Fréttablaðið - 30.11.2009, Síða 17
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
PIPARKÖKUHÚS eru hið mesta stofustáss. Mis-
mikil vinna liggur að baki húsunum. Þau er hægt að
gera frá grunni en einnig má kaupa tilbúnar einingar
sem límdar eru saman og skreyttar.
„Þetta er hið vandræðalegasta allt
saman því það er búið að taka af
mér mynd og ég verð víst að halda
mig við að tala um það sem hún er
af,“ byrjar Sóley samtalið og lætur
eins og allt sé í steik. „Af því þetta
tengist heimilinu og uppáhaldi
mínu þar þá hefði náttúrlega verið
eðlilegast að fjalla um fjölskylduna
mína sem er auðvitað það kærasta
sem ég á, ástríkur eiginmaður og
tvö prúð en kraftmikil börn. Þeim
fannst eðlilega að sér vegið þegar
ég fór að minnast á viðtalið. Þau
eiga líka skilið falleg orð frá mér
í blaðinu því ég elska þau mest af
öllu.“
Eftir þennan formála snýr Sóley
sér að veraldlegum gæðum eins og
til stóð – sem eru þó ekki bara ver-
aldleg því hún valdi stað á heimil-
inu sem hún heldur mest upp á. Úti
í horni inni í stofu lætur hún gjarn-
an fara vel um sig með værðarvoð,
tölvuna og köttinn sinn. „Þar líður
mér best, þar vinn ég best og þar
er ég mest, fyrir utan þegar ég sef
eða borða,“ segir hún. „Sit þarna
ósjaldan eftir að börnin eru sofnuð
og jafnvel eiginmaðurinn, og und-
irbý fundi, skrifa ræður og greinar
og krúttast svolítið á fésbókinni.“
Hún kveðst kúra undir klassísku,
íslensku ullarteppi úr Álafossi sem
hún telur algerlega nauðsynlegt á
hverju heimili. „Sérstaklega þar
sem leðursófar eru,“ segir hún og
kveðst reyndar helst vilja hafa ull
nálægt sér alls staðar.
Svo lýsir hún kátbroslegum
aðstæðum við myndatökuna vegna
óþekktar kattarins. „Ég settist á
minn stað og hefði ekki verið búið
að koma upp meðalstærð á stúd-
íói í þessari litlu íbúð hefði köttur-
inn eflaust viljað vera hjá mér og
hjúfra sig upp að mér. En því var
aðeins öðruvísi farið í þetta sinn
og eftir myndatökuna var ég orðin
loðnari en hann!“
gun@frettabladid.is
Úti í horni með værðar-
voð, tölvuna og köttinn
Um leið og Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi hafði samþykkt viðtal um uppáhaldið á heimilinu var ljós-
myndarinn mættur. Hún stillti sér upp en fékk svo bakþanka eins og eftirfarandi símtal ber með sér.
„Hefði ekki verið búið að koma upp meðalstærð á stúdíói í þessari litlu íbúð hefði kötturinn eflaust viljað vera hjá mér og hjúfra
sig upp að mér,“ segir Sóley hlæjandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
il
d
a
r
1
4
6
0
.2
4
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
Fyrst og fremst í heilsudýnum
JÓLATILBOÐ
á stillanlegum rúmum
6 mán.
vaxtalausar greiðslur
Söluaðilar.: Járn og gler hf - Garðheimar - Húsasmiðjan - Búsáhöld
Kringlunni - Pottar og Prik Akureyri. www.weber.is
Frábært úrval af gjafavörum frá Weber
Auglýsingasími
– Mest lesið