarðhaldi eftir að lögregla fann mikið magn af kókaíni og amfetamíni við húsleit í Grafarvogi. Fíkniefnahundar tollgæslunnar sýndu mikilvægi sitt í langri húsleit. Lögregla leitaði í fleiri húsum í kjölfarið. BANDARÍKIN Osama Bin Laden var innan seilingar Bandaríkjahers í lok ársins 2001. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu öld- ungadeildar Bandaríkja- þings. Bandaríkja- stjórn hafði nægar upplýs- ingar til þess að handsama Bin Laden í desem- ber árið 2001, að því er fram kemur í skýrslunni. Beiðni um fjölgun hermanna í landinu var hins vegar hafnað, sem gerði Bin Laden kleift að komast óáreittur frá felustað sínum í Tora Bora og til Pakistan. George Bush, þáver- andi Bandaríkjaforseti, er harð- lega gagnrýndur í skýrslunni og þessi mistök sögð hafa lagt grunn að því ástandi sem nú ríkir í Afganistan. - þeb Mistök Bandaríkjanna 2001: Bin Laden var innan seilingar OSAMA BIN LADEN FÍKNIEFNAHUNDAR Tveir fíkniefnahundar sönnuðu gildi sitt í húsleit í Grafarvogi um helgina. Myndin er úr safni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BANDARÍKIN, AP Skötuhjúin sem gerðust boðflennur í hátíðar- kvöldverðarboði Hvíta hússins á dögunum eru nú að falbjóða frá- sögn sína fyrir hundruð þúsunda dollara. Að sögn bandarísks sjón- varpsstjóra hafa umboðsmenn Michaelu og Tareq Salahi sett sig í samband við þarlenda miðla og hvatt þá til að „taka þátt í uppboð- inu“. Til eru myndir af Michaelu þar sem hún heldur báðum hönd- um um framrétta hendi Obama og brosir blítt til hans. Ekki er vitað hverju hjónin lugu til að kom- ast inn í veisluna án þess að vera á gestalista en það vilja Banda- ríkjamenn ólmir vita. - nrg Boðflennur í forsetaveislu: Selja sögu sína fyrir fúlgur fjár FORSETAHEILSAÐ Michaela Salahi tekur í hönd Baracks Obama í Hvíta húsinu. STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin hefur skipað starfshóp til að kanna breytingar sem kunna að hafa orðið á eignarhaldi í sjávarútvegi og landbúnaði í kjölfar banka- hrunsins. Hópurinn var skipaður eftir að Jón Bjarnason, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, lagði fram minnisblað um málið á ríkisstjórnarfundi. Þar kemur fram að erlendir aðilar hafi falast eftir skipum til kaups og mikilvægt sé að glata ekki atvinnutækjum þjóðarinn- ar. Þá megi búast við tilfærslu aflaheimilda komi til gjaldþrota útgerðarfyrirtækja. Þá séu jarð- eignir og nýting hluti af atvinnu- stefnu stjórnvalda og fæðuöryggi. - kóp Starfshópur skipaður: Breytt eignar- hald athugað SVISS, AP Kvikmyndaleikstjórinn Roman Polanski fær að dvelja í svissneskum fjallakofa meðan hann bíður ákvörðunar yfirvalda um hvort hann verði framseldur til Bandaríkjanna. Polanski þarf auk þess að bera ökklaband sem gerir lögreglu kleift að fylgjast með ferðum hans. Yfirgefi Polanski landar- eignina tapar hann hálfum millj- arði króna sem hann hefur reitt fram í tryggingargjald. Húsið er ekki af verri sortinni, þriggja hæða og með góðu útsýni yfir Alpana. - nrg Bíður ákvörðunar um framsal: Polanski fluttur í fjallakofa SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.