Veðrið - 01.09.1962, Side 5

Veðrið - 01.09.1962, Side 5
skyldi hann gera athuganir — eftir nánari fyrirmælum, og fyrir þetta starf „höf- um vér náðarsamlegast veitt honum 80 rd árlega, unz ofangreint prestakall losnar." Sama dag gefur konungur út nýtt erindisbréf til handa Eyjólfi. Þar er honum falið að velja þegar með samþykki stiftamtmanns heppilegan stað á prestsetr- inu Staðastað undir byggingu fyrir athuganir sínar ásamt húsnæði handa sjálf- um sér og hefja þegar að reisa það. — I iiðru iagi skal hann halda nákvæma bók yfir mælingar sínar — ----og tilgreina þar álestur loftvogar, liitamæla og athug- un vinda og veðurs daglega allt árið. Stiftamtmaður skal iiafa yfirumsjón með því, að stofnun þessi svari tilgangi sínum. Athugari skal senda Vísindafélaginu ár hvert afrit af athugunum sínum frá I. júlí til 30. júní, og árlega skal hann á alþingi sýna stiftamtmanni frumbæk- ur sínar og afrit, en stiftamtmaður staðfesta með áritun sinni, að afritið sé rétt, áður en það er sent. Jafnframt (21. maí 1770) er Thodal stiftamtmanni ritað um Eyjólf Jónsson og störf hans í samræmi við erindisbréfið. Skal stiftamtmaður sjá um, að nauð- synlegar byggingar verði reistar á Staðastað. í konungsbréfi ö. maí 1773 vísast til bréfs Tliodals, þar sem hann liefur tilkynnt, að sér liafi borizt svo seint fyrirskipun um byggingu á Staðastað, að eigi hafi verið unnt að framkvæma hana samsumars, enda liafi Eyjólfur Jóns- son löngum verið sjúkur. Thodal liafi því lagt til, að athuganirnar yrðu gerðar á Bessastöðum og leitt rök að því. Fellst konungur á, að athugunarstöðin verði reist á Bessastöðum í samráði við Eyjólf Jónsson og þegar hafizt handa um framkvæmdir. í konungsbréíi til Thodal, 5. maí 1774, eru rakin fyrri fyrirmæli, en þar sem nú eigi að byggja upp Bessastaðakirkju, hvort ekki mætti útbúa athugun- arstöð í kirkjuturninum. Auk þess er lagt til, að stiftamtmaður eftirláti lítið kot- býli í eigu konungs, Lambhús, undir bústað athugara, þar eð kot þetta sé vart meira en í 500 skrefa fjarlægð frá kirkjunni. Skyldi nú ekki reynast unnt að athuga úr kirkjuturninum, verði að reisa stjörnuturn á Lambhúsum. — Eyjólfur Jónsson skal afsala sér von í Staðastað, en árslaun hans hækki í 100 rd, þegar kallið losnar. Arið eftir, 1775, deyr Eyjólfur Jónsson (21. júlí), og er þá ekki frekar aðhafzt um sinn. H. 4. maí 1776 ritar kanzellíið prófessor Horrebow, að honum sé heimilt að taka til æfingar í stjörnumælingum Eyjólf stúdent jónsson Moe, svo að hann geti orðið eftirmaður nafna síns. Skuli hann og njóta 80 ríkisdala sem styrks til námsins. Nú líður og bíður til 22. júlí 1878. Þá er birt konungsbréf til prófessors. Thomas Bugge um nemanda til þess að gerast athugari á íslandi: Vér Kristján sjöundi höfum áður [1776] fallizt á þá tillögu Horrebows heitins prófessors, að taka Eyjólf Johnsonius Moe til æfinga í stjörnumælingum og veitt honum 80 rd. á ári, svo að hann gæti síðan tekið að sér athuganir á íslandi. Þar sem þú tilkynnir nú, að nefndur Moe hafi aldrei mætt til æfinga þrátt fyrir áminn- ingar — — — og þú hafir þess vegna augastað á öðrum manni, stúdentinum VEÐRIÐ 41

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.