Fréttablaðið - 30.11.2009, Side 46
30 30. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
„Ég held að ég sé bara að minna á
að þessi lög séu til. Þetta er gert
til heiðurs lagaflórunni sem við
eigum,“ segir myndasögumeistar-
inn Hugleikur Dagsson.
Hugleikur gefur út bókina
Íslensk dægurlög í dag. Bókin er
hluti af Litlu sætu-seríu útgáfunn-
ar Ókei bóka, en Hugleikur tekur
fyrir og myndskreytir íslensk-
an dægurlagatitil eða textabrot á
hverri síðu. „Ég sný út úr eða tek
eitthvað of bókstaflega. Það er oft-
ast hægt að finna eitthvað fyndið,“
segir Hugleikur.
Skopmyndir Hugleiks eru oft
ansi grófar og hann heldur upp-
teknum hætti í Íslenskum dægur-
lögum. „Í Tunglið tunglið, taktu
mig er mynd af manni sem er í
rauninni að biðja tunglið um að
ríða sér,“ segir hann og játar að
fígúrurnar séu þær sömu og í
„okkur“-bókaröðinni. „… Og við
lagið Draumur að vera með dáta
er mynd af mjög langri dátabiðröð
sem liggur úr bragga.“
Hugleikur ræddi ekki sérstak-
lega við höfunda laganna áður
en hann hóf að teikna myndasög-
urnar. Hann vísar þó í heimildir
og hefur engar áhyggjur af því
að uppátækinu verði tekið óstinnt
upp. „Ég talaði ekki við höfund-
ana, en höfundarréttur á ekki að
vera brotinn á þennan hátt,“ segir
Hugleikur. „Þetta eru tilvitnanir í
lögin. Svo tek ég svo rosalega lítil
textabrot að ég er öruggur.“
Lögin sem Hugleikur mynd-
skreytir eru frá ýmsum tímabil-
um tónlistarsögunnar og með þeim
nýrri er væntanlega Is it True?,
framlag Íslands og silfurhafi Eur-
ovision-keppninnar í ár. „Ég er
strax búinn að fatta að ég gleymdi
nokkrum lögum,“ segir Hugleik-
ur. „Ég á jafnvel efni í aðra bók
einhvern tíma seinna. Ég fattaði
til dæmis að ég er ekki búinn að
teikna mynd við lagið Þér er ekki
boðið. Ég er með ákveðna pælingu
við það.“
Litla sæta-sería Ókei bóka stend-
ur undir nafni þar sem bækurnar
eru prentaðar á A6-pappír. Ásamt
bók Hugleiks kemur bókin Alhæft
um þjóðir, eftir Lóu Hjálmtýsdótt-
ur, út í sömu seríu í dag.
atlifannar@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. framagosi, 6. eftir hádegi, 8. skjög-
ur, 9. garðshorn, 11. mun, 12. kraum,
14. yfirstéttar, 16. rás, 17. skref, 18.
kvabb, 20. sjó, 21. nabbi.
LÓÐRÉTT
1. viðartegund, 3. fyrir hönd, 4.
vandræði, 5. svelg, 7. holdlaus, 10.
hestaskítur, 13. kóf, 15. tísku, 16.
espa, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. uppi, 6. eh, 8. rið, 9. kot,
11. ku, 12. krakk, 14. aðals, 16. æð,
17. fet, 18. suð, 20. sæ, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. tekk, 3. pr, 4. pikkles, 5.
iðu, 7. horaður, 10. tað, 13. kaf, 15.
stæl, 16. æsa, 19. ðð.
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Lóa hefur
verið svona
skapandi
alveg frá því
að hún var
lítil og var
oft að teikna
og búa til
litlar fígúrur
úr leirnum
sínum. Í mínum huga var hún
alltaf fyrst og fremst myndlist-
arkona svo það kom mér mjög
á óvart að hún skyldi fara að
syngja, en ég er mjög stolt af
henni og væri það líka þótt hún
væri að gera eitthvað annað.“
Anna Kristín Kristjánsdóttir, móðir Lóu
Hjálmtýsdóttur sem er söngkona í
FM Belfast og gefur á mánudaginn út
myndasögubókina Alhæft um þjóðir.
„Tónlistin er ekkert lík Jeff Who?
alla vega. Ef ég væri að gera
þannig tónlist myndi ég gera hana
með hljómsveitinni,“ segir Bjarni
Lárus Hall, söngvari hljómsveitar-
innar Jeff Who?
Bjarni lauk nýverið við sína
fyrstu sólóplötu, The Long Way
Home. Hann vonast til að geta
gefið plötuna út í byrjun desem-
ber, en það veltur á hvenær hún
kemur úr framleiðslu, sem hófst
fyrir helgi.
„Ég veit ekki hvernig ég á að
lýsa tónlistinni, þetta er mjög lág-
stemmd plata,“ segir Bjarni og
bætir við að andrúmsloftið á plöt-
unni sé gott. „Ég sótti innblástur í
tónlist áttunda áratugsins.“
Bjarni fær hjálp frá Adda G og
Nóa úr hljómsveitinni Leaves á
plötunni. Nói trommar og Addi spil-
ar á það sem Bjarni spilar ekki á
sjálfur. „Ég syng, spila á gítar og á
bassa í einu lagi,“ segir Bjarni, sem
er mjög ánægður með útkomuna.
Elstu lög plötunnar eru frá 2005
og þau nýjustu voru samin í ár.
Platan kemur eins og þruma úr
heiðskíru lofti, en ekkert hafði
spurst út um plötuna þangað til
hún var tilbúin. „Upphaflega ætl-
aði ég að gera plötuna fyrir mig,“
segir Bjarni. „En fyrst að hún er
tilbúin og flott þá ákvað ég að gefa
hana út.“ - afb
Bjarni Hall gefur út sólóplötu
BJARNI HALL Fer nýjar leiðir á sinni fyrstu sólóplötu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HUGLEIKUR DAGSSON: VIRÐINGARVOTTUR VIÐ ÍSLENSK DÆGURLÖG
Teiknar skopmyndir við
íslenskar dægurlagaperlur
„Auðvitað er þetta mikill heiður. Það er
gaman að fá viðbrögð við því sem maður
gerir,“ segir hönnuðurinn Þorbjörn Ingason
hjá Íslensku auglýsingastofunni.
Breska viðskiptablaðið Financial Times
birti nýlega lista yfir það frumlegasta, frísk-
asta og traustasta í ferðaheiminum. Þar er
nýr spilastokkur Icelandair valinn það besta
sem hægt er að taka með sér úr flugvélum.
Tyler Brúlé, stofnandi og ritstjóri tímaritanna
Wallpaper og Monocle, tók listann saman og
er hann birtur í heild sinni í nýjasta tölublaði
þess síðarnefnda. Spilin eru afar þjóðleg, eru
í víkingaþema og vísa í goðafræði.
„Það var kominn tími á að gera nýtt upplag
að spilastokki fyrir Icelandair,“ segir Þor-
björn um tildrög þess að stokkurinn var hann-
aður. „Það var á óskalistanum hjá mér að gera
spilastokk og við ákváðum að eyða aðeins
meiri tíma í þetta en til var ætlast og reyna að
gera eitthvað flott og sérstakt. Auðvelda leið-
in hefði verið að gera venjulegan spilastokk
og breyta bakhliðinni.“
Þorbjörn segir að forsvarsmenn Icelandair
hafi strax verið mjög ánægðir með stokk-
inn og til marks um það var engin breytinga-
tillaga lögð fram. „Það er frekar sjaldgæft,“
segir hann. Viðbrögðin hafa verið góð, en
Monocle er dreift í 150.000 eintökum um allan
heim og er mjög virt á
sínu sviði.
Sjálfur er Þorbjörn
ekki mikið fyrir að
spila og kíkir í
mesta lagi í einn
og einn póker-
leik. - afb
Mælt með spilastokki Þorbjörns
MIKILL HEIÐUR Þorbjörn er ánægður með viðbrögðin
við nýja spilastokknum.
VÍKINGAR Spilastokkurinn
vísar í goðafræðina.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Einar Skúlason.
2 Góði elskhuginn.
3 Sigrún Lilja Guðjónsdóttir.
Tónlistarmaðurinn Pétur Ben hefur
lokið upptökum á tónlist sinni við
kvikmyndina Bjarn-
freðarson í leikstjórn
Ragnars Bragasonar.
Athyglisvert verður
að heyra hvernig
þessi færi tónlistar-
maður tæklar verkefn-
ið. Hann fékk Íslensku
tónlistarverðlaunin
fyrir tónlist sína í For-
eldrum, sem Ragnar
leikstýrði einnig,
og hver veit nema
hann endurtaki leikinn á næsta ári.
Bjarnfreðarson verður frumsýnd
annan í jólum og bíða hennar
margir með mikilli eftirvæntingu,
enda hafa þættirnir um þá Georg,
Ólaf Ragnar og Daníel, notið mikilla
vinsælda.
Og eins og Fréttablaðið hefur
greint frá halda gagnrýnendur
vart vatni yfir nýjustu
kvikmynd Sigurjóns Sig-
hvatssonar, Brothers.
Myndin fékk nánast
fullt hús stiga í Screen
Daily en góður dómur
frá þeim bænum
þykir ákaflega
mikilvægt.
Og nú hefur
myndin
eignast annan
aðdáanda,
sjálfan David Letterman. Spjall-
þáttastjórnandinn, sem hefur átt
fremur erfiða daga að undanförnu
vegna framhjáhalds, lýsti því yfir í
síðustu viku að Brothers væri besta
myndin sem hann hefði séð í 20
ár. Kannski hefur það haft einhver
áhrif að ein af aðalleikkonum
myndarinnar, Natalie Portman, var
meðal gesta hans í umræddum
þætti. - fb/fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
GRÓF NÁLGUN Á
DÆGURLAGAPERLUR
Hugleikur vísar í tónlist á sinn hátt í
bókinni Íslensk dægurlög sem kemur út
í dag. Meðal þess er ansi skondin nálgun
á lagið Draumur að vera með dáta og
Þú komst við hjartað í mér sem Hjaltalín
gerði svo frægt.