Fréttablaðið - 30.11.2009, Blaðsíða 34
18 30. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 512 5000.
Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bif-
röst hafa frá því í febrúar boðið upp á
nýtt, þverfaglegt diplómanám sem heit-
ir Prisma. Námið fer af stað aftur eftir
áramót og rennur umsóknarfrestur út
næstkomandi fimmtudag.
Prisma byggir á hugmyndum Hrund-
ar Gunnsteinsdóttur, mannfræðings og
þróunarfræðings. Það er þverfaglegt og
gengur út á að efla gagnrýna og skap-
andi hugsun, hvort sem er í vinnu eða í
lífinu sjálfu. „Þegar hrunið varð las ég
viðtal við Hjálmar Ragnarsson, rektor
Listaháskólans, um að háskólarnir yrðu
að bregðast við ástandinu með því að
bjóða upp á nám sem gerði fólki kleift
að rýna til gagns í eigin samtíma á frjó-
an hátt. Þá vildi svo til að ég var með
þessa hugmyndafræði nokkuð skýra
í kollinum og hafði meðal annars sett
saman námskeið fyrir annan háskóla
byggt á sömu hugmyndafræði. Hún
gengur meðal annars út á að gefa fólki
verkfæri til að skoða núið á gagnrýninn
hátt, í stóru samhengi og á forsendum
hvers og eins. Það hefur vantað náms-
leiðir, sem fella niður múra á milli sér-
greina, opna á hið stóra samhengi og
auðga þannig sýn og hugsun fólks.“
Hugmyndir Hrundar féllu vel að
óskum háskólanna um endurnýjun og
nýsköpun. Prisma hefur síðan verið
þróað í samstarfi þeirra og Reykjavík-
urAkademíunnar en að því kemur fjöld-
inn allur af sérfræðingum úr öllum
mögulegum geirum samfélagsins.
Hrund er með fleiri járn í eldinum,
tengd vinnu með skapandi og gagnrýna
hugsun. Snemma á næsta ári stendur til
að hún fari til Afganistan á vegum UN-
IFEM og vinni áfram með hugmynd-
ir sínar þar. Þar mun Hrund vinna
með sjö innlendum verkefnastjórum
við að efla þá sem einstaklinga til að
þróa áfram starfið á svæðinu. „Það
sem gerist oft í uppbyggingar- og þró-
unarstarfi er að stofnunin kemur inn
með fyrir fram gefin markmið og að-
ferðir. Þetta ætlum við einmitt ekki að
gera, því það er ávísun á misheppnað
verkefni þegar til lengri tíma er litið.
Ef fólk tengir ekki við verkefnið á per-
sónulegan hátt, ef því finnst það ekki
vera að vinna starfið á eigin forsend-
um, er lítil von um langtíma árangur.
Ástríða er svo mikilvægt afl og sú til-
finning að fólk beri ábyrgð á uppbygg-
ingu í eigin landi er lykilatriði fyrir
langtíma árangur. Í gegnum ástríðuna
sér fólk raunverulega tilganginn í því
sem það er að gera.“
Hrund hefur áður unnið á átakasvæði,
en á árunum 2001 og 2002 hafði hún yfir-
umsjón með verkefnum UNIFEM í Kós-
óvó. Hún segir það setja lífið í ákveðið
samhengi að búa á svæðum þar sem fólk
hafi raunverulega barist fyrir lífi sínu.
Ísland í uppbyggingu geti lært af slíkum
svæðum, þótt okkar sorgir séu af allt
öðrum og léttvægari toga en þeirra sem
hafi búið við stríð. „Ástandið hér hefur
verið óhugnanlegt að mörgu leyti, þetta
óöryggi og þessi mikla reiði eru sömu
þemu og á fyrrverandi stríðssvæðum.
Á þessu er stigsmunur, ekki eðlismun-
ur. Í stóru samhengi erum við einfald-
lega í kerfi sem þarf að endurskoða. Og
þar verður skapandi og gagnrýnin hugs-
un að koma við sögu. Um aldir höfum
við, alveg sérstaklega á Vesturlöndum,
lagt áherslu á abstrakt hugsun, svokall-
að hlutleysi – að aðeins hið áþreifanlega
og mælanlega sé til. En skapandi hugsun
er heildræn, byggir á innsæi og býr til
allt öðruvísi nálgun. Þar treystir maður
til dæmis tilfinningu, heldur á vit þess
óþekkta og úr verður eitthvað sem hugs-
anlega eignast síðar nafn. Við höfum
dvalið í rökhugsun á kostnað skapandi
hugsunar allt of lengi. Þessir tveir ryþ-
mar þurfa að fá að dansa meira saman.“
holmfridur@frettabladid.is
SKÓLASTÝRAN HRUND GUNNSTEINSDÓTTIR: STÝRIR ÞVERFAGLEGU NÁMI
Múrar brotnir niður í Prisma
MÚRBRJÓTUR Hrund Gunnsteinsdóttir, skólastýra hins þverfaglega Prisma-náms Listaháskóla
Íslands og Bifrastar, vill efla skapandi og gagnrýna hugsun og brjóta niður múra á milli sér-
greina. Prisma hefst í þriðja sinn eftir áramót, en umsóknarfrestur rennur út 3. desember.
MERKISATBURÐIR
1612 Sigur Breska Austur-Indía-
félagsins yfir Portúgölum
í orrustunni við Suvali við
strendur Indlands mark-
ar upphafið að endalok-
um einokunar Portúgala á
verslum í Austur-Indíum.
1878 Þjóðsöngur Ástralíu,
Advance Australia Fair,
fyrst fluttur í Sydney.
1939 Vetrarstríðið hefst með
innrás Sovétríkjanna í
Finnland.
1943 Hitaveita kemur til Reykja-
víkur frá Reykjum í Mos-
fellssveit. Fyrst er tengt í
Listasafn Einars Jónssonar.
2005 Skurðlæknar í Frakk-
landi græða nýtt andlit á
manneskju í fyrsta sinn í
sögunni.
2007 Kárahnjúkavirkjun gang-
sett við formlega athöfn.
Skarðsbók er nafn á tveim-
ur fornum íslenskum skinn-
handritum, Skarðsbók Jóns-
bókar annars vegar og
Skarðsbók postulasagna
hins vegar. Íslenskir bank-
ar keyptu Skarðsbók postul-
asagna á uppboði í London
á þessum degi árið 1965.
Var hún þá eina fornís-
lenska handritið í heiminum
í einkaeigu.
Lengi vel var Skarðsbók
postulasagna í eigu kirkj-
unnar á Skarði á Skarðs-
strönd. Þaðan hvarf hand-
ritið um 1820 en kom síðar
í leitirnar á Englandi. Þar
keyptu íslensku bankarn-
ir það á uppboði í London
eins og fyrr sagði og gáfu
íslensku þjóðinni. Er það
fyrsta handritið sem afhent
var Stofnun Árna Magnús-
sonar til varðveislu.
Þess skal getið að
Skarðsbók Jónsbókar er
lögbókarhandrit, sem hefur
að geyma Jónsbók og
nokkrar réttarbætur. Hand-
ritið var skrifað árið 1363,
líklegast í Helgafellsklaustri
og fyrir tilstuðlan Orms
Snorrasonar, lögmanns
á Skarði á Skarðsströnd.
Handritið er einnig geymt í
Árnasafni.
Heimild: www.wikipedia.org.
ÞETTA GERÐIST: 30. NÓVEMBER 1965
Skarðsbók keypt í LondonWINSTON CHURCHILL (1874–1965) FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Maður gerir það sem til þarf,
hvað svo sem afleiðingum í
einkalífi, hindrunum, hættu og
álagi líður. Það er grundvöllur
alls mannlegs siðferðis.“
Winston Churchill var forsætis-
ráðherra Bretlands á tímum síð-
ari heimsstyrjaldarinnar. Hann
spreytti sig líka sem hermaður,
rithöfundur, blaðamaður og list-
málari. Hann fékk Nóbelsverð-
launin árið 1953.
LOKAÐ.
Vegna útfarar Guðmundar Péturssonar
hæstaréttarlögmanns verður skrifstofa
okkar lokuð mánudaginn
30. nóvember frá kl. 12 – 15.
LOGOS lögmannsþjónusta
– Efstaleiti 5 – Reykjavík.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Arnmundur Jónasson
Mávabergi, Bakkafirði,
lést föstudaginn 20. nóvember. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 1. desember
kl. 13.00.
Guðmundur Konráð Arnmundsson Erna Sigurjónsdóttir
Ólöf Kristín Arnmundsdóttir
Ingveldur Rut Arnmundsdóttir Þröstur Júlíusson
Jónas Arnmundsson Sólrún Unnur
Harðardóttir
Ása Karítas Arnmundsdóttir Birgir Þór Búason
Svanhildur Arnmundsdóttir Guðmundur Heimir
Sveinbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
AFMÆLI
Elisha Cuthbert
leikkona er 27 ára.
Gael García Bernal
leikari er 31 árs.
Ben Stiller leikari er
44 ára.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Elskulegur tengdafaðir minn, afi okkar
og langafi,
Guðmundur Ragnar
Árnason
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriðjudaginn
1. desember kl. 14.00.
Dagný Björk Þorgeirsdóttir
Sólrún Guðjónsdóttir
Svava Hrund Guðjónsdóttir Sigurður Halldór Sævarsson
Mjöll Guðjónsdóttir
Guðmundur Ingþór Guðjónsson Anna María Þórðardóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þórarinn Þorkell Jónsson
löggiltur endurskoðandi,
Hólabraut 2, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðjudaginn
1. desember kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en
þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartaheill.
Þorbjörg Jónsdóttir
Jón Þórarinsson Birna María Antonsdóttir
Helga Halldóra Þórarinsdóttir Dagur Jónasson
Bryndís Þórarinsdóttir Halldór Geir Þorgeirsson
Þórarinn Eiður Þórarinsson Alexandra María Klonowski
barnabörn og barnabarnabörn.