Veðrið - 01.04.1959, Blaðsíða 7
BJÖRN L. JÓNSSON veðurfrœðingur,
cand. med.:
Ert þú veðurnæmur?
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að
margt gigtveikt fólk telur líðan sína mjög
háða veðri. Og svo kynlegt sem það kann
að virðast, þá er það ekki veðrið í dag,
heldur veðrið á morgun, sem spillir líðan
sjúklingsins. Það eru veðrabrigðin, eða öllu
heldur aðdragandi þeirra, sem á einhvern
dularfullan hátt verka á líkama þeirra, sem
næmir eru fyrir þessum áhrifum. Þeir eru
eins konar loftvog, en eins og kunnugt er, fellur loftvog, þegar óveður nálgast,
og á sama hátt versnar gigtin, löngu áður en nokkur veðrabrigði sjást á lofti.
í íslenzkum þjóðháttum segir svo á bls. 141: „Þá er algengt, að menn finna
á sér, ef einhver veðrabrigði eru í vændum, helzt íhlaup, stormur eða rigning
eða stórhríðar. Þá ískrar eða ólmast gigtin, einkum í gamla fólkinu, og lætur
ekki undan, fyrr en veðrið er skollið á; en ef rigning er í vændum, getur það
ekki hrært sig fyrir máttleysi, fyrr en farið er að rigna.“
Þá er og til fjöldi frásagna um veðurglöggar skepnur, t. d. forustusauði, sem
ekki var hægt að koma af stað frá fjárhúsum að morgni dags eða lögðu allt í
einu af stað heimleiðis úr haganum, fundu á sér, að illviðri var í aðsigi, þó að
veðurglögga bændur eða smala óraði ekki fyrir neinu.
Veðurnæmt fólk og veðurglöggar skepnur eru víðar til en á íslandi. Margir
munu þó ætla, að hér sé um að ræða hugarburð, tilviljanir eða hreinar kerlinga-
bækur, líkt og t. d. hina rótgrónu trú margra þjóða á sambandið milli tungl-
breytinga og veðurs. En hafi kvartanir gigtarsjúklinga og munnmælasögur um
veðurglögg dýr við rök að styðjast, í hverju eru þá áhrif veðursins fólgin, áhrif,
sem gera vart við sig, löngu áður en venjuleg skynfæri greina nokkra veður-
breytingu?
Fyrst minnzt er á tunglið, er ekki úr vegi að geta þess, að rannsóknir hafa
ekki staðfest þá aldagömlu trú, að veðurbreytingar standi í sambandi við mynd-
breytingar tunglsins. Hinsvegar er auðvelt að gera sér í hugarlund, hvernig þessi
trú hafi orðið til og haldizt við. Myndbreytingar tungls eru áberandi fyrirbrigði
og eðlilegt, að almenningur á öllum öldum hafi tengt þær jarðneskri viðburða-
rás, ekki sízt þar sem svo vill til, að tunglmánuðurinn er merkilegt tímabil í lífi
rnanna og sumra dýra. Tunglið veldur flóði og fjöru á höfunum, og í seinni
VEÐRIÐ — 7