Fréttablaðið - 30.11.2009, Side 12
12 30. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
UMHVERFISMÁL Upplýsingum um
seiðasleppingar í íslenskar ár
hefur ekki verið haldið mark-
visst saman síðan 1997. Veiði-
málastofnun hefur ekki fengið
nákvæmar upplýsingar um slepp-
ingarnar þrátt fyrir að eftir því
hafi verið leitað. Fiskistofa segir
upplýsingaöflun um sleppingarn-
ar í eðlilegum farvegi.
Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri
auðlindasviðs Veiðimálastofnun-
ar (VMST), segir að lengi vel
hafi stofnunin fengið mjög góðar
upplýsingar um seiðaslepping-
ar. Hins vegar hafi lögum verið
breytt árið 1997 og eftir það hafi
verkefnið lent á vergangi.
Guðni óttast ekki aukna sjúk-
dómahættu þar sem seiðaeld-
isstöðvar geti ekki flutt seiði á
milli vatnasvæða án tilskilinna
leyfa. Eins séu stöðvarnar undir
eftirliti dýralækna þegar fisk-
ur er tekinn inn í stöðvarnar og
sýni tekin til að greina sjúkdóma.
Hann segir að erfðafræðilegi
hlutinn sé annað mál.
„Ef menn fara að fikta í slíku,
og fara með fisk á milli vatna-
svæða, þá má fullyrða að slík
inngrip eru óæskileg. Það er því
fyrst og síðast út frá þeirri hættu
sem menn eru að velta því fyrir
sér hvort ekki sé rétt að fylgjast
betur með sleppingum seiða en
nú er gert,“ segir Guðni.
Guðni minnist á sleppingar í
Rangárnar í þessu sambandi og
segir takmarkaða hættu þar á
ferðum. Enginn eða lítill laxa-
stofn hafi verið fyrir í ánum þó
mjög skiptar skoðanir séu um
sleppingar í ár sem eru fyrst og
síðast silungsveiðiár. „Hins vegar
þarf að fara varlega við að stunda
miklar sleppingar þar sem fyrir
er náttúrulegur stofn, hvort sem
um er að ræða lax eða silung. Eru
menn að taka áhættu? Ég held að
svarið sé já,“ segir Guðni.
Árni Ísaksson, forstöðumaður
lax- og silungsveiðisviðs Fiski-
stofu, segir að seiðasleppingar
séu háðar fiskræktunaráætlunum
sem veiðifélög gera til fimm ára í
senn og upplýsingar um slepping-
arnar berist stofnuninni í gegn-
um ársskýrslur þeirra. „Þeir
kaupa þessi seiði dýrum dómum
úr eldisstöðvum svo það er auð-
velt að finna þessar tölur.“
Hann telur að upplýsingaöfl-
un um seiðasleppingar séu í eðli-
legum farvegi en tekur fram að
umræðan um að svo sé ekki hafi
orðið til þess að stofnunin ætli
að ganga lengra. „Ég reikna með
því að við leitum til þeirra sem
sleppa í árnar og fáum þessar
tölur upp á borðið.“
svavar@frettabladid.is
Ef menn fara að fikta í
slíku, og fara með fisk á
milli vatnasvæða, þá má fullyrða
að slík inngrip eru óæskileg.
GUÐNI GUÐBERGSSON
SVIÐSSTJÓRI HJÁ VEIÐIMÁLASTOFNUN
Alhliða uppskrift
Pulsa (hituð í vatni,
EKKI SOÐIN!!!) Pulsu-
brauð og bara hvað sem
þig langar að hafa með.
(Nema grænar baunir.
Grænar baunir í pulsu-
brauði geta valdið
öndunarerfiðleikum.)
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
www.lapulsa.is
Ringjarar fara inn á ring.is og óska eftir að fá
MMS með tilboðum send í símann.
Ringjarar þurfa ekki
skæri. Við sendum
tilboð beint í símann.
Tilboð dagsins:
Gott 2
MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út
50% afsláttur af
matseðli. Gos er ekki
innifalið í tilboði
Gott 1
MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út
50% afsláttur af
lítilli pizzu með 2
áleggstegundum.
Dominos
Serrano
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
0
0
4
4
50%
afsláttur
af máltíð
fyrir einn
50%
afsláttur
af máltíð
fyrir einn
Framlög til ÍSÍ og KSÍ
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hefur
lagt fram fyrirspurn til menntamála-
ráðherra um framlög ríkisins til ÍSÍ og
KSÍ. Vill hún vita hvað KSÍ hefur feng-
ið mikið af opinberu fé síðustu fimm
ár og hvað sambandinu er ætlað að
fá á næsta ári.
ALÞINGI
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
ákærður fyrir að ráðast í fyrra-
vetur á unnustu sína í iðnaðar-
húsnæði í Hafnarfirði og ganga
í skrokk á henni. Meðal annars
barði hann hana með ljósaperu,
sem brotnaði á höfði hennar.
Maðurinn tók konuna kverka-
taki, skellti höfði hennar utan í
vegg, kýldi hana í andlitið, reif
í hár hennar og færði hana með
valdi inn á baðherbergi. Þar hélt
hann ofbeldinu áfram. Konan
hlaut talsverða áverka. Hún
krefst miskabóta upp á 1,4 millj-
ónir króna. - jss
Iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði:
Braut peru á
höfði unnustu
Neslistinn býður aftur fram
Bæjarmálafélag Seltjarnarness hyggst
bjóða Neslistann fram í bæjarstjórn-
arkosningunum í vor. Listinn hefur
frá 1990 verið sameiginlegt framboð
allra flokka á Seltjarnarnesi að frátöld-
um Sjálfstæðisflokknum. Samfylk-
ingin ætlar hins vegar að bjóða fram
eigin lista í næstu kosningum.
SELTJARNARNES
LÖGREGLUMÁL Fækkun varð í flest-
um brotaflokkum í október síðast-
liðnum miðað við október í fyrra.
Fíkniefnabrotum fækkaði um
30 prósent, þjófnaðarbrotum um
28 prósent, hegningarlagabrotum
um átján prósent og innbrotum
um ellefu prósent.
Í skýrslu Ríkislögreglustjórans
um afbrotatölfræði í október segir
á hinn bóginn að hraðakstursbrot-
um hafi fjölgað mikið. Skýrist það
meðal annars af tveimur stafræn-
um hraðamyndavélum sem settar
voru upp á Suðurlandsvegi í Ölf-
usi og teknar í notkun í byrjun
mánaðarins. Skráðu þær tæplega
2.000 hraðakstursbrot.
Í skýrslunni segir að fíkni-
efnabrot, sem töldust 98 í síðasta
mánuði, hafi ekki verið jafn fá í
októbermánuði síðustu fimm ár.
Flest voru þau 2006; 175 talsins.
Þá kemur fram að hraðaksturs-
brot hafi verið 83 prósent allra
umferðarlagabrota í októbermán-
uði en þau eru að meðaltali 163 á
dag.
Þjófnaðarbrotum hefur fækkað
þrjá mánuði í röð. - bþs
Að meðaltali voru framin átta innbrot og tólf þjófnaðarbrot á dag í október:
Afbrotum fækkar milli ára
FJÖLDI BROTA Í OKTÓBER
okt.´09 okt.´08 okt. ´07
Hraðakstursbrot 5.066 2.370 3.385
Þjófnaðarbrot 366 511 262
Eignaspjöll 238 238 250
Innbrot 262 293 156
Ölvun við akstur 118 133 150
Fíkniefnabrot 98 141 153
Áfengislagabrot 33 48 115
Líkamsárás 91 91 131
Nytjastuldur 28 37 31
Laxaseiðum
sleppt án sér-
staks eftirlits
Sérfræðingur gagnrýnir slælegt eftirlit með slepping-
um seiða í laxveiðiár. Upplýsingasöfnun hefur legið
að mestu niðri í tólf ár. Erfðablöndun laxastofna er
sögð aðalhættan við eftirlitslausar sleppingar.
LAXVEIÐI Seiðasleppingar hafa tíðkast áratugum saman til að hjálpa náttúrulegum
stofnum laxánna. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á Suð-
urnesjum hefur ákært karlmann
um fimmtugt fyrir Héraðsdómi
Reykjaness fyrir kannabisrækt-
un.
Maðurinn var tekinn mið-
vikudaginn 2. apríl á síðasta ári
með 117 kannabisplöntur og 11
kannabisgræðlinga í vörslu sinni.
Ræktunina stundaði hann á heim-
ili sínu í Vogum, í vinnuaðstöðu
sem sambyggð er húsnæðinu.
Efnin vógu vel á annað kíló, eða
rúmlega 1.625 grömm.
Auk upptöku efnanna er þess
krafist að maðurinn sæti upptöku
tækja og tóla, sem hann notaði
við ræktun efnanna. - jss
Héraðsdómur Reykjaness:
Kannabisrækt-
andi fyrir dóm
APAHÁTÍÐ Árleg apahátíð fer nú fram
í Lopburi í Taílandi og þessir apar tóku
þátt í hátíðarhöldunum um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP