Fréttablaðið - 30.11.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 30.11.2009, Blaðsíða 20
 30. NÓVEMBER 2009 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald ● ÍSLENSKT GRJÓT VEITTI INNBLÁSTUR Innanhússaarki- tektinn Helga Sigurbjarnadóttir hefur sett á markað snaga úr íslensku grjóti. Hugmyndin kviknaði í fjöruferð á Snæfellsnesi. „Ég hafði sjálf verið að leita að flottum snögum án árangurs. Þannig að ég ákvað að hanna nokkra sjálf og nýta í þá náttúrulegan efnivið. Svo þegar ég fór í fjöruferð á Snæ- fellsnesið fékk ég þá hugmynd að nota fjörusteina,“ upplýsir Helga, sem í kjölfarið hófst handa við að útfæra snagana. Eftir það fékk hún föður sinn, Sigurbjarna Guðsteinsson, sem er byggingafræðingur að mennt, til að hjálpa sér við að útbúa gripina og saumaði sjálf umbúðirnar utan um þá. Spurð hvort hún ætli sér meira með náttúrugrjót í hönnun sinni, segist Helga, sem útskrifaðist af hönnunarbraut Listaháskóla Íslands um síðustu áramót, ekki reikna með því. Aftur á móti sé hún rétt farin að feta sín fyrstu spor á þessari braut og því sé ýmislegt að vænta frá henni í framtíðinni. Snagarnir fást meðal í Epal, Kraumi og Minju. ● VEL VARIN AUGU, EYRU, LUNGU OG PUTTAR Menn geta sankað að sér tækjum og tólum en það kemur ekkert í staðinn fyrir þau fjögur sem talin verða upp hér. Þau eru nauðsynleg öryggi og heilsu þeirra sem ætla sér að dytta að heimilinu. Öryggisgleraugu verja augun fyrir flísum, eldglærum og ryki sem vill þyrlast upp. Fyrir tískumeðvitaða eru til öryggisgleraugu sem eru fínleg í útliti og líkjast helst sólgleraugum, hins vegar standa gömlu góðu öryggisgleraugun alltaf fyrir sínu. Rykgríma er nauðsynleg þegar verið er að pússa, skrapa, saga og bora. Rykið sem myndast við þessar athafnir getur farið ofan í lungu og til lengri tíma leitt til varanlegs skaða. Rykgrímur eru léttar og ættu ekki að vera handlögnum til trafala. Heyrnartól ættu ávallt að sitja á hausnum og yfir eyrunum þegar notuð eru hávær rafmagnsverkfæri. Eyrnaverjan er þægileg enda alveg ágætt að útiloka umhverf- ishljóðin og vera einn með sínum hugsunum. Þó er einnig hægt að fá slík heyrnartól með innbyggðu útvarpi. Vinnuvettlingar eru til ýmissa hluta nytsamlegir. Fyrir utan að veita skjól gegn kulda þegar unnið er úti við veita þeir einnig vernd gegn skurðum og skrámum. Hanskar þurfa að passa vel og gefa gott grip, þeir mega ekki vera of stórir og flækjast þannig fyrir. „Við erum með gott úrval af park- eti fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Auk þess seljum við allt sem til þarf við lagningu parkets og viðhalds eldri parket- gólfa,“ segir Ævar Gíslason, fram- kvæmdastjóri Parketverksmiðj- unnar, nýrrar verslunar sem var opnuð í Síðumúla í Reykjavík á dögunum. Íslenskir eigendur parketverk- smiðjunnar Quercus í Litháen standa að baki versluninni, en þeir hafa frá stofnun hennar árið 2002 selt parket og allt sem því tengist til verslana í Hollandi, Þýskalandi og á Norðurlöndunum. Vegna þess hve vel hefur gengið var ákveðið að selja vöruna milliliðalaust til viðskiptavina og stækka markaðs- hlutdeild fyrirtækisins á Íslandi, að sögn Ævars. Hann kveður efnahagslega lægð ekki hafa haft nein áhrif á áform- in um að opna búð enda sé um að ræða vandaða vöru á viðráðanlegu verði. Eigendurnir séu auðvitað meðvitaðir um ástandið hérlendis og hafi lagt sig fram við að halda kostnaði í lágmarki. „Til marks um það var verslunin opnuð í sama húsnæði og húsaframleiðandinn Kverkus, sem er í eigu sömu aðila. Auk þess starfa hér fáir. Sjálfur er ég til dæmis að taka upp vörur á morgnana og bregð mér síðan í hlutverk sendils, sölumanns, fram- kvæmdastjóra og forstjóra,“ segir Ævar og hlær. Nánar á www.park- etverksmidjan.is. - rve Kreppan kemur ekki að sök Ævar Gíslason og Sigurður Ólason, tveir af eigendum verslunarinnar Parketverk- smiðjan, sem var nýverið opnuð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Reynir Sýrusson húsgagna- hönnuður var ekki beint að hugsa um skipulagsmál borg- arinnar við hönnun stólsins Reykjavíkur sem kom nýverið úr smiðju hans, heldur fal- lega hönnun og form sem vekti athygli. „Það eru sennilega tvö ár síðan ég fékk upprunalegu hugmynd- ina að þessum stól. Ég var að ganga um Barcelona þegar ég rak augun í mjög sérstakt form í gegnum glugga, reyndar ekki stól en það heillaði mig mikið,“ segir Reynir og bætir við að það sé svolítið skemmtileg saga á bak við heiti stólsins. „Fyrst ætlaði ég að kalla hann Rúbik en hætti síðan við. Ég er eins og fleiri hönnuðir að reyna að koma mér á framfæri er- lendis, enda markaðurinn hér heima lítill. Við verðum að sýna umheiminum að við erum líka að gera góða hluti hér og mér fannst djarfara að nefna hann eftir höf- uðborg Íslands, enda er ég mjög ánægður með þessa hönnun. Það tengir líka hönnunina við land og þjóð.“ Honum finnst síðan græni liturinn setja punktinn yfir i-ið, þó að stóllinn sé fáan- legur í öllum litum. En hvert er leiðarljósið þitt í hönnun? „Það er tvenns konar. Annars vegar hanna ég húsgögn sem eftirspurn er eftir og fólk vill eignast. Hins vegar hanna ég einstök húsgögn sem eru ef til vill aðeins til í fáum eintök- um og eru mín hugarverk. Línan mín er mjög breið, enda nota ég öll frumformin,“ segir Reynir. - uhj Fagurrauður stóllinn MJ34 er heitur við wing-borð, hvort sem það er notað sem borðstofuborð eða fundarborð. Einfaldur glæsileiki og þægi- legur en stólunum er hægt að snúa í hringi. Reykjavík er græn og kubbsleg Stóllinn Reykjavík sem Reynir var tvö ár að hanna. Stólarnir við Rubik-sófasettið. Er til betri gjöf en verkjalaus jól ! Sore No More er fáanlegt í heilsubúðum, apótekum og Fjarðarkaup Sore No More ná ttúrlega hita- og kæligeli ð er áhrifarík t á líkam sverki Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.