Veðrið - 01.04.1961, Síða 12
stöSvum, þó ekki á Suðureyri í Súgandafirði, þar er gróðurlaust með öllu í lok
mánaðar og mikill snjór í norðurhlíðum fjarðarins.
Þannig er saga vetrarmisserins lauslega rakin eftir umsögn veðurathugunar-
manna. En bæði þeir sem nefndir hafa verið í þessu yfirliti og margir aðrir senda
Veðurstofunni tíðarfarslýsingar í orðum með töluskýrslum sínum um veðrið og
eru þær mjög vel þegnar. Ekki hefur enn verið unnið úr öllum veðurtölum
vetrarins, en hór fylgir yfirlit um hita, sólskin og úrkomu í Reykjavík og á Ak-
ureyri. Aðrar niðurstöður verða hirtar í Veðráttunni innan skamms.
Hiti ° C.
(í svigum fyrir neðan meðallagið 1901 — 1930).
Nóv. Des. Jan. Febr. Marz Apríl Mcðaltal
Reykjavík 3.0 0.2 1.6 0.7 0.8 2.4 1.4
(1.4) (0.0) (-0.6) (. -0.2) (0.5) (2.6) (0.6)
Akureyri 2.6 -0.6 0.0 -0.9 -0.6 -0.6 -0.0
(-0.5) (- 1.9) (-2.5) (• -2.0) (-1.7) (0.8) (- 1.3)
Úrkoma, mm.
(í svigum fyrir neðan meðallagið 1931-1955).
Reykjavík 27 65 82 64 112 22 372
(80) (82) (92) (63) (65) (49) (431)
Akureyri 44 104 44 46 42 40 320
(43) (53) (42) (40) (44) (32) (254)
Sólskin, lilst. Alls
(í svigum fyrir neðan meðallagið 1930-1949)
Reykjavík 78 13 39 55 79 170 434
(31) (6) (18) (54) (106) (135) (350)
Akureyri 10 1 8 43 70 90 222
(14) (0) (6) (35) (75) (108) (238)
Alþjóðlegi veðurdagurinn.
Alþjóðaveðurfræðistofnunin, sem hefur aðsetur í Genf, hefur ákveðið, að 23.
marz ár hvert skuli vera alþjóðlegur veðurdagur, og var þess rninnzt í fyrsta sinn
þann dag á þessu ári. Veðurstofan efndi þá til sýningar í glugga Málarans í
Reykjavík, og er mynd af hluta hennar á forsíðu. Fyrir miðju er liitamælaskýli, en
frá því greinast þræðir til allra veðurstöðva á landinu, en þær eru sýndar á stóru
korti á bak við. Til vinstri er veðurkort dagsins, en til hægri sjálfvirk fjarritvél,
sem tekur á móti veðurskeytum frá útlöndum. Var hún höfð í gangi þarna í
glugganum. Á myndskreyttum spjöldum var kynnt starfsemi veðurstofunnar og
þjónusta við atvinnuvegi, en yfir öllu snýst vindmælir.
— 1 1
VEÐRIÐ