Veðrið - 01.04.1959, Blaðsíða 11
JÓNAS JAKOBSSON veðnrfrœðingur:
Hitastig yfir Keflavík
Árið 1958 er íimmta árið í röð, sem VEÐRIÐ birtir línurit af daglegum breyt-
ingum liitastigsins yfir Reykjanesi í 500 og 1500 metra haeð.
Hinar miklu liitasveiflur í janúar bera vitni um breytilegt veðurfar. Mikill
kuldakafli kom upp úr miðjum mánuðinum og stóð í hálfa aðra viku. Urðu
þetta mestu frostin á árinu. Febrúar og marz svipar saman um hitafar, kalt
fyrri hlutann, en lengst af frostlaust þann síðari. Aprílmánuður var fremur
hlýr og hitasveiflur litlar. Aftur á móti var kalt í maí, svo kalt, að næturfrost
voru á hverri nóttu, þangað til viku fyrir maílok. En þann 24. var seinasta
frost vorsins í 500 m hæð, og má telja, að þá byrji sumarið, sem stóð í tæpar
tuttugu vikur, eða til 10. október, en þá kom fyrsta frost haustsins í 500 m hæð.
Þegar kemur fram í nóvember, vaxa hitabreytingarnar, því að veturinn er geng-
inn í garð með tíðum og snöggum veðrabrigðum.
Línuritið af árssveiflu hitans er nokkuð óvenjulegt útlits vegna hins lága
hitastigs í maí og ágúst. Þar við bætist, að tveir hlýjustu mánuðir, sem komið
liafa í 2000 m hæð síðustu fimm árin, eru júlí og september með 1,2° C og
0,8° C hita. Fróðlegt er að atliuga hitaskiptinguna í marz og maí með hliðsjón
1. mynd. Daglegar hitabreytingar í 500 og 1500 m luvð, jan.—marz 1958.
— 1 1
VEÐRIÐ