Fréttablaðið - 30.11.2009, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2009 3híbýli og viðhald ● fréttablaðið ●
Línóleum-dúkar á gólf hafa ýmis-
legt fram yfir önnur gólfefni þótt
þeir hafi kannski ekki verið efst
á innkaupalistanum undanfarin
ár. Þeir eru búnir til úr náttúru-
legum hráefnum sem eru endur-
nýtanleg og leysast upp í náttúr-
unni en helstu innihaldsefnin eru
línolía, trjákvoða, trjáviðarsag,
korkmylsna, kalkduft, litarefni og
strigi.
Dúkarnir eru slitsterkir og
endast lengi. Þeir henta því vel
á gólf sem mikið mæðir á eins
og á gólf í skrifstofubyggingum,
skólum, vöruhúsum, verksmiðj-
um og sjúkrahúsum. Dúkarnir
eru sveigjanlegir og hljóðdeyf-
andi vegna korksins. Þeir eru auk
þess einangrandi og hamla gegn
fótkulda. Þeir upplitast ekki, eru
eld- og hitaþolnir og þola olíu, feiti,
tjöru, sýrur og leysiefni. Auk þess
eru þeir fljótir að jafna sig eftir
þunga hluti og henta sérstaklega
vel undir skrifstofustóla og aðrar
mublur. Ekki spillir fyrir að efni-
viðurinn er ódýr samanborið við
önnur algeng gólfefni auk þess
sem margir möguleikar eru í lita-
og munstravali.
Ýmislegt þarf þó að hafa í huga
þegar dúkar eru lagðir á gólf og
er allra best að fá fagmenn til
verksins. Gólfið þarf til dæmis að
vera einangrað gegn raka, hitastig
þarf að vera stöðugt og gólfið slétt
áður en hafist er handa. Þá þarf að
munda ákveðið lím auk þess sem
skurðurinn getur verið vandasam-
ur. - ve
Slitstekt og náttúrulegt
Dúkarnir þola ýmsa erfiða bletti og þá
er auðvelt að þrífa. NORDICPHOTOS/GETTY
Kreppan virðist ekki hindra fólk
í að kaupa margvíslega þjónustu
sem það í mörgum tilfellum gæti
sjálft innt af hendi með engum til-
kostnaði nema að gefa sér tíma.
Uppsetning jólaljósa, innan-
húss sem utan, er eitt af því
sem sem fólk virðist vera
tilbúið til að greiða fyrir í
kreppunni. „Fólki finnst
þægilegt að láta aðra setja
upp jólaseríurnar sem og
að láta taka þær niður,“
segir Ragnhildur Ein-
arsdóttir hjá fyrir-
tækinu Garðlist. Hún
segir fólk í öllum ald-
ursflokkum kaupa
þessa þjónustu
nema ef til vill
í þeim yngstu.
„Það er sérstak-
lega vinsælt
að láta setja
jólaseríur á
tré og runna
í görðum og eins skreyt-
ingar utan á hús. Margir vilja
einnig láta setja upp fyrir sig ljós
innanhúss. Við erum með marga
fasta viðskiptavini og nú eru nýir
að bætast við. Við finnum ekkert
fyrir kreppunni.“ Hún segir að
flestir vilja vera búnir að skreyta
um mánaðamótin en sumir eru
seinna á ferðinni. „Við bjóðum
fólki líka upp á að geyma seríurn-
ar á milli jóla.“
Spurð um hversu mikið þjón-
usta sem þessi kosti, þá segir hún
erfitt að segja það almennt. „Það
er bæði miðað við tímavinnu og
eins magn jólaljósanna sem á
að setja upp en upphafsverð
er 14.940 krónur.“
Stéttarfélagið efh. býður
einnig upp á þessa þjón-
ustu. „Vinsælast er að
setja jólaseríur á jólatré
í görðum og á hekk en
einnig á þakkanta. Við
höfum verið með díóð-
uljós sem við flytj-
um inn frá Kína og
skipta litum og það
hefur fólki fund-
ist skemmtilegt,“
segir Elvar Her-
mannsson fram-
kvæmdastjóri.
„Við setjum
líka upp serí-
ur sem fólk á sjálft,“ segir
Elvar sem segir algengara að fólk
í rað- eða einbýlishúsum biðji um
þessa þjónustu eða þeir sem eru
með garð en einnig húsfélög. Það
er erfitt að segja um kostnaðinn en
oftast vinnum við í tímavinnu eða
gerum fólki fast verktilboð eftir að
hafa farið yfir hvers konar þjón-
ustu það vill fá.“ - uhj
Fólk hætt að setja
upp jólaljósin sjálft
Margir vilja kaupa þá þjónustu að láta setja upp fyrir sig jólaljósin utan húss í stað
þess að gera það sjálfir. Húsið á myndinni tengist ekki beint umfjöllun greinar.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N