Veðrið - 01.04.1959, Síða 28
af liendi, og leyfi ég mér að færa honum þakkir fyrir. Hann hefur þarna ráðist
á einn óræktarreit í íslenzku vísindamáli og gert úr honum grænan blett.
Nokkur eintök a£ Skýjabókinni munu vera til sölu í skrifstofu veðurstofunnar
á 210 kr. Það er gjafverð.
Jón Eyþórsson.
VEÐRÁTTAN 1955 — Ársyfirlit samið d veðurstofunni.
Veðrátlan hefur komið út síðan í ársbyrjun 1924. Hún flytur meðaltöl hita,
úrkomu, vinda og loftþrýstings á veðurathugunarstöðum fyrir einn mánuð í
senn, og auk þess eitt liefti með yfirliti um tíðarfar ársins í lieild — eða árferði.
Frá 1874 lil 1918 gaf danska veðurstofan út árlega bók um athuganir á íslenzk-
um veðurstöðvum, og voru þar prentaðar athuganir þrisvar á degi hverjum frá
nokkrum stöðum, t. d. Stykkishólmi og Grímsey. Þannig er liægt í fljótu bragði
að sjá, hvernig veöur var í Grímsey 31. jan. 1881, svo eitthvert dæmi sé tekið.
Eftir að Löggildingarstofan tók við umsjón með veðurathugunum liér á landi,
var gefin út Veðurfarsbók með svipuðu sniði til 1923. Þá var þessu liætt, lík-
lega í sparnaðarskyni, en upp var tekið að birta aðeins meðaltöl fyrir heila
mánuði í Veðráttunni, eins og fyrr segir.
Var þetta mikil afturför.
Samt sem áður hefur Veðráttan að geyma mikinn fróðleik um veðurfar og
árferði hér á landi sl. 25 ár og er að því leyti merkilegt heimildarrit. Alls er nú
birt meðaltöl frá h. u. b. 60 athugunarstöðvum víðs vegar á landinu.
Síðastliðin 10 ár hefur frú Adda Bára Sigfúsdóttir annazt ritstjórn Veðr-
áttunnar og umsjón með reikningsvinnu í því sambandi. Um eitt skeið var ritið
orðið mörgum árum á eftir tímanum, en nú miðar mjög í rétta átt, enda þurfa
meðaltölin að birtast sem allra fyrst eftir að athuganir eru gerðar, til þess að
þau nái tilgangi sínum..
Ymsar fróðlegar töflur um veðurfar landsins hafa verið birtar í Veðráttunni,
t. d. er í hefti þvf, sem hér er sérstaklega getið, tafla um síðasta vorfrost og
fyrsta haustfrost á 59 stöðum á landi hér.
Það skortir nokkuð á í liinum eldri árgöngum Veðráttunnar, að gerð sé grein
íyrir aðferðum við útreikning á meðaltölum og hvenær nýjar meðallagstölur eru
teknar í notkun. Á þessu liefur nú orðið breyting til bóta, svo Veðráttan verður
öruggara og auðnotaðra heimildarrit en áður var til rannsókn á veðurfarssveifl-
um og veðurfarsbreytingum.
Þetta ber að þakka.
í þessu ársyfirliti er einnig tafla um jarðskjálfta fjær og nær, sem mældust á
jarðskjálftamæla í Reykjavík árið 1955. Hefur Eysteinn Tryggvason tekið hana
saman. Langflestar hræringar hafa átt upptök í Vatnajökli og Mýrdalsjökli. —
Minnir það á Grfmsvötn og Kötlu.
Þeir sem vilja gerast áskrifendur að Veðráttunni geta snúið sér til Veðurstofu
íslands, í Sjómannaskólanum í Rvík. Árgangurinn kostar aðeins 15 kr.
Ján Eyþórsson.
VEÐRIÐ — 27